Fréttablaðið - 30.09.2017, Side 36
S igga Heimis iðnhönnuður hafði umsjón með gerð vetrarlínu IKEA fyrir árið 2017 en línan er innblásin af Íslandi og einkennist af gráum tónum og hreinum
línum. Sigga hefur unnið lengi hjá
IKEA. „Ég er búin að vera viðloð-
andi IKEA í mörg ár en með hléum.
Ég var að vinna sem hönnuður á
sínum tíma. Svo varð ég svokallaður
„creative leader“ árið 2013, þessi
starfstitill hljómar svo asnalega á
íslensku: skapandi leiðtogi,“ segir
Sigríður, kölluð Sigga, og hlær.
„Ég fór í smá pásu frá IKEA og tók
starfi hér heima. En ég sagði því
starfi upp fyrir um tveimur vikum
til að fara aftur út til IKEA. Þetta er
nefnilega ofboðslega skemmtilegur
vinnustaður. Við erum svo stórt
fyrirtæki og ég tel að IKEA geti haft
svo mikil áhrif og breytt því hvernig
fólk í heiminum lifir.“
Hugmyndin var að fara norðar-
lega á hnöttinn
Þegar hugmyndavinna fyrir jóla-
eða vetrarlínu IKEA fyrir þetta ár
fór í gang kom fram uppástunga
um að fara norðarlega á hnöttinn
að sögn Siggu. „Þá benti ég nú á að
ég væri frá Íslandi sem væri ansi
norðarlega og teyminu fannst það
sniðugt, að vinna með íslenskan
tón,“ segir Sigga aðspurð hvernig
það kom til að vetrarlínan er inn-
blásin af Íslandi.
Sigríður fór þá í það að velja
íslenska hönnuði til að vinna
hluti í línuna og þau Guðbjörg
Kristín Ingvarsdóttir gullsmiður,
Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir
vöruhönnuður, Bergþóra Guðna-
dóttir fatahönnuður, Reykjavík
Letterpress og Ingibjörg Hanna
Björnsdóttir lögðu til dæmis sitt
af mörkum. Það voru samtals átta
hönnuðir sem unnu tillögur en
hlutir eftir Jón Helga Hólmgeirsson,
Guðrúnu Lilju Gunnlaugsdóttur og
Þórunni Árnadóttur fóru alla leið
og eru í jólalínunni í ár. „Þetta er
ástríða hjá mér, að koma hæfileika-
ríkum íslenskum hönnuðum að
Sótti íslenska landsliðið í hönnun
Sigga Heimis er himinlifandi með nýja vetrarlínu IKEA. FRÉTTABLAÐIÐ/ERnIR
Gráir tónar einkenna vetrarlínu IKEA þetta árið.
Nú styttist í að
nýjasta jólalína IKEA,
eða réttara sagt
vetrarlína, komi í
verslanir. Það vill svo
skemmtilega til að
sú lína er innblásin
af Íslandi og nokkrir
íslenskir hönnuður
lögðu sitt af mörkum
við gerð hennar.
hjá IKEA. Og það er alveg ótrúlega
gaman að fá að stýra svona verkefni
og ég tala nú ekki um þegar maður
getur náð í landslið okkar í hönnun
og notað það. Núna veit allt IKEA-
teymið líka miklu meira um Ísland
og ég er ofboðslega stolt. Íslensku
hönnuðirnir stóðu sig vel.“
Spurð nánar út í vetrarlínuna
segir Sigga að um afar stóra línu sé
að ræða. „Jóla- og vetrarlínur IKEA
eru flóknari en aðrar línur. Þessi
lína hefur til að mynda að geyma
um 240 vörunúmer, það er mjög
mikið. Venjulega eru um það bil 35
vörunúmer í hverri línu,“ útskýrir
Sigga sem segir afar fjölbreyttar
vörur vera í línunni, svo sem bök-
unarvörur, textílvörur, ljós og alls
kyns smávöru. „Þetta eru ekki bara
rauðar kúlur og kerti sko,“ segir hún
og skellir upp úr.
Vinna tvö ár fram í tímann
Sigga segir vandasamt að hanna
jóla- og vetrarlínur IKEA, ekki bara
vegna þess að þær eru stórar, heldur
einnig vegna þess að þær þarf að
byrja að vinna mjög snemma. „Þær
vörur sem eru að koma í verslanir
núna, þær voru teiknaðar fyrir um
það bil tveimur árum. Það er alltaf
unnið langt fram í tímann og það
tekur að lágmarki tvö ár fyrir vöru
að koma í búð frá því að hún er
teiknuð fyrst upp. Við erum til
dæmis búin að vinna línu fyrir jólin
2018.“
Er ekkert erfitt að vinna svona
langt fram í tímann? „Jú, það er svo-
lítið skrýtið. Það er smá spes að
vera að teikna jólaskraut í mars,“
segir Sigga og hlær. „Maður verður
að vera klókur og safna innblæstri
snemma. Sama á við um sumar-
vörur, maður er að teikna ein-
hverjar sólhlífar og sumardrykki, í
nóvember.
Við gerð jólalínu þarf líka að
huga að ólíkum hefðum á milli
landa. Við reynum auðvitað að
þjóna sem stærstum hóp. Jólahefðir
eru auðvitað mismunandi og þess
vegna er ég fegin að þessi lína er
ekki beint tengd við jólahátíðina
eða trúarlegar hefðir heldur frekar
vetrartímann eins og hann leggur
sig.“
Aðspurð hvernig henni líði við
að sjá vetrarlínuna nú þegar hún er
tilbúin kveðst Sigga vera himinlif-
andi. „Ég er mikið fyrir einfaldleika
í hönnun, tímaleysi og að leyfa efni
og áferð að njóta sín. Og þannig er
vetrarlínan,“ segir Sigga sem mun
klárlega skreyta heimili sitt hátt og
lágt með munum úr nýjustu vetrar-
línu IKEA.
NúNa veit allt iKea-
teymið líKa miKlu
meira um íslaNd og ég
er ofboðslega stolt.
Guðný
Hrönn
gudnyhronn@365.is
3 0 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r36 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
3
0
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
0
F
B
1
3
6
s
_
P
1
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
E
1
-8
C
1
8
1
D
E
1
-8
A
D
C
1
D
E
1
-8
9
A
0
1
D
E
1
-8
8
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
3
6
s
_
2
9
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K