Fréttablaðið - 30.09.2017, Page 36

Fréttablaðið - 30.09.2017, Page 36
S igga Heimis iðnhönnuður hafði umsjón með gerð vetrarlínu IKEA fyrir árið 2017 en línan er innblásin af Íslandi og einkennist af gráum tónum og hreinum línum. Sigga hefur unnið lengi hjá IKEA. „Ég er búin að vera viðloð- andi IKEA í mörg ár en með hléum. Ég var að vinna sem hönnuður á sínum tíma. Svo varð ég svokallaður „creative leader“ árið 2013, þessi starfstitill hljómar svo asnalega á íslensku: skapandi leiðtogi,“ segir Sigríður, kölluð Sigga, og hlær. „Ég fór í smá pásu frá IKEA og tók starfi hér heima. En ég sagði því starfi upp fyrir um tveimur vikum til að fara aftur út til IKEA. Þetta er nefnilega ofboðslega skemmtilegur vinnustaður. Við erum svo stórt fyrirtæki og ég tel að IKEA geti haft svo mikil áhrif og breytt því hvernig fólk í heiminum lifir.“ Hugmyndin var að fara norðar- lega á hnöttinn Þegar hugmyndavinna fyrir jóla- eða vetrarlínu IKEA fyrir þetta ár fór í gang kom fram uppástunga um að fara norðarlega á hnöttinn að sögn Siggu. „Þá benti ég nú á að ég væri frá Íslandi sem væri ansi norðarlega og teyminu fannst það sniðugt, að vinna með íslenskan tón,“ segir Sigga aðspurð hvernig það kom til að vetrarlínan er inn- blásin af Íslandi. Sigríður fór þá í það að velja íslenska hönnuði til að vinna hluti í línuna og þau Guðbjörg Kristín Ingvarsdóttir gullsmiður, Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir vöruhönnuður, Bergþóra Guðna- dóttir fatahönnuður, Reykjavík Letterpress og Ingibjörg Hanna Björnsdóttir lögðu til dæmis sitt af mörkum. Það voru samtals átta hönnuðir sem unnu tillögur en hlutir eftir Jón Helga Hólmgeirsson, Guðrúnu Lilju Gunnlaugsdóttur og Þórunni Árnadóttur fóru alla leið og eru í jólalínunni í ár. „Þetta er ástríða hjá mér, að koma hæfileika- ríkum íslenskum hönnuðum að Sótti íslenska landsliðið í hönnun Sigga Heimis er himinlifandi með nýja vetrarlínu IKEA. FRÉTTABLAÐIÐ/ERnIR Gráir tónar einkenna vetrarlínu IKEA þetta árið. Nú styttist í að nýjasta jólalína IKEA, eða réttara sagt vetrarlína, komi í verslanir. Það vill svo skemmtilega til að sú lína er innblásin af Íslandi og nokkrir íslenskir hönnuður lögðu sitt af mörkum við gerð hennar. hjá IKEA. Og það er alveg ótrúlega gaman að fá að stýra svona verkefni og ég tala nú ekki um þegar maður getur náð í landslið okkar í hönnun og notað það. Núna veit allt IKEA- teymið líka miklu meira um Ísland og ég er ofboðslega stolt. Íslensku hönnuðirnir stóðu sig vel.“ Spurð nánar út í vetrarlínuna segir Sigga að um afar stóra línu sé að ræða. „Jóla- og vetrarlínur IKEA eru flóknari en aðrar línur. Þessi lína hefur til að mynda að geyma um 240 vörunúmer, það er mjög mikið. Venjulega eru um það bil 35 vörunúmer í hverri línu,“ útskýrir Sigga sem segir afar fjölbreyttar vörur vera í línunni, svo sem bök- unarvörur, textílvörur, ljós og alls kyns smávöru. „Þetta eru ekki bara rauðar kúlur og kerti sko,“ segir hún og skellir upp úr. Vinna tvö ár fram í tímann Sigga segir vandasamt að hanna jóla- og vetrarlínur IKEA, ekki bara vegna þess að þær eru stórar, heldur einnig vegna þess að þær þarf að byrja að vinna mjög snemma. „Þær vörur sem eru að koma í verslanir núna, þær voru teiknaðar fyrir um það bil tveimur árum. Það er alltaf unnið langt fram í tímann og það tekur að lágmarki tvö ár fyrir vöru að koma í búð frá því að hún er teiknuð fyrst upp. Við erum til dæmis búin að vinna línu fyrir jólin 2018.“ Er ekkert erfitt að vinna svona langt fram í tímann? „Jú, það er svo- lítið skrýtið. Það er smá spes að vera að teikna jólaskraut í mars,“ segir Sigga og hlær. „Maður verður að vera klókur og safna innblæstri snemma. Sama á við um sumar- vörur, maður er að teikna ein- hverjar sólhlífar og sumardrykki, í nóvember. Við gerð jólalínu þarf líka að huga að ólíkum hefðum á milli landa. Við reynum auðvitað að þjóna sem stærstum hóp. Jólahefðir eru auðvitað mismunandi og þess vegna er ég fegin að þessi lína er ekki beint tengd við jólahátíðina eða trúarlegar hefðir heldur frekar vetrartímann eins og hann leggur sig.“ Aðspurð hvernig henni líði við að sjá vetrarlínuna nú þegar hún er tilbúin kveðst Sigga vera himinlif- andi. „Ég er mikið fyrir einfaldleika í hönnun, tímaleysi og að leyfa efni og áferð að njóta sín. Og þannig er vetrarlínan,“ segir Sigga sem mun klárlega skreyta heimili sitt hátt og lágt með munum úr nýjustu vetrar- línu IKEA. NúNa veit allt iKea- teymið líKa miKlu meira um íslaNd og ég er ofboðslega stolt. Guðný Hrönn gudnyhronn@365.is 3 0 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r36 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð 3 0 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :2 0 F B 1 3 6 s _ P 1 1 2 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 1 0 1 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D E 1 -8 C 1 8 1 D E 1 -8 A D C 1 D E 1 -8 9 A 0 1 D E 1 -8 8 6 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 1 3 6 s _ 2 9 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.