Fréttablaðið - 14.10.2017, Side 36

Fréttablaðið - 14.10.2017, Side 36
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um- fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365. is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.Is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433 Ragnheiður Tryggvadóttir heida@365.is Við Pétur Ben höfum lengi verið vinir og þekkjumst því vel. Okkur finnst mjög skemmti- legt að hafa verið beðin um að koma fram og ákváðum strax að splæsa tónleikana saman,“ segir Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, eða Lay Low tónlistarkona, en þau Pétur koma fram á Menningarhátíð Seltjarnar- ness í kvöld þar sem þau flytja bæði glænýtt og gamalt. „Ég mun flytja efni úr öllum áttum, allt frá því áður en Lay Low varð til og líka ný lög. Ég veit að Pétur verður með fullt af efni sem ekki hefur komið út áður. Við höfum æft okkur mikið og ég held að þetta verði mjög kósí,“ segir Lovísa en það er talsvert langt síðan hún tróð upp síðast. „Ég hef verið í góðri pásu. Steig af sviðinu ef svo má segja en þó ekki alveg. Ég fór til dæmis með Fjalla- bræðrum til Abbey Road í fyrra þar sem þeir tóku upp plötu. Svo kíkti ég í Havarí í sumar, var bara í fríi og á ferðalagi um landið og skellti í eina tónleika þarna fyrir austan. Annars hef ég verið að taka það rólega með litla strákinn heima,“ segir hún en hún eignaðist drenginn Fróða Stefán með sambýliskonu sinni, Agnesi Ernu Estherardóttur, 2015. Á sínum tíma var því slegið fram að Lovísa hefði falið óléttuna fyrir öllum nema sínum nánustu. Hún segir það hins vegar tóma vitleysu. Meðgangan gekk vel og Fróði er nýbyrjaður á leikskóla. „Hann er að verða tveggja ára og við höfum haft það fínt saman. Ég ákvað að gefa mér þennan tíma með honum af því að ég gat gert það og líka til að kúpla mig aðeins út. Ég hafði verið á tónleikaferðalagi meira og minna, bæði hér heima og úti, í ein tíu ár. Það var alveg kominn tími á pásu, reyna að ná tengingunni og finna aftur spennu í því sem ég var að gera. Mér finnst ég vera búin að því núna,“ segir hún. Hún hafi séð fæðingarorlofið í hillingum þar sem nægur tími gæfist til þess að semja. „Frítíminn“ hafi reyndar ekki verið eins rúmur og hún hélt. „Ég strauk á mér bumbuna og sá fyrir mér hvernig ég myndi semja tónlist og taka upp heila plötu í fæðingarorlofinu, litla barnið yrði bara með mér í stúdíóinu. Það varð ekki alveg,“ segir hún sposk. „Fyrstu mánuðirnir fóru í að horfa á hann og eftir því sem hann eltist og færði sig upp á skaftið varð svo sannar- lega ekki tími til neins. Nú er hann kominn á leikskóla og þess vegna er ég komin af stað með mitt.“ Hún hafi ekki verið einmana eða einangruð í fæðingarorlofinu þó hún hafi kúplað sig út og saknaði ekki hamagangsins úr tónlistarlífinu né miðbæjarlífsins. Litla fjölskyldan festi kaup á gömlu húsi rétt fyrir utan Hveragerði og flutti allt sitt hafurtask upp í sveit. Hveragerði „The Hood“ „Ég var svo tilbúin í þetta. Ég var búin að vera svo mikið í kringum fólk, koma fram fyrir framan fjölda fólks, alltaf innan um ókunnuga að „mingla“. Ég var alveg tilbúin í að flytja út í sveit og hitta ekki neinn,“ segir hún. „Sveitalífið á vel við mig. Þetta er draumastaður þar sem ég er með stúdíó heima til að vinna. Ég fer auðvitað oft til Reykjavíkur en það er gott að eiga sitt rými. Við bjuggum niðri í miðbæ og þetta var spurning um að vera í lítilli íbúð í bænum eða taka sénsinn og flytja út í sveit og geta þá keypt stærra. Nú er Hveragerði „The Hood“!