Fréttablaðið - 30.09.2017, Page 50

Fréttablaðið - 30.09.2017, Page 50
Ég hef alltaf málað með, skissað og teiknað og fengið útrás fyrir öðruvísi sköpunar- þörf. Brynhildur Björnsdóttir brynhildur@365.is Þetta er sjöunda einkasýning Aðalbjargar sem er sennilega þekktust fyrir svanamyndir sínar en á þessari sýningu leggur hún meiri áherslu á skuggann sem er stundum talað um sem hindrun en getur líka búið yfir okkar leyndustu þrám. Aðalbjörg hefur verið grafískur hönnuður meirihluta starfsævi sinnar. „Ég ætlaði upphaflega að verða listmálari en fann tiltölu- lega snemma að það sem fylgdi því, eins og að koma sér á framfæri og óöryggi í afkomu, átti ekki við mig. En mér finnst mjög gaman að vera grafískur hönnuður svo það var ekki nein fórn þannig séð að færa sig þar yfir. Allt snýst þetta að lokum um samspil lita og forma og sköpunar,“ segir Aðalbjörg sem átti samt erfitt með að sleppa penslunum. „Ég hef alltaf málað með, skissað og teiknað og fengið útrás fyrir öðruvísi sköpunarþörf. Svo var það kringum 2000 að ég fór að mála svani. Þetta eru svanir sem eru í raun ekki til heldur það sem svanir standa fyrir. Það eru til goðsagnir um svani hjá öllum þjóðum, þeir eru svo tignarlegir og í einhverjum texta sagði að þeir væru eins konar hlekkur eða brú milli himins og jarðar, eitthvað andlegt og upphafið. Ég held að ég sé alltaf að leita að einhverju stóru, einhverju yfirskilvitlegu og yfir- náttúrulegu án þess að vita hvað það er. Og svo fegurðinni. Það er svo mikil fegurð í svönunum og ég dregst að því sem er fallegt, finnst gott að geta losað mig við alls konar leiðindatilfinningar inni í svona fallegum heimi. Kannski er þetta flótti líka. En þurfa ekki allir flóttaleið öðru hvoru?“ Aðalbjörg, eða Abba, málaði síðustu svanamyndina árið 2014. „Ég fann að ég var búin með þetta tímabil og þyrfti að fara að finna mér eitthvað annað. Og það gekk brösuglega. En svo fór ég að velta fyrir mér og skoða hvað gerist þegar sól eða birta fellur á form. Því öll form hafa skugga og skugginn dýpkar formin og breytir þeim. Ég byrjaði, sjálfri mér trú, að mála blóm því þau eru falleg og heillandi hvernig skuggum þau varpa. Og svo fór ég að hugsa um að það er líka til óeiginleg merking í skugganum, það er talað um að eitthvað sé skuggsælt en svo er líka talað um að standa í skugganum af einhverjum eða að eitthvað sé skuggalegt. Ég fór að velta skuggum fyrir mér og nota minn eigin skugga. Ég tók utan um hann og málaði það sem mig langaði að setja inn í hann. Það gátu verið mínar eigin hugsanir eða langanir eða eitthvað sem ég vildi koma á framfæri. Ég endaði vinnuna þar sem ég var farin að nota skuggann til að segja eitthvað. Og ég kalla sýninguna Skuggsjá konu.“ Sýningin verður opnuð í Galleríi Fold á Rauðarárstíg í dag, laugardag, kl. 14 og eru allir velkomnir. Sýn- ingin stendur fram til 14. október. Alltaf að leita að fegurðinni Aðalbjörg Þórðardóttir myndlistarkona opnar í dag myndlistarsýninguna Skuggsjá konu í Galleríi Fold. Hún málar skemmtilega skugga en er líklega þekktust fyrir svanamyndirnar sínar. Aðalbjörg Þórðardóttir, eða Abba, við nokkur verkanna á sýningunni sem verður opnuð í dag, laugardag, í Galleríi Fold þar sem hún fjallar meðal annars um sam- band konu og skugga. Græna myndin heitir Af jörðu og sú bláa Hugarflug. MYND/VILHELM „Það eru til goðsagnir um svani hjá öllum þjóðum, þeir eru svo tignarlegir.“ „Ég tók utan um skuggann og málaði það sem mig langaði að setja inn í hann.“ 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 0 . S E P T E M B E R 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R 3 0 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :2 0 F B 1 3 6 s _ P 0 9 0 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 8 7 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D E 1 -F 8 B 8 1 D E 1 -F 7 7 C 1 D E 1 -F 6 4 0 1 D E 1 -F 5 0 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 1 3 6 s _ 2 9 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.