Fréttablaðið - 30.09.2017, Side 32
Áverkarnir
voru alvarlegir
eins og sjá
má á þessari
mynd.
Slysið
breytti öllu
Á tímapunkti sÁ ég ekki
tilganginn. ég hef svo
sannarlega kynnst
mykrinu.
Sveinn
Arnarsson
sveinn@frettabladid.is
riff.is
Það er LUX-dagur á RIFF á morgun, sunnudag,
tileinkaður LUX kvikmyndaverðlaunum
Evrópuþingsins. Sendiherra ESB flytur stutt ávarp
fyrir sýningu myndarinnar Western kl. 17:30 í
Háskólabíói.
LUX DAGUR!
Alvarlegt slys í hesta-
ferð árið 2011 varð
vendipunktur í lífi
stefaníu steins-
dóttur. Eftir langt
bataferli og andlega
vanlíðan fann hún
nýjan tilgang og hóf
guðfræðinám. Nú
er hún nýr prestur í
Glerárkirkju á Akur-
eyri og getur miðlað
af reynslu sinni.
Við Stefanía stöndum á miðju kirkjugólfi Glerárkirkju og virð-um fyrir okkur lit-ríka sólargeisla sem kastast af steindum
gluggum kirkjunnar. Stefanía tekur
til máls.
„Lífsreynsla mín í kjölfar hesta slyss
sumarið 2011 varð til þess að ég dreif
mig í guðfræðina,“ segir Stefanía.
„Við vorum þrettán konur saman í
hestaferð. Við erum á leið úr Bauga-
seli [Baugasel er eyðibýli í Barkárdal
inn af Hörgárdal] og erum aftur á
leið til byggða þegar hestur sem ég
er á hrasar og ég dett af baki. Ég fæ
mikið höfuðhögg og ligg þar í nokk-
urn tíma. Lífið tók U-beygju þennan
örlagaríka dag.“
Það tók hana dágóða stund að
ranka við sér og fá máttinn aftur.
Skemmdir á hjálmi Stefaníu gáfu til
kynna að hún hefði fallið á hnakk-
ann af miklu afli. Samt sem áður, af
þrjósku og harðfylgi, stóð hún upp
og kom sér heim. Á þessum tíma bjó
hún á Neðri-Rauðalæk í Hörgárdal,
sinnti bústörfum þar sem fé og hross
voru meginundirstaðan og vann
fullan vinnudag hjá Atvinnuþróun-
arfélagi Eyjafjarðar.
„Á þessum tíma viðurkenndi ég
ekkert að það væri eitthvað að mér,
kastaði upp fyrstu tvo sólarhringana
og þegar höfuðverkurinn hætti ekki
ákvað ég að láta kíkja á mig. Þá er
bara tekin mynd af höfðinu á mér og
ég send heim með þeim skilaboðum
að ég ætti að vera góð eftir tvær vikur.
Þetta væri bara heilahristingur.“
Svefnleysið tók toll
Dagarnir liðu og lítið breyttist. Höf-
uðverkurinn ágerðist og myrkrið
tók yfir. Hún lá í rúminu og gat ekk-
ert gert til að lina þjáningarnar. „Ég
grenjaði bara af verkjum og svaf ekki
vegna verkjanna. Síðan ákvað ég að
leita mér sjálf hjálpar sem endaði á
því að hálsliðirnir voru myndaðir,“
segir Stefanía. Þá kom í ljós að háls-
liðir höfðu fallið saman. Tveimur
mánuðum eftir slysið var hún komin
í endurhæfingu á Kristnes, sem stað-
sett er miðja vegu milli Akureyrar og
Hrafnagils.
Hún lýsir því hvernig hún einangr-
aðist smátt og smátt. „Ég gat ekki hitt
vinkonurnar, sinnt vinnu, heimilis-
lífi eða áhugamálum. Mínir nánustu
áttu einnig erfitt með að heimsækja
mig á þessum tíma því það sást mjög
vel á mér hversu kvalin ég var. Ég svaf
ekki og lá að mestu í rúminu að far-
ast úr verkjum. Þetta var ekki góður
tími,“ segir Stefanía.
„Ég var á Kristnesi þar til í febrúar
árið 2012 og var útskrifuð í raun
þaðan án þess að vera nokkuð betri.
Ég var á lyfjum á þeim tíma og var
bara dofin. Sjúkraþjálfun á þeim
tíma virkaði stundum og stundum
ekki. Þarna fann ég að mér leið mjög
illa andlega. Það var mjög erfitt að
vera útskrifuð af Kristnesi með þeim
orðum að það gæti tekið mig allt að
fimm árum að ná styrk. Þarna var
tilhugsunin erfið, að þurfa að vera
svona slæm í fimm ár. Ég vissi ekkert
út í hvað ég var að fara. Ég var komin
á biðlista á Reykjalund en ég sá ekki
hvernig ég átti að fara í gegnum lífið
svona.
