Fréttablaðið - 14.10.2017, Side 24
Guðrún er menntuð í kvikmyndagerð og grafískri hönnun og frumsýndi í gær Sumarbörn, sína fyrstu kvikmynd í
fullri lengd.
„Sumarbörn er baráttusaga ungra
systkina sem eru send að heiman
vegna erfiðra heimilisaðstæðna. Ég
og bróðir minn vorum aðeins fimm
ára gömul þegar við vorum send í
sumardvöl. Mamma var einstæð
með þrjú börn, mig, bróður minn og
eldri systur. Í þá daga var lítil þekk-
ing á tilfinningalífi og þroska barna.
Það var mjög erfitt að vera svona
ung skilin frá þeim sem maður
elskar og treystir,“ segir Guðrún og
þótt hún muni ekki eftir ákveðnum
atvikum sé tilfinningin um vanmátt
enn fyrir hendi.
„Ég var svo ung að ég man bara
þessa tilfinningu að vera varnar-
laus, að því leyti að maður réð ekki
aðstæðum sínum á þessum árum
þegar barn þarf ást og umhyggju.
Þess í stað mæta börnunum strang-
ar reglur. Það má ekki gráta, það
þykir bara frekja. Það er hvorki
hlustað á börnin né rætt við þau.
Þeim er ekki sýnd nægjanleg alúð.
Þetta er grundvallarþáttur í þroska
barna og hefur áhrif á þau alla ævi.
Ég var sterkari tvíburinn og var
svolítið í því að verja bróður minn,“
segir Guðrún.
„Sagan gerist í kringum 1960. Þá
voru aðrir tímar en í dag í Reykja-
vík og samfélagið skorti ákveðna
þjónustu. Það var mikil húsnæðis-
ekla og margir bjuggu við vondan
húsakost, í kjallaraíbúðum
fullum af sagga. Það voru ekki
barnaheimili á hverju horni og
félagslega kerfið var veikt.“
Staðurinn sem Guðrún bygg-
ir að einhverju leyti handritið
á er Silungapollur. „Silunga-
pollur er stofnaður upp úr
1920 af Oddfellow-reglunni
og það er gert af góðum hug.
Silungapollur var ekki eini
staðurinn sem börn voru send
til. Það voru nokkrir staðir vítt og
breitt um landið. Sum börn áttu
ekki í nein hús að venda og dvöldu
allt árið á þessum heimilum, áttu í
raun heima þarna og voru kölluð
vetrarbörn. Hins vegar eru börnin
í myndinni send til sumardvalar,“
segir Guðrún frá.
Guðrún segir samstarfið við öll
börnin sem léku í myndinni hafa
verið dásamlegt. „Mest mæddi á
Stefán Erni, Kristjönu Thors og
Margréti Birtu en Krist-
jana og Stefán eru nánast í öllum
senum myndarinnar. Í fyrstu var
mikið fjör að leika í bíómynd og
gaman en þegar leið á tökur fór
fjörið að minnka. Stefán Örn var
ekki lengi að læra „lingóið“ og sagði
„cut!“ í miðri töku þegar hann var
búinn að fá nóg. Kristjana var mjög
skýr og sagði hreint út: „Ég nenni
ekki lengur að vera í þessari bíó-
mynd,“ og gekk út af settinu. En
þau voru ótrúlega góð öllsömul
og leikþjálfi barnanna, María
Sigurðar, var mér stoð og stytta.
Ég átti margar skemmtilegar
samræður við börnin. Þau vissu
að söguþráðurinn tengdist mér og
voru forvitin um það. Þau spurðu
mig stundum: „Guðrún, var þetta
svona?“ Í sögunni reyna til dæmis
systkinin að flýja og þau vildu vita
hvort það hefði gerst í alvörunni. Ég
svaraði sannleikanum samkvæmt
að það hefðum við ekki getað gert
því við vorum svo ósköp lítil. „En nú
get ég það, því í sögunni get ég gert
allt.“ kristjanabjorg@frettabladid.is
„Mamma var einstæð með þrjú börn, mig, bróður minn og eldri systur. Í þá daga var lítil þekking á tilfinningalífi og þroska barna,“ segir Guðrún um vist sína á Silungapolli.
Húsnæðisekla í Reykjavík olli því m.a. að börn voru send í sumarvist.
Myndin Sumarbörn
er byggð á per-
sónulegri reynslu
Guðrúnar Ragnars-
dóttur, leikstjóra
myndarinnar, og tví-
burabróður hennar
þegar þau voru send
á vistheimili úti á
landi sem börn.
Í sögunni
get ég gert allt
Þess í stað mæta
böRnunum stRanG-
aR ReGluR. Það má
ekki GRáta, Það
ÞykiR baRa fRekja.
Guðrún
Ragnarsdóttir
Um helgina
lestu
Litla bókabúðin í hálönd-
unum eftir Jenny Colgan.
Bókin segir frá Ninu Red-
mond sem veit fátt betra
en að gleyma sér í góðri
skáldsögu. Hún vinnur á
bókasafni í
Birmingham
en þegar
bókasafnið
er sam-
einað öðru
safni vegna
hagræðing-
ar stendur
Nina á
tíma-
mótum.
kúRað með syninum
Young Karin er að taka upp vídeó
fyrir lag sem við syngjum saman í
og ég lít stuttlega við í þeim tökum
en ætla annars að taka því rólega
og reyna að kúra sem mest með
nýfæddum syni mínum.
skálað
fyRiR plötu-
útGáfu
Um helgina
ætla ég í af-
mæli og skála
í leiðinni fyrir
fyrstu útgáfu-
viku plötunnar
minnar, Sinking
Island. Annars
ætla ég mér að
nýta helgina vel
í undirbúning
á nótum fyrir
útgáfutónleikana
mína sem verða
í nóvember og
live-settið mitt
fyrir Airwaves-há-
tíðina
skoðaðu
Síðasta sýningarhelgi
sýningarinnar Samskeyt-
ingar í Listasafni Sigurjóns
Ólafssonar er þessi helgi.
Safnið er opið á laugar-
dögum og sunnudögum frá
kl. 14.00-17.00.
tónleikaR
á seltjaRnaRnesi
Ég er allavega að fara að spila á
Menningarhátíð Seltjarnarness.
Þar verðum við
Pétur Ben með
tónleika í Fé-
lagsheimilinu
á Seltjarnar-
nesi. Stefnir
í stórgott
kósíkvöld.
María Magnúsdóttir tónlistarkona.
Logi Pedro, tónlistarmaður
og nýbakaður faðir.
Lovísa
Elísabet,
eða Lay
Low
1 4 . o k t ó b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r24 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
helgin
1
4
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
F
8
-C
F
F
4
1
D
F
8
-C
E
B
8
1
D
F
8
-C
D
7
C
1
D
F
8
-C
C
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
1
2
s
_
1
3
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K