Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2017, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2017, Blaðsíða 8
Helgarblað 27.–30. janúar 20178 Fréttir S tefnt er að því að fækka reglulegum ríkisstjórnar- fundum úr tveimur í einn og gera samhliða breytingar á vinnulagi ríkisstjórnarinnar sem miði að því að auka skilvirkni. Þannig verði gert skylt að skila fyrr inn gögnum varðandi mál frá eins- tökum ráðherrum til að samráð- herrar þeirra í ríkisstjórn geti farið yfir þau, leitað eftir áliti í baklandi og tekið afstöðu til mála með upp- lýstum hætti. Það verklag sem nú er viðhaft gefur mun minna færi á slíku. Of knappur tími Bjarni Benediktsson forsætisráð- herra kynnti tillögu að endurskoðun reglna um starfshætti ríkisstjórn- arinnar á ríkisstjórnarfundi síðast- liðinn föstudag. Fram til þessa hafa ríkisstjórnarfundir um langt skeið verið haldnir að jafnaði tvisvar í viku, á þriðjudögum og föstudögum. Sú venja er viðhöfð að gera þarf gögn í hverju máli aðgengileg fyrir klukkan hálf fjögur daginn fyrir ríkisstjórn- arfund. Ríkisstjórnarfundir hefjast síðan að jafnaði klukkan hálf tíu að morgni. Það þykir naumur tími til að ráðherra geti glöggvað sig á málum, aðeins átján klukkutímar. Sem dæmi má nefna að síðast- liðinn föstudag var þannig á dagskrá ríkisstjórnarinnar kynning á drögum að fjármálastefnu fyrir árin 2017–2022. Slíkt mál snertir augljóslega alla rík- isstjórnina. Átján klukkustundir eru hins vegar knappur tími til að kynna sér það, svo hægt sé að taka umræðu um málið á fundi ríkisstjórnarinnar. Einn fundur á viku Því er lagt til, í tillögu Bjarna, að ríkis- stjórnarfundir verði að jafnaði haldn- ir einu sinni í viku, á föstudögum. Þá verði þeir haldnir í ráðherrabústaðn- um við Tjarnargötu, þar sem þar eru rýmri húsakynni en í stjórnarráðinu. Lagt er upp með að gögn vegna mála sem ráðherrar leggja fyrir ríkisstjórn liggi fyrir á þriðjudegi í vikunni fyr- ir ríkisstjórnarfund. Þá muni emb- ættismenn ráðuneytanna sem mál- ið snerti sértaklega, séu þau fleiri en eitt, taka gögnin til skoðunar og hið sama á við um ráðuneytisstjóra. Þá verði undirbúið sameiginlegt minn- isblað sem ráðherranefnd um sam- ræmingu mála fer yfir. Með þessu fyr- irkomulagi er vonast til að hægt sé að bæta undirbúning fyrir ríkisstjórn- arfundi og með því að hægt verði að taka vandaðri ákvarðanir. Innan stjórnkerfisins telja menn að með þessu móti verði vinnubrögð skil- virkari og ákvarðanataka verði vand- aðri fyrir vikið. Þetta séu vinnubrögð sem tíðkist víðar, til að mynda hjá dönsku ríkisstjórninni. Þá sé auðvitað ekkert sem kemur í veg fyrir að boðað sé til aukafunda, sé ástæða til þess. Vill auka verkstjórn forsætisráðherra Bjarni segir í samtali við DV að sumt af því sem lagt er til sé verklag sem áður þekktist. „Til dæmis að föstu- dagsfundir séu í ráðherrabústaðn- um, það hafa verið tímabil í tíð fyrri ríkisstjórna þar sem það tíðkað- ist. Sumt annað sem þarna er lagt til tengist breytingum sem hafa átt sér stað smátt og smátt, það er að segja að forsætisráðuneytið hef- ur verið að þróast meira í átt til hreinnar verkstjórn- ar með færri málaflokka beint undir sér. Tillögurn- ar fela í sér að verkstjórn- arhlutverk forsætisráðu- neytisins verður eflt með því að mál liggi fyrr fyrir áður en ríkisstjórnarfundur er haldinn. Með því gefst líka ráðrúm til að kalla til samráðsfund- ar ráðherra ef ástæða þykir til. Þetta leiðir að hluta til líka að því að vegna þess að flokkarnir eru þrír í ríkisstjórn getur verið þörf á auknu sam- ráði. Fleiri dagar frá því að mál er kynnt og þar til það er tekið fyr- ir gera það auð- veldara, gerist þess þörf.“ Á það er bent að verði þetta vinnulag tekið upp geti enginn ráð- herra haldið því fram að hann hafi ekki haft vitneskju um mál, engin af- sökun sé fyrir því að hafa ekki kynnt sér þau mál sem á dagskrá eru á fundum. Ráðherrar eru þar með gerðir „samsekir“ í meira mæli en áður. Ætti að styrkja minni flokkana Þar í ofanálag er talið líklegt að þetta fyrirkomulag muni auðvelda minni flokkum líkt og Bjartri framtíð, sem eru með fáa ráðherra og lítið þinglið, að setja sig inn í mál annarra ráð- herra ríkisstjórnarinnar. Þannig hafi þeir meiri tíma til að fá bakland sitt til að kynna sér mál og taka þau út. Bjarni segir það geta verið mjög bratt þegar þingflokkar eigi aðeins tvo eða þrjá ráðherra að mál séu tek- in fyrir á fundum ríkisstjórna jafn- vel aðeins hálfum sólarhring eftir að þau eru kynnt, og ætlast sé til að málin séu strax tekin á dagskrá þing- flokka. „Það getur verið mjög krefj- andi og sú staða hefur oft komið upp í ríkisstjórn að fresta hefur þurft mál- um milli funda. Þá er spurning hvort er betra að vera að fresta málum eða koma því vinnulagi á að þau liggi lengur frammi fyrir fyrsta fund og geti þar með fengið vandaðri um- fjöllun.“ Tillögunni var ágætlega tekið við kynningu að sögn Bjarna en hann leggur áherslu á að málið sé enn til skoðunar. Stefnt sé að því að taka það á dagskrá rík- isstjórnarinnar á næstunni, jafnvel sé mögulegt að það verði afgreitt í dag. n Hreinsun á kjólum 1.600 kr. Opið Virka daga 08:30-18:00 laugardaga 11:00-13:00 Hringbraut 119 - Einnig móttaka á 3.hæð í Kringlunni hjá Listasaum - Sími: 562 7740 - Erum á Facebook Fækka Fundum n Stefnt að breyttu verklagi n Fundað verður í ráðherrabústaðnum á föstudögum Freyr Rögnvaldsson freyr@dv.is ríkiSStjórnar Fundað í ráðherrabústaðnum Fundir ríkisstjórnarinnar munu fara fram í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu. Fækka fundum Reglulegum fundum ríkisstjórnarinnar verður fækkað niður í einn í viku, í stað tveggja líkt og nú er. Mynd SigtRygguR ARi Vill efla verkstjórn Bjarni Benediktsson forsætisráðherra vill breyta vinnulagi ríkisstjórnarinnar. Mynd ÞORMAR VigniR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.