Fréttablaðið - 30.09.2017, Side 102

Fréttablaðið - 30.09.2017, Side 102
Hasarinn, ástríðan og fá að skapa eitt-hvað nýtt,“ segir Þráinn Freyr Vig-fússon spurður um hvað það er sem heillar svo mjög við matreiðslu. Þráinn Freyr rekur veitingastaðinn Sumac á Laugavegi við miklar vin- sældir. Réttir staðarins eru undir áhrifum frá Líbanon og Mar- okkó. Þráni Frey fannst vanta nýja strauma í matarmenningu Reykja- víkur. Á meðal vinsælustu rétta staðarins er ofnbakað blómkál sem  hann gefur lesendum uppskriftina að. Hann er alls óhræddur við það að gestir hætti við að koma á veit- ingastaðinn þótt hann gefi upp leyndarmálin. „Það skiptir máli hvernig þetta er gert og andrúms- loftið er ekki síður mikilvægt þegar maður borðar góðan mat,“ segir Þráinn Freyr sem undirbýr opnun nýs veitingastaðar inn af Sumac. Þar sem gestir geta setið í ró og næði. „Hann mun eiga sitt nafn og matur- inn er úr annarri átt en Sumac,“ segir Þráinn Freyr leyndardómsfullur. Falafel Uppskrift fyrir 4 500 g kjúklingabaunir 1 stk. grilluð paprika 3 stk. bakaðir hvítlauksgeirar 1 stk. laukur 25 g kóríander 60-80 g maizena Salt, svartur pipar, cumen Laukurinn er svitaður í potti, svo eru kjúklingabaunir, paprika, hvítlaukur, laukur og kóríander sett í matvinnsluvél og unnið saman. Þá er þetta smakkað til með salti, pipar og kúmeni og svo þykkt með maizena. Djúpsteikt á 180°C í 3-4 mínútur. Kryddjurta jógúrtsósa 200 g grískt jógúrt 50 g dill 30 g mynta Salt Lime safi Jógúrtið, dillið og myntan er unnið saman í blandara þar til sósan hefur fengið fallegan grænan lit, því næst er hún krydduð til með salti og lime safa. Bakað blómkál 2 stk. blómkál Blómkálið er soðið í 6 mínútur, því næst kryddað með kryddblönd- unni og bakað inni í ofni á 190°C í 15 mínútur eða þar til blómkálið er orðið gullinbrúnt. Blómkálið er síðan borið fram með jógúrtsósu, granateplum og ristuðum möndlu- flögum. Kryddblanda 10 g salt 5 g sykur 5 g malað kúmen 3 g ristuð og möluð kóríanderfræ Öllu blandað saman. Jógúrtsósa 200 g grísk jógúrt 30 g kúmen 30 g tahini Salt, pipar, sítrónusafi Jógúrt, tahini og kúmeni er blandað saman og smakkað til með salti, pipar og sítrónu. Granatepla vinaigrette 1stk. granatepli 1stk. appelsína 50 ml ólífuolía 25 ml eplaedik Salt, hunang Granateplið er opnað og fræin tekin úr, safanum og berkinum af einni appelsínu er bætt við ásamt olíunni og edikinu og því næst er það smakkað til með salti og hunangi. Jógúrt ís 600 ml mjólk 200 g sykur 160 g glúkósi 800 g jógúrt 6 g stabilizer /hægt að nota líka 3 stykki matarlímsblöð Safi úr einni sítrónu Mjólk, sykur og glúkósi hitað að suðu, þá er stabilizerinn(eða matarlímsblöð) hrærður saman við og blandan kæld. Jógúrtið er svo hrært saman við kalda blönduna ásamt sítrónusafanum. Sett í ísvél og hrært upp. Sumac Graníta 500 l vatn 100 g sykur 1 blað matarlím 25 g sumac 250 g jarðarber Leggið matarlímsblöðin í kalt vatn. Vatn og sykur er soðið upp, svo er matarlími bætt út í og hrært saman við, kælið svo blönduna. Vinnið allt saman í blandara og sigtið. Frystið í stáldalli og skafið svo upp með gaffli. Sítrónukrem 100 g sítrónusafi 10 g sítrónubörkur 120 g sykur 70 g eggjarauður 1 g salt 130 g smjör Xantana 1 kanilstöng 1 stk. kardimomma Setjið saman í pott sítrónusafa, börk, kanil, kardimommur, egg og sykur. Vinnið yfir hita rólega þar til eggin hafa eldast og náð góðri þykkt. Setjið í blandara og takið frá kanilinn og kardimommuna. Vinnið blönduna smátt og smátt með smjöri. Smakkið til með sykri og salti. Skerið niður jarðarber og skreytið með þeim. Miðausturlensk matarveisla Þráinn Freyr Vigfússon kokkur á veitingastaðnum Sumac gefur lesendum uppskrift að miðausturlenskri veislu sem er einkar við- eigandi á haustin. Kryddaðar og hlýlegar krásir. Þráinn Freyr Vigfússon rekur Sumac á Laugavegi við miklar vinsældir. Bakað blómkál á miðausturlenskan máta með flatbrauði. Ferskur eftirréttur undir líbönskum áhrifum. FréttaBLaðið/EyÞór ÍSLENSKT TÍSKUTÍMARIT KOMIÐ Í ALLAR HELSTU VERSLANIR Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is 3 0 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r38 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð 3 0 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :2 0 F B 1 3 6 s _ P 1 1 1 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 1 0 2 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D E 1 -9 1 0 8 1 D E 1 -8 F C C 1 D E 1 -8 E 9 0 1 D E 1 -8 D 5 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 1 3 6 s _ 2 9 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.