Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2017, Síða 4
Helgarblað 3.–6. febrúar 20174 Fréttir
Glæsibær · Sími: 571 0977 · Opið 10-18 · www.deluxe.is
Fjölbreyttar vörur og úrval meðferða
Andlitsbað með lúxusmaska eftir húðgerð hvers og eins, þar sem leitast er eftir því að ná fram því besta
fyrir húðina þína með hágæða vörum. Frábær slökun og vellíðan.
WOW safnar
fyrir Landvernd
Farþegum sem ferðast með WOW
air mun bjóðast að styrkja Land-
vernd með myntsöfnun um borð
í vélum flugfélagsins frá og með
15. febrúar næstkomandi. WOW
air mun koma með mótframlag
og jafna þá upphæð sem farþegar
félagsins safna um borð.
Samningur um þetta var
undirritaður af þeim Skúla Mog-
ensen, forstjóra WOW air, og
Snorra Baldurssyni, formanni
Landverndar, á miðvikudag.
Sérstakt umslag verður í sætis-
vösum allra flugvéla WOW air
og eru farþegar hvattir til þess að
gefa afgangsmynt til Landverndar
sem mun nýtast samtökunum
til að efla stuðning við stofnun
hálendisþjóðgarðs, vinna að
landgræðslu og fleiri mikilvægum
umhverfisverkefnum á Íslandi.
Landvernd eru frjáls félaga-
samtök sem starfa að umhverfis-
málum og leggja áherslu á að
taka virkan þátt í ákvörðunum,
fræðslu og stefnumótun er varða
íslenska náttúru og sjálfbæra nýt-
ingu hennar.
Athafnamennirnir Árni Þór Árnason og Karl J. Steingrímsson fóru í mál við Junior Chamber Ísland
A
thafnamennirnir Árni
Þór Árnason og Karl J.
Steingrímsson, iðulega
kenndur við Pelsinn, fóru
í mál við Junior Chambers
International-hreyfinguna (JCI) á Ís-
landi. Þeir kröfðust þess að JCI endur-
greiddi þeim framlög þeirra vegna
kaupa á húsnæði félagasamtakanna
árið 1986, sem tvímenningarnir
höfðu frumkvæðið að ásamt Ásgeiri
Gunnarssyni heitnum.
Árni Þór gerði kröfu um að fá
greiddar um 1,7 milljónir en kröfur
Karls hljóðuðu upp á 4,9 milljón-
ir króna auk dráttarvaxta. Forsvars-
menn JCI á Íslandi höfnuðu kröfum
félaganna og því fór málið fyrir Hér-
aðsdóm Reykjavíkur. Þar var JCI-
hreyfingin sýknuð af kröfum Árna
Þórs og Karls og var þeim gert að
greiða 1,2 milljónir málskostnað. Var
niðurstaða dómstólsins sú að tví-
menningarnir hafi frá upphafi lofað
að afhenda JCI umrædda fasteign án
áhvílandi skulda. Að auki kemur það
fram í dómnum að skuldirnar hafi
verið fyrndar.
Umdeild fjárfesting
Forsaga málsins er sú að JCI-hreyf-
ingin fjárfesti í húsnæði að Hellu-
sundi 3 árið 1986. Félagasamtökin
höfðu lengi verið hrakhólum fram að
því og það þótti velunnurum félags-
ins, þeim Árna, Karli og Ásgeiri með
öllu ótækt. Þeir höfðu frumkvæði að
því að húsið yrði keypt þann 25. sept-
ember 1986 og var kaupverðið 5,5
milljónir króna. Þremenningarnir
tóku að sér að fjármagna útborgun-
ina á húsinu sem var ein milljón sem
og að leita til fyrirtækja og einstak-
linga um stuðning. Tekið var lán hjá
banka til þess að greiða afganginn og
var ætlunin að leigja stóran hluta
hússins út til þess að greiða lánið
upp.
Í dómskjölum kemur fram að
Karl hafi greitt 501.386 krónur en
Árni Þór 200.000 krónur. Þessar töl-
ur koma fram í ársreikningum hús-
nefndar en einnig kemur fram að
engar millifærslukvittanir séu til eða
skuldaskjöl. Það voru ein helstu rök
tvímenninganna að skuldin hefði
ætíð verið tilgreind í ársreikningum.
Alls komu inn styrkir að upphæð
857.000 krónur.
Lofuðu skuldleysi
Fyrirhuguð fjárfesting var umdeild
enda óttuðust margir félagsmenn
að fjárhagsskuldbindingarnar
yrðu hreyfingunni um megn. Þre-
menningarnir sendu hins vegar
bréf til landsstjórnar JCI-hreyf-
ingarinnar þann 5. desember 1986
þar sem stóð: „Í ljósi alls þessa, og
til að koma í veg fyrir ágreining
innan JCI-hreyfingarinnar, höfum
við ákveðið að axla byrðina sjálf-
ir, fram til ársins 1990, og munum
við þá afhenda hreyfingunni hús-
ið formlega og þá í góðu ástandi og
skuldlaust.“
Ósáttir við breytingar
Allar götur síðan hafa Árni Þór og
Karl setið í húsnefnd Hellusunds
3 og ráðið því sem þeir vildu ráða.
Meðal annars ákvað nefndin að gera
upp skuld vegna húsnæðiskaupanna
við ekkju Ásgeirs Gunnarssonar árið
1991 sem og að greiða inn á meintar
skuldir JCI-hreyfingarinnar við þá
sjálfa, síðast árið 2003.
Í lok árs 2012 boðaði þáver-
andi landsforseti, Viktor Ómarsson,
til landsfundar þar sem tilkynnt var
um fyrirhugaðar breytingar á reglu-
gerðinni um húsnefndina þannig að
fjölgað yrði í stjórn hússins auk þess
sem formannskjöri nefndarinnar yrði
breytt. Ástæðu þess má rekja til þess
að ófremdarástand ríkti í húsinu. Leig-
utekjur dugðu ekki fyrir álögðum fast-
eignagjöldum og hústökufólk hafði tek-
ið sér bólfestu í kjallara hússins. Kalla
þurfti til lögreglu til að rýma húsið.
Árni Þór og Karl voru afar ósáttir
við fyrirhugaðar breytingar og mættu
því ekki á fundinn. Var það túlkað á
þá veru að þeir gæfu ekki kost á sér
til frekari hússtjórnarsetu. Tvímenn-
ingarnir tóku þessum vendingum illa
og nokkrum mánuðum síðar, í apríl
2013, lögðu þeir fram kröfur sínar
um skuldauppgjör. Síðan þá hafa þeir
freistað þess að fá kröfurnar greidd-
ar án þess að hafa árangur sem erfiði.
Þeir töldu sig því eiga engra annars
úrkosti en að fara í mál gegn JCI-
hreyfingunni. Málið var þingfest árið
2016 en þá voru um 13 ár síðan greitt
var inn á skuldina við tvímenningana.
Sem fyrr segir var niðurstaða
dómstólsins sú að skuldirnar hafi
verið fyrndar, enda fyrningarfrestur
krafna 10 ár. n
Viðurkenning Þrekvirkis þremenning-
anna er minnst með fallegum virðingarvotti
fyrir framan húsið. Mynd SigtryggUr Ari
Kröfðust
endurgreiðslu
30 ára skuldar
Hellusund