Fréttablaðið - 30.09.2017, Page 32

Fréttablaðið - 30.09.2017, Page 32
Áverkarnir voru alvarlegir eins og sjá má á þessari mynd. Slysið breytti öllu Á tímapunkti sÁ ég ekki tilganginn. ég hef svo sannarlega kynnst mykrinu. Sveinn Arnarsson sveinn@frettabladid.is riff.is Það er LUX-dagur á RIFF á morgun, sunnudag, tileinkaður LUX kvikmyndaverðlaunum Evrópuþingsins. Sendiherra ESB flytur stutt ávarp fyrir sýningu myndarinnar Western kl. 17:30 í Háskólabíói. LUX DAGUR! Alvarlegt slys í hesta- ferð árið 2011 varð vendipunktur í lífi stefaníu steins- dóttur. Eftir langt bataferli og andlega vanlíðan fann hún nýjan tilgang og hóf guðfræðinám. Nú er hún nýr prestur í Glerárkirkju á Akur- eyri og getur miðlað af reynslu sinni. Við Stefanía stöndum á miðju kirkjugólfi Glerárkirkju og virð-um fyrir okkur lit-ríka sólargeisla sem kastast af steindum gluggum kirkjunnar. Stefanía tekur til máls. „Lífsreynsla mín í kjölfar hesta slyss sumarið 2011 varð til þess að ég dreif mig í guðfræðina,“ segir Stefanía. „Við vorum þrettán konur saman í hestaferð. Við erum á leið úr Bauga- seli [Baugasel er eyðibýli í Barkárdal inn af Hörgárdal] og erum aftur á leið til byggða þegar hestur sem ég er á hrasar og ég dett af baki. Ég fæ mikið höfuðhögg og ligg þar í nokk- urn tíma. Lífið tók U-beygju þennan örlagaríka dag.“ Það tók hana dágóða stund að ranka við sér og fá máttinn aftur. Skemmdir á hjálmi Stefaníu gáfu til kynna að hún hefði fallið á hnakk- ann af miklu afli. Samt sem áður, af þrjósku og harðfylgi, stóð hún upp og kom sér heim. Á þessum tíma bjó hún á Neðri-Rauðalæk í Hörgárdal, sinnti bústörfum þar sem fé og hross voru meginundirstaðan og vann fullan vinnudag hjá Atvinnuþróun- arfélagi Eyjafjarðar. „Á þessum tíma viðurkenndi ég ekkert að það væri eitthvað að mér, kastaði upp fyrstu tvo sólarhringana og þegar höfuðverkurinn hætti ekki ákvað ég að láta kíkja á mig. Þá er bara tekin mynd af höfðinu á mér og ég send heim með þeim skilaboðum að ég ætti að vera góð eftir tvær vikur. Þetta væri bara heilahristingur.“ Svefnleysið tók toll Dagarnir liðu og lítið breyttist. Höf- uðverkurinn ágerðist og myrkrið tók yfir. Hún lá í rúminu og gat ekk- ert gert til að lina þjáningarnar. „Ég grenjaði bara af verkjum og svaf ekki vegna verkjanna. Síðan ákvað ég að leita mér sjálf hjálpar sem endaði á því að hálsliðirnir voru myndaðir,“ segir Stefanía. Þá kom í ljós að háls- liðir höfðu fallið saman. Tveimur mánuðum eftir slysið var hún komin í endurhæfingu á Kristnes, sem stað- sett er miðja vegu milli Akureyrar og Hrafnagils. Hún lýsir því hvernig hún einangr- aðist smátt og smátt. „Ég gat ekki hitt vinkonurnar, sinnt vinnu, heimilis- lífi eða áhugamálum. Mínir nánustu áttu einnig erfitt með að heimsækja mig á þessum tíma því það sást mjög vel á mér hversu kvalin ég var. Ég svaf ekki og lá að mestu í rúminu að far- ast úr verkjum. Þetta var ekki góður tími,“ segir Stefanía. „Ég var á Kristnesi þar til í febrúar árið 2012 og var útskrifuð í raun þaðan án þess að vera nokkuð betri. Ég var á lyfjum á þeim tíma og var bara dofin. Sjúkraþjálfun á þeim tíma virkaði stundum og stundum ekki. Þarna fann ég að mér leið mjög illa andlega. Það var mjög erfitt að vera útskrifuð af Kristnesi með þeim orðum að það gæti tekið mig allt að fimm árum að ná styrk. Þarna var tilhugsunin erfið, að þurfa að vera svona slæm í fimm ár. Ég vissi ekkert út í hvað ég var að fara. Ég var komin á biðlista á Reykjalund en ég sá ekki hvernig ég átti að fara í gegnum lífið svona. Þegar ég slasast voru börnin mín sex ára og tíu ára. Sonur minn var að byrja í skólanum þennan veturinn. Mér fannst það óbærilegt að hafa ekki verið til staðar á þeim tíma. Ég kemst svo inn á Reykjalund vorið 2012 algerlega buguð. Þar tek ég ákvörðun um prestsnámið.