Fréttablaðið - 30.09.2017, Síða 96
Algengasta jóla-
gjöfin virðist vera
gjafakort af einhverju
tagi. Þriðjungur svar-
enda fékk gjafakort í
jólagjöf.
Með því að gefa starfsmanninum jólagjöf sýnir vinnuveitandinn þakklæti fyrir vinnuframlag. NORDICPHOTOS/GETTY
Jólagjafir eru algengastar í bygginga- og mannvirkjagerð en þrír af hverjum fjórum í
þeim bransa segjast alltaf fá jóla-
gjafir. Öðru máli gegnir um heil-
brigðisgeirann. Þar segja aðeins
fjórir af hverjum tíu að þeir fái
jólagjafir, eða 41 prósent.
Algengasta jólagjöfin virðist
vera gjafakort af einhverju tagi.
Þriðjungur svarenda fékk gjafa-
kort í jólagjöf. Gjafakort geta verið
peningagjafir, upphæð í matvöru-
verslun eða ákveðinni gjafavöru-
verslun. Næstvinsælasta gjöfin var
matarkarfa, venjulega með kjöti
og meðlæti. Eldhúsáhöld voru vin-
sælli til gjafa en fatnaður, rúmföt
eða handunnin vara. Bækur voru
vinsælar svo og áfengi. Það vakti
athygli að einhvers konar góð-
gerðargjafir, það eru gjafir sem
styrkja gott málefni, náðu ekki hátt
á listann. Þrátt fyrir það hefur verið
lögð mikil áhersla á það í Svíþjóð
að gefa gjöf sem kemur fátækum til
góða. Eitt sænskt fyrirtæki ákvað
ein jólin að gefa þann pening sem
átti að fara í jólagjafir til starfs-
manna til SOS barnaþorpa. Ekki
fylgdi sögunni hvort starfsmenn
hafi allir verið sáttir við það.
Alls tóku 4.732 þátt í könnun-
inni. Einungis 42 prósent svarenda
voru ánægð með síðustu jólagjöf
frá vinnuveitanda. Um helmingur
var stundum ánægður með jóla-
gjöfina en stundum ekki, gjafirnar
voru sem sagt mismunandi á milli
ára. Sjö prósent svarenda voru
alltaf hundóánægð með jóla-
gjöfina. Í sumum fyrirtækjum eru
gefnar jólagjafir til starfsmanna og
einnig góðra viðskiptavina.
Mörgum vinnuveitendum finnst
erfitt að finna réttu gjöfina handa
starfsmönnum sínum. Þeir hafa
mismunandi þarfir og smekk.
Flestir eru ánægðir með matar-
körfu eða gjafakort. Vinnuveit-
endur segja að nauðsynlegt sé að
gefa starfsmönnum jólagjafir, það
efli andann innan fyrirtækisins.
Þær þurfa ekki að vera mjög dýrar
heldur sýna að vinnuveitandinn
kunni að meta starfsmanninn og
sýni þakklæti fyrir vinnuframlag
hans.
Flestir starfsmenn fá jólagjafir
Sænsk könnun sýnir að 57 prósent launþega fá jólagjöf frá vinnuveitanda sínum á hverju ári. Um
22 prósent hafa aldrei fengið jólagjöf á vinnustað. Það var Manpower Work sem gerði könnunina.
SÆLKERAVÖRUR ÚR ÍSLENSKRI NÁTTÚRU
URTA ISLANDICA - WWW.URTA.IS - URTA@URTA.IS - +354 4701300
Við sérhæfum okkur í framleiðslu á matargjafarvöru úr íslenskum jurtum og berjum,
sem hentar ákaflega vel sem jólagjöf fyrir starfsmanninn eða leynigjöf fyrir starfsfélagana.
Hægt er að fá allar vörur Urtu með sérmerkingu, lógói fyrirtækisins eða jólakveðju.
Við útbúum gjafakörfur og jólapakka eftir þínum óskum.
SÉRMERKTAR JÓLAGJAFIR FYRIR STARFSMENN OG VIÐSKIPTAVINI
Einstök jurta- og berjakryddsölt, jurtate, sultur og sýróp. Kíktu á úrvalið - www.urta.is.
16 KYNNINGARBLAÐ 3 0 . S E P T E M B E R 2 0 1 7 L AU G A R DAG U RFYRIRTÆKJAGJAFIR
3
0
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
0
F
B
1
3
6
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
E
1
-B
D
7
8
1
D
E
1
-B
C
3
C
1
D
E
1
-B
B
0
0
1
D
E
1
-B
9
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
3
6
s
_
2
9
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K