Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2017, Page 23
Helgarblað 27.–30. janúar 2017 Kynningarblað - Snyrtistofur 3
Deluxe snyrti- og
dekurstofa kynnir
nýjasta nýtt frá Schrammek: ENERGY+Q10 Green Peel meðferð
S
töllurnar Gyða Agnarsdótt-
ir og Sólrún Pétursdótt-
ir, eigendur Snyrtistofunn-
ar Deluxe, komu ferskar
inn í Glæsibæ í nóvember
2013 með fyrirtæki sitt og hafa síð-
an hugað að heilsu íslenskra kvenna
og karla með góðum árangri. Starfs-
menn Deluxe snyrtistofunnar eru
þær Gyða, Sólrún, Valgerður Ósk
Daníelsdóttir, Helena Jóhannsdóttir
og Sigrún Mist Gunnarsdóttir, sem er
nýr starfsmaður á stofunni og nagla-
fræðingur. Hana má finna á facebook
með því að leita undir acrylneglur-
sigrun. Allir starfsmenn Deluxe eru
fagmenn á sínu sviði og veita fyrsta
flokks þjónustu. Þær bjóða upp á alla
alhliða snyrtingu svo sem varanleg
förðunartattoo, sleekbrow, neglur,
förðun, augnháralengingu, Lash Lift
og síðast en ekki síst Green Peel með-
ferðir. Deluxe snyrti- og dekurstofa
opnaði fyrir stuttu glæsilega nýja net-
verslun þar sem hægt er að nálgast
þær náttúrulegu hágæðasnyrti- og
húðvörur sem fást á stofunni. „Við
notum eingöngu hágæðavörur í and-
litsmeðferðum sem hannaðar eru af
húðlæknum. Við þurftum að sækja
námskeið og fá sérstakt diplóma til
að öðlast leyfi til þess að nota vörurn-
ar á stofunni okkar. BB kremið okk-
ar hefur algjörlega slegið í gegn og
er vinsælasta varan okkar í dag,“ seg-
ir Gyða. Helstu vörumerkin sem fást
hjá Deluxe eru Schrammek, Young-
blood, Moroccanoil og fleiri náttúru-
legar hágæðahúðvörur.
Green Peel hefur sannað sig
Green Peel meðferðin var upphaf-
lega þróuð af Dr. Med. Christine
Schrammek fyrir um fimmtíu árum,
til þess að vinna á óhreinni og
skemmdri húð. Green Peel er virk
blanda af átta náttúrulegum ensím-
um, jurtum, steinefnum og vítamín-
um, þar á meðal spírulínu. Efnið
vinnur vel á ýmsum húðvandamál-
um til dæmis á andliti, maga og lær-
um. Í boði eru nú fimm Green Peel
meðferðir: Classic, Energy, Fresh
Up og Mela White. Nýjasta með-
ferðin hjá okkur er Energy+Q10
og er hver meðferð valin eftir því
hvaða árangri viðskiptavinur vill
ná. Meðferð fer þannig fram að
flögnunarferli húðarinnar er virkj-
að með því að nudda Green Peel
efninu í húðina. Að því loknu er
efnið þrifið af og kælandi maski og
loks Special Care Cream borið á,
til þess að koma í veg fyrir roða og
ertingu. Áhrifin koma fram á tveim-
ur til fimm dögum, allt eftir húð-
gerð hvers og eins og á þeim tíma
er mikilvægt að fara eftir þeim leið-
beiningum, sem gefnar eru og nota
einungis þær Schrammek vörur
sem fylgja meðferðinni. Að auki
má ekki bleyta andlitið með vatni
í fimm daga. Klassískri meðferð
lýkur á eftirmeðferð fimm dögum
eftir upphaflegu meðferðina, þar
sem húðin er vel nærð og dauð-
ar húðfrumur nuddaðar af. Mis-
munandi er eftir húðgerð, hversu
margar meðferðir eru nauðsynlegar
til þess að ná sem bestum árangri.
Hin upprunalega Green Peel með-
ferð hefur sannað sig um allan heim
og til þess að geta veitt Green Peel
meðferð þurfa snyrtifræðingar að
hafa sveinspróf og sækja námskeið
á vegum Schrammek.
ENERGY+Q10 – húðendurnýjun
og sjáanlegur stinnleiki húðar
Green peel meðferð fyrir andlitið.
Nýjasta meðferðin frá Schrammek
Green Peel.
Um er að ræða byltingarkennt
jurtaserum með undraefninu Q10,
sem þekkt er fyrir andoxunaráhrif
sín og jákvæð áhrif á endurnýjun
húðfrumna. Eldri og áliggjandi húð-
frumur eru losaðar frá með því að
nudda jurtablöndunni inn í húð-
ina. „Almennt er boðið upp á fimm
Schrammek Green Peel meðferðir.
Meðal þeirra eru Classic Green Peel
meðferð, Energy og svo Energy+Q10
meðferð. Energy+Q10 meðferðin
er öflugri en Energy meðferðin þar
sem Q10 hefur verið bætt við jurta-
blönduna. Í Energy+Q10 meðferðinni
er húðin svo töluvert fljótari að jafna
sig en eftir Classic meðferðina,“ segir
Gyða. Energy +Q10 meðferðin er til-
valin fyrir óhreina húð, húð sem byrj-
uð er að eldast eða vantar bjartara
og fallegra yfirbragð og svo húð með
litabreytingar. Tilvalið er að koma
í Energy+Q10 í eitt skipti, eða einu
sinni í mánuði.
Meðferðartími er 60 mínútur. Verð
38.000 kr. Innifalið í verðinu er Home
Care Kit sem inniheldur Herbal Care
Lotion, Special Care Cream og Blem-
ish Balm.
RetiNight Essence – bólu- og
hrukkubani
RetiNight Essence er frábær nýjung
frá Schrammek vörumerkinu og frá-
bært í baráttunni við línur, hrukk-
ur, bólur, slappa og líflausa húð. Í
kreminu er hárrétt samsetning af
A-vítamíni og vitanol®Bio sem eyk-
ur húðendurnýjun. Önnur virk efni
eru Aquaxyl™ og Matrixyl™ sem bæði
hraða viðgerðarferli húðfrumna.
Deluxe snyrti- og dekurstofa er
staðsett í Glæsibæ, Álfheimum 74,
104 Reykjavík. Hafa má samband í
síma 571-0977 eða með því að senda
póst á veffangið deluxe@deluxe.
is Nánari upplýsingar má nálgast á
netverslun snyrtistofunnar deluxe.
is og Facebook-síðunni. Að auki má
fylgja Deluxe á Snapchat á nafninu
deluxedekur. n
Ótrúlegur munur Fyrir og eftir notkun RetiNight Essence.