“ segir hún brosandi. „Þar er Fróði í leikskóla og við kaupum í matinn. Það er fullt af fínum stöðum til að hanga á og allt sem maður þarf, yndisleg náttúra allt í kring og nú eru allur gróðurinn í haustlitunum. Svo kynnist maður fólki í bakaríinu og í sundi. Það er góð stemming í Hveragerði. Þegar maður býr svona uppi í sveit fær maður líka allt öðruvísi heimsóknir en í bænum. Fólk stoppar lengur og það má jafnvel plata það til að gista. Það var minna um það þegar við bjuggum í mið- bænum, nema kannski eftir djamm,“ segir hún hlæjandi. Hún hafi einnig myndað sérstakt vinasamband við flóttafjölskyldu. „Ég kynntist flóttafjölskyldu frá Sýrlandi hér í Hveragerði gegnum þátttöku í stuðningsfjölskylduverk- efni Rauða krossins. Við heim- sækjum hvert annað og lærum hvert af öðru um ólíka menningu og tungu- mál. Þau eru afskaplega elskuleg og skemmtileg. Við höfum fengið alls konar dýrindis máltíðir hjá þeim og erum alltaf að læra eitthvað nýtt í matargerð. Í gegnum þetta ferli hefur þróast fallegt vinasamband sem mér þykir mjög vænt um,“ segir Lovísa. Spurð hvernig hún eyði helgunum í sveitinni segir hún þær fara í heim- sóknir en oft sé líka nóg að gera. „Agnes vinnur við bókahald og vinnur heima líka og um helgar reynum við að heimsækja vini og fjölskyldu ef það er ekki einhver vinna sem kallar. Við erum reyndar að gera upp húsið. Þetta er gamalt hús og við vinnum að þessu mest- megnis sjálfar, svona það sem við getum. Hún er „yfirsmiður“ og ég handlangari. Hlutirnir ganga best þannig,“ segir hún sposk. Hvað er framundan? „Ég er svona að hita upp vélina. Það er margt á döfinni og meðal annars er ég að vinna í Lay Low plötu en hún mun þó ekki koma út fyrr en á næsta ári. Ég er líka í hljómsveitinni Benny Crespo’s Gang og við erum að taka upp plötu sem kemur út í haust. Við höfum starfað í tíu ár saman og höfum unnið að þessari plötu mjög lengi. Ég er afar spennt yfir því að hún sé loksins að verða tilbúin.“ Tónleikar Lay Low og Péturs fara fram í Félagsheimili Seltjarnarness í kvöld og hefjast klukkan 21. “Hann er að verða tveggja ára og við höfum haft það fínt saman. Ég ákvað að gefa mér þennan tíma með honum af því að ég gat gert það og líka til að kúpla mig aðeins út.” Lovísa og Fróði á góðri stund. MYND/LOVÍSA ELÍSABET. „Við Pétur Ben höfum lengi verið vinir og þekkjumst því vel. Okkur finnst mjög skemmtilegt að hafa verið beðin um að koma fram og ákváðum strax að splæsa tónleikana saman.“ Lay Low og Pétur spila bæði glænýtt og gamalt efni á tónleikunum í kvöld. Það var alveg kominn tími á pásu, reyna að ná teng- ingunni og finna aftur spennu í því sem ég var að gera. Mér finnst ég vera búin að því núna. Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir Nánari upplýsingar í síma 568-3868 eða esther@mfm.is Einn helsti meðferðaraðili við matarfíkn og átröskunum mun stjórna 5 daga meðferðarnámskeiði ásamt Esther Helgu frá MFM miðstöðinni dagana 22-27. október n.k. Hlíðardalssetri, Ölfusi. Philip Werdell MA. frá Bandaríkjunum hefur yfir 30 ára reynslu í meðferðum við þessum vanda. Félagasamtökin Matarheill standa fyrir fundi í Voninni, Efstaleiti 7 laugardaginn 21.10.17. kl. 13-15 þar sem Philip Werdel mun halda fyrirlestur um málefnið undir yfirskriftinni “Samtal um meðferðir við matarfíkn”. Þar verður einnig hægt að fá nánari kynningu á námskeiðinu. Upplifir þú stjórnleysi gagnvart sætindum/mat og áthegðun? masaiceland@gmail.com - www.masainternational.com á Costa Blanca hjá Masa International Þú finnur draumaeignina Hafðu samband og kynntu þér ferlið! 02.11-05.11 | Verð kr. 34.998 á mann Skoðunarferð til Costa Blanca á Spáni Kynningarfulltrúar MASA á Íslandi: Jón Bjarni 896 1067 - Jónas 842 1520 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 4 . O K TÓ B E R 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R 1 4 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 1 1 2 s _ P 0 7 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D F 8 -E D 9 4 1 D F 8 -E C 5 8 1 D F 8 -E B 1 C 1 D F 8 -E 9 E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 1 1 2 s _ 1 3 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.