“ Það var á þessum tíma sem Stef- anía sökk í hyldýpi sársaukans. „Það er ótrúlega sorglegt að hugsa til þess núna að mér hafi liðið svona illa. Það er rosalega sorglegt. Á sama tíma á ég mun auðveldara með að skilja þessa tilfinningu og það hjálp- ar mér sem presti í dag. Maður sér allt svart, maður sér ekkert ljós og maður sér ekki tilgang með neinu. Ég á tvö yndisleg börn og að maður virkilega geti hugsað svo myrkar hugsanir í þeirri stöðu að vera tveggja barna móðir er mjög sorglegt. Á tímabili sá ég ekki tilganginn. Ég hef svo sannar- lega kynnst m y r k r - inu.“ ... heldur hafa ljós lífsins Það var á myrkasta degi Stefaníu sem hún á endanum fann ljóstýruna og tók ákvörðun um að fylgja því. Og fylgir því enn. Í ritningunni, sem hún predikar nú yfir fermingarbörnum Glerárkirkju, segir Jesú að hann sé ljós heimsins. Sá sem fylgi honum muni ekki ganga í myrkri heldur hafa ljós lífsins. Það á svo sannarlega við um Stef- aníu sem ákvað á þeim tíma að venda kvæði sínu í kross, hætta bústörfum á Neðri-Rauðalæk í Hörgárdal og hefja nám í guðfræði við Háskólann á Akureyri. „Ég fann fyrir nærveru Guðs þegar mér leið hvað verst og síðan þá hef ég ákveðið að tileinka honum líf mitt. Ég var svo sem trúuð áður en slysið átti sér stað. Bæði kom ég í sunnudagaskóla hingað í Glerár- kirkju og ég sótti í trúna þegar dauðs- föll börðu dyra í fjölskyldunni. Hins vegar þegar ég horfi til baka þá hefur líf mitt breyst gríðarlega mikið síðan fyrir slys.“ Stefanía segir það skipta máli að geta miðlað af eigin reynslu og geta skilið líðan fólks sem gengur í gegnum sama myrkur, sömu and- legu angist, og hún þurfti að kljást við. Mikilvægt sé fyrir alla þá sem eiga við erfiðleika að stríða að muna að halda í vonina og trúna og leita að hjálpinni. „Ljósið er einmitt sterkt fyrir mér, dýrmætt og þakkarvert. Ég lít á þetta núna þannig að ég er þakklát fyrir að hafa kynnst þessu. Án þess þó að maður óski neinum þess að þurfa að ganga í gegnum svona erfiðleika. Þessa reynslu get ég nýtt mér í því starfi sem ég er í núna sem þjónandi prestur. Það skiptir svo miklu máli að tapa ekki voninni. Ljósið mun alltaf sigra myrkrið. Sama hversu erfiðar stundir þú upplifir í lífinu þá hjálpar vonin og trúin okkur áfram.“ Komin aftur heim Stefanía er nú komin aftur heim norður og sest að í Eyjafirðinum ásamt maka sínum, Hrafnhildi Eyþórsdóttur, en saman eiga þær fimm börn. Hún hefur ekki fundið fyrir höfuðverkjum í langan tíma, en þarf þó að takast á við öllu hvers- dagslegri hausverk sem fylgir því að vera stór fjölskylda í húsnæðisleit. Í millitíðinni býr fjölskyldan á Myrká í Hörgárdal hjá foreldrum Stefaníu. Eftir að Stefanía fór í sterasprautur og aðgerð á hálsi hefur líf hennar tekið stakkaskiptum. „Ég hef oft sagt það að ég væri til í að skipta um afmælisdag. Að afmælisdagur- inn minn sé dagurinn þegar ég fór í aðgerðina. Á þeim tímapunkti fékk ég líf mitt aftur. Því má með sanni sega að ég eigi tvo afmælis- daga,“ segir Stefanía og bætir við kímin: „Ég verð tveggja ára í vor.“ 3 0 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r32 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð 3 0 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :2 0 F B 1 3 6 s _ P 1 0 8 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 1 0 5 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D E 1 -B 3 9 8 1 D E 1 -B 2 5 C 1 D E 1 -B 1 2 0 1 D E 1 -A F E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 1 3 6 s _ 2 9 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.