Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2017, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2017, Blaðsíða 23
Helgarblað 27.–30. janúar 2017 Kynningarblað - Snyrtistofur 3 Deluxe snyrti- og dekurstofa kynnir nýjasta nýtt frá Schrammek: ENERGY+Q10 Green Peel meðferð S töllurnar Gyða Agnarsdótt- ir og Sólrún Pétursdótt- ir, eigendur Snyrtistofunn- ar Deluxe, komu ferskar inn í Glæsibæ í nóvember 2013 með fyrirtæki sitt og hafa síð- an hugað að heilsu íslenskra kvenna og karla með góðum árangri. Starfs- menn Deluxe snyrtistofunnar eru þær Gyða, Sólrún, Valgerður Ósk Daníelsdóttir, Helena Jóhannsdóttir og Sigrún Mist Gunnarsdóttir, sem er nýr starfsmaður á stofunni og nagla- fræðingur. Hana má finna á facebook með því að leita undir acrylneglur- sigrun. Allir starfsmenn Deluxe eru fagmenn á sínu sviði og veita fyrsta flokks þjónustu. Þær bjóða upp á alla alhliða snyrtingu svo sem varanleg förðunartattoo, sleekbrow, neglur, förðun, augnháralengingu, Lash Lift og síðast en ekki síst Green Peel með- ferðir. Deluxe snyrti- og dekurstofa opnaði fyrir stuttu glæsilega nýja net- verslun þar sem hægt er að nálgast þær náttúrulegu hágæðasnyrti- og húðvörur sem fást á stofunni. „Við notum eingöngu hágæðavörur í and- litsmeðferðum sem hannaðar eru af húðlæknum. Við þurftum að sækja námskeið og fá sérstakt diplóma til að öðlast leyfi til þess að nota vörurn- ar á stofunni okkar. BB kremið okk- ar hefur algjörlega slegið í gegn og er vinsælasta varan okkar í dag,“ seg- ir Gyða. Helstu vörumerkin sem fást hjá Deluxe eru Schrammek, Young- blood, Moroccanoil og fleiri náttúru- legar hágæðahúðvörur. Green Peel hefur sannað sig Green Peel meðferðin var upphaf- lega þróuð af Dr. Med. Christine Schrammek fyrir um fimmtíu árum, til þess að vinna á óhreinni og skemmdri húð. Green Peel er virk blanda af átta náttúrulegum ensím- um, jurtum, steinefnum og vítamín- um, þar á meðal spírulínu. Efnið vinnur vel á ýmsum húðvandamál- um til dæmis á andliti, maga og lær- um. Í boði eru nú fimm Green Peel meðferðir: Classic, Energy, Fresh Up og Mela White. Nýjasta með- ferðin hjá okkur er Energy+Q10 og er hver meðferð valin eftir því hvaða árangri viðskiptavinur vill ná. Meðferð fer þannig fram að flögnunarferli húðarinnar er virkj- að með því að nudda Green Peel efninu í húðina. Að því loknu er efnið þrifið af og kælandi maski og loks Special Care Cream borið á, til þess að koma í veg fyrir roða og ertingu. Áhrifin koma fram á tveim- ur til fimm dögum, allt eftir húð- gerð hvers og eins og á þeim tíma er mikilvægt að fara eftir þeim leið- beiningum, sem gefnar eru og nota einungis þær Schrammek vörur sem fylgja meðferðinni. Að auki má ekki bleyta andlitið með vatni í fimm daga. Klassískri meðferð lýkur á eftirmeðferð fimm dögum eftir upphaflegu meðferðina, þar sem húðin er vel nærð og dauð- ar húðfrumur nuddaðar af. Mis- munandi er eftir húðgerð, hversu margar meðferðir eru nauðsynlegar til þess að ná sem bestum árangri. Hin upprunalega Green Peel með- ferð hefur sannað sig um allan heim og til þess að geta veitt Green Peel meðferð þurfa snyrtifræðingar að hafa sveinspróf og sækja námskeið á vegum Schrammek. ENERGY+Q10 – húðendurnýjun og sjáanlegur stinnleiki húðar Green peel meðferð fyrir andlitið. Nýjasta meðferðin frá Schrammek Green Peel. Um er að ræða byltingarkennt jurtaserum með undraefninu Q10, sem þekkt er fyrir andoxunaráhrif sín og jákvæð áhrif á endurnýjun húðfrumna. Eldri og áliggjandi húð- frumur eru losaðar frá með því að nudda jurtablöndunni inn í húð- ina. „Almennt er boðið upp á fimm Schrammek Green Peel meðferðir. Meðal þeirra eru Classic Green Peel meðferð, Energy og svo Energy+Q10 meðferð. Energy+Q10 meðferðin er öflugri en Energy meðferðin þar sem Q10 hefur verið bætt við jurta- blönduna. Í Energy+Q10 meðferðinni er húðin svo töluvert fljótari að jafna sig en eftir Classic meðferðina,“ segir Gyða. Energy +Q10 meðferðin er til- valin fyrir óhreina húð, húð sem byrj- uð er að eldast eða vantar bjartara og fallegra yfirbragð og svo húð með litabreytingar. Tilvalið er að koma í Energy+Q10 í eitt skipti, eða einu sinni í mánuði. Meðferðartími er 60 mínútur. Verð 38.000 kr. Innifalið í verðinu er Home Care Kit sem inniheldur Herbal Care Lotion, Special Care Cream og Blem- ish Balm. RetiNight Essence – bólu- og hrukkubani RetiNight Essence er frábær nýjung frá Schrammek vörumerkinu og frá- bært í baráttunni við línur, hrukk- ur, bólur, slappa og líflausa húð. Í kreminu er hárrétt samsetning af A-vítamíni og vitanol®Bio sem eyk- ur húðendurnýjun. Önnur virk efni eru Aquaxyl™ og Matrixyl™ sem bæði hraða viðgerðarferli húðfrumna. Deluxe snyrti- og dekurstofa er staðsett í Glæsibæ, Álfheimum 74, 104 Reykjavík. Hafa má samband í síma 571-0977 eða með því að senda póst á veffangið deluxe@deluxe. is Nánari upplýsingar má nálgast á netverslun snyrtistofunnar deluxe. is og Facebook-síðunni. Að auki má fylgja Deluxe á Snapchat á nafninu deluxedekur. n Ótrúlegur munur Fyrir og eftir notkun RetiNight Essence.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.