Þegar ég slasast voru börnin mín
sex ára og tíu ára. Sonur minn var að
byrja í skólanum þennan veturinn.
Mér fannst það óbærilegt að hafa
ekki verið til staðar á þeim tíma. Ég
kemst svo inn á Reykjalund vorið
2012 algerlega buguð. Þar tek ég
ákvörðun um prestsnámið.“
Það var á þessum tíma sem Stef-
anía sökk í hyldýpi sársaukans.
„Það er ótrúlega sorglegt að hugsa
til þess núna að mér hafi liðið svona
illa. Það er rosalega sorglegt. Á sama
tíma á ég mun auðveldara með að
skilja þessa tilfinningu og það hjálp-
ar mér sem presti í dag. Maður sér allt
svart, maður sér ekkert ljós og maður
sér ekki tilgang með neinu. Ég á tvö
yndisleg börn og að maður virkilega
geti hugsað svo myrkar hugsanir í
þeirri stöðu að vera tveggja barna
móðir er mjög sorglegt.
Á tímabili sá ég ekki
tilganginn. Ég hef
svo sannar-
lega kynnst
m y r k r -
inu.“
... heldur hafa ljós lífsins
Það var á myrkasta degi Stefaníu sem
hún á endanum fann ljóstýruna og
tók ákvörðun um að fylgja því. Og
fylgir því enn. Í ritningunni, sem hún
predikar nú yfir fermingarbörnum
Glerárkirkju, segir Jesú að hann sé
ljós heimsins. Sá sem fylgi honum
muni ekki ganga í myrkri heldur hafa
ljós lífsins.
Það á svo sannarlega við um Stef-
aníu sem ákvað á þeim tíma að venda
kvæði sínu í kross, hætta bústörfum
á Neðri-Rauðalæk í Hörgárdal og
hefja nám í guðfræði við Háskólann
á Akureyri. „Ég fann fyrir nærveru
Guðs þegar mér leið hvað verst og
síðan þá hef ég ákveðið að tileinka
honum líf mitt. Ég var svo sem trúuð
áður en slysið átti sér stað. Bæði kom
ég í sunnudagaskóla hingað í Glerár-
kirkju og ég sótti í trúna þegar dauðs-
föll börðu dyra í fjölskyldunni. Hins
vegar þegar ég horfi til baka þá hefur
líf mitt breyst gríðarlega mikið síðan
fyrir slys.“
Stefanía segir það skipta máli
að geta miðlað af eigin reynslu og
geta skilið líðan fólks sem gengur í
gegnum sama myrkur, sömu and-
legu angist, og hún þurfti að kljást
við. Mikilvægt sé fyrir alla þá sem
eiga við erfiðleika að stríða að muna
að halda í vonina og trúna og leita að
hjálpinni.
„Ljósið er einmitt sterkt fyrir mér,
dýrmætt og þakkarvert. Ég lít á þetta
núna þannig að ég er þakklát fyrir
að hafa kynnst þessu. Án þess þó að
maður óski neinum þess að þurfa
að ganga í gegnum svona erfiðleika.
Þessa reynslu get ég nýtt mér í því
starfi sem ég er í núna sem þjónandi
prestur. Það skiptir svo miklu máli að
tapa ekki voninni. Ljósið mun alltaf
sigra myrkrið. Sama hversu erfiðar
stundir þú upplifir í lífinu þá hjálpar
vonin og trúin okkur áfram.“
Komin aftur heim
Stefanía er nú komin aftur heim
norður og sest að í Eyjafirðinum
ásamt maka sínum, Hrafnhildi
Eyþórsdóttur, en saman eiga þær
fimm börn. Hún hefur ekki fundið
fyrir höfuðverkjum í langan tíma,
en þarf þó að takast á við öllu hvers-
dagslegri hausverk sem fylgir því að
vera stór fjölskylda í húsnæðisleit. Í
millitíðinni býr fjölskyldan á Myrká
í Hörgárdal hjá foreldrum Stefaníu.
Eftir að Stefanía fór í sterasprautur
og aðgerð á hálsi hefur líf hennar
tekið stakkaskiptum. „Ég hef oft
sagt það að ég væri til í að skipta
um afmælisdag. Að afmælisdagur-
inn minn sé dagurinn þegar ég fór í
aðgerðina. Á þeim tímapunkti
fékk ég líf mitt aftur. Því
má með sanni sega að
ég eigi tvo afmælis-
daga,“ segir Stefanía
og bætir við kímin:
„Ég verð tveggja
ára í vor.“
3 0 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r32 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
3
0
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
0
F
B
1
3
6
s
_
P
1
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
E
1
-B
3
9
8
1
D
E
1
-B
2
5
C
1
D
E
1
-B
1
2
0
1
D
E
1
-A
F
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
3
6
s
_
2
9
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K