Fréttablaðið - 30.09.2017, Side 116

Fréttablaðið - 30.09.2017, Side 116
Listaverkið Hún Elsa María Kolbeinsdóttir teikn- aði og litaði þessa mynd af hamingju- samri kisu undir regnboga. Kristín Hildur Karlsdóttir á heima á Hvanneyri í Borgarfirði og er tíu ára og elst í sínum skóla.   Kristín Hildur, í hvaða skóla ertu? Ég er í Grunnskóla Borgarfjarðar, Hvanneyrardeild. Eru margir í þeirri deild? Þeir eru tuttugu og fjórir, ef ég man rétt og þeir eru allir vinir mínir. Ekki eru þeir allir jafngamlir þér? Nei, ég held að ég sé elst í skólanum, ég er elst í mínum bekk og á næsta ári þarf ég að fara annaðhvort í Borgarnesskóla eða í skólann á Kleppjárnsreykjum. Ertu lengi í skólanum á hverjum degi? Ég er ýmist frá hálf níu til tvö eða frá níu til korter í þrjú í skólan- um. Þar borða ég bæði morgunmat og hádegismat. Hvað finnst þér skemmtilegast að læra í skólanum? Mér finnst skemmtilegast að læra ensku, hönn- un og smíði. Er langt síðan þú byrjaðir að læra ensku? Já, eiginlega. Ég var svona þriggja ára þegar ég sagði fyrsta enska orðið, segir mamma. Svo byrjaði ég að tala ensku þegar ég var fimm ára. Hvað gerir þú svo fyrir utan skól- ann? Leik við vini mína, eða er í tölvunni eða spila á píanóið. Það eru samt ekkert mjög margir hér á Hvanneyri sem ég leik við en það eru nokkrir uppi í sveit og þangað fer ég stundum. Hvað var það skemmtilegasta sem þú gerðir í sumar? Það skemmti- legasta var að leika við vini mína og fara til pabba sem býr á Kópaskeri og hitta bestu vinkonu mína sem býr þar í sveitinni rétt hjá. Svo var líka æðislegt að vera við giftinguna hennar mömmu. Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Mig langar að verða bóndi, því ég er mjög hrifin af dýrum og mig langar að eiga fullt af þeim. Langar að verða bóndi Kristín Hildur er ánægð með lífið í sveitinni. Fréttablaðið/Ernir Það skemmtiLeg- asta var að  Leika við vini mína og fara tiL pabba sem býr á kópaskeri. Sá þriðji hleypur Tveir og tveir þátttakendur para sig saman, dreifa sér um leikvöll eða sal og stilla sér upp þannig að annar stendur fyrir framan hinn. Eitt parið byrjar á miðju svæðinu og sá sem stendur framar hleypur af stað en hinn reynir að ná honum. Sá sem er að flýja getur bjargað sér með því að stoppa fyrir aftan eitt- hvert annað par. Þá þarf sá fremri af því pari að hlaupa af stað og komast aftur fyrir annað par áður en honum er náð og þannig koll af kolli. Ef einhver er gómaður áður en hann getur bjargað sér verður hann sá sem eltir en hinn flýtir sér að komast á bak við eitthvert parið. Svona getur leikurinn gengið þar til frímínúturnar eru búnar, allir eru uppgefnir eða samtaka um að hætta. Leikurinn „Þar fór í ver,“ sagði Konráð. „Okkur liggur á en þurfum að komast í gegnum þetta völundarhús fyrst.“ Hann dæsti og bætti við vonsvikinn, „við verðum of sein.“ „Of sein, of sein,“ sagði Kata pirruð. „Hvað gerir til að vera aðeins of sein?“ bætti hún við. En Lísaloppa og Konráð voru ekki sammála. Þau vildu mæta á réttum tíma. Konráð á ferð og flugi og félagar 269 Getur þú hjálpað þeim að komast í gegnum völundarhúsið? ?? ? 3 0 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r52 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð krakkar 3 0 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :1 9 F B 1 3 6 s _ P 1 1 6 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 9 7 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D E 1 -6 4 9 8 1 D E 1 -6 3 5 C 1 D E 1 -6 2 2 0 1 D E 1 -6 0 E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 1 3 6 s _ 2 9 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.