Fréttablaðið - 14.10.2017, Page 90

Fréttablaðið - 14.10.2017, Page 90
Andri Kristjánsson er tæknitröll í Borgarbóksafninu í Gerðubergi og fræðir krakka þar um eitt og annað sem viðkemur því sviði.  En  hvenær fékk  hann áhuga á tækni? Ég hef alltaf haft gaman af því að skoða nýjungar í tækni en þegar ég byrjaði að sjá um Til­ raunaverkstæði Borgarbókasafnsins 2016 fór áhuginn upp á næsta stig. Í dag er það alltaf opið og á hverjum þriðjudegi koma félagasamtökin Kóder til okkar og kenna krökkum á skemmtileg forrit. Finnst þér krakkar almennt hafa áhuga á tækni og er hann jafn milli stráka og stelpna? Já, ég myndi tví­ mælalaust segja það og áhuginn er jafn milli stráka og stelpna. Bæði kynin eru ótrúlega áhugasöm og hæfileikarík á tölvur. Hvað á verkstæðinu er vinsælast hjá krökkum? Raspberry Pi tölv­ urnar okkar eru vinsælastar en þrí­ víddarprentarinn og vínylskerinn vekja mesta áhugann. Hvaða verkfæri nota krakkarnir? Við erum að vinna eftir „maker­ space“ hugmyndafræði þar sem er ekki endilega gert ráð fyrir verkfær­ um eða græjum, þetta snýst meira um hugarfarið gagnvart verkefninu og að mistök eru til að læra af þeim. En auðvitað er mjög gaman að vera með flottar græjur þó svo að þær skipti ekki öllu máli. Kennir þú þeim bara í gegnum tölvur? Við kennum grunninn í forritun í gegnum Scratch eða Sonic Pi sem eru eins konar tölvuleikir. Í byrjun nóvember verðum við líka með Game Jam í Gerðubergi þar sem krakkar geta búið til sinn eigin tölvuleik og þannig fengið innsýn í vinnuna á bak við tölvuleikjagerð. Við reynum líka að nota annars konar leiðir til að nálgast tölvuna eins og Makey Makey, sem mætti lýsa sem annars konar og skapandi leið til að stjórna tölvunni sinni. Geta búið til Íslenska karlalandsliðið í knatt­ spyrnu varð til  árið 1946 og fyrsti landsleikur þess var við Dani 17. júlí það ár. Sá leikur fór fram á Melavellinum sem var malarvöllur á þeim stað sem Þjóðarbókhlaðan er nú. Leikurinn vakti mikla athygli. Forseti Íslands, Sveinn Björnsson, var viðstaddur og um átta þúsund áhorf­ endur. Leikurinn fór 3­0 fyrir Dani. Annar leikur liðsins fór fram ári seinna, í júlí 1947, á sama velli. Gegn Noregi. Þá skoraði Albert Guð­ mundsson fyrsta landsliðsmark Íslands á þriðju mínútu leiksins – og svo annað á 38. mínútu. Leikurinn endaði samt með 4­2 sigri Norð­ manna. Sinn fyrsta sigur upplifði landslið­ ið 2. júlí 1948, móti Finnum 2­0. Rík­ arður Jónsson skoraði bæði mörkin rétt undir leikslok. Tveimur vikum seinna varð Albert Guðmundsson fyrsti atvinnumaður Íslands er hann skrifaði undir samning við franska liðið Nancy. Áður hafði hann leikið sem áhugamaður með Rangers í Skotlandi. Fjórði landsleikurinn og fyrsti úti­ leikurinn var í Árósum í Danmörku 7. ágúst 1949. Þar tapaði liðið 1­5 fyrir Dönum. Eina mark íslenska liðsins skoraði varamaðurinn Hall­ dór Axel Halldórsson. Heimild: Ísland Karlalandsliðið í fótbolta – Sögur útgáfa 2013 Fyrstu ár íslenska karlalandsliðsins í fótbolta Andri segir jafn mikinn áhuga á tækni hjá strákum og stelpum. FréttAblAðið/Eyþór sinn eigin tölvuleik Í byrjun nóvember verðum við lÍka með Game jam Í GerðuberGi þar sem krakkar Geta búið til sinn eiGin tölvuleik oG þanniG FenGið innsýn Í vinnuna á bak við tölvu- leikjaGerð. Fyrsta fótboltalandslið Íslands. Mynd/KnAttSpyrnuráð rEyKjAvÍKur „Hvað er nú þetta?“ spurði Kata hneyksluð. „Línur og punktar út um allt og ekkert skiljanlegt að sjá. Hvað segir leiðarvísirinn.“ Lísaloppa las: „Litaðu alla reitina sem eru með tveimur punktum og þá sérðu af hverju myndin er.“ „Lita! Þú mátt lita þetta, ég skil ekkert í svona þrautum,“ sagði Kata. Konráð á ferð og flugi og félagar 271 Getur þú hjálpað Lísuloppu a ð lita myndin a ? ? ? 1 4 . o k t ó b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r46 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð krakkar 1 4 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 1 1 2 s _ P 0 9 0 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D F 8 -C B 0 4 1 D F 8 -C 9 C 8 1 D F 8 -C 8 8 C 1 D F 8 -C 7 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 1 1 2 s _ 1 3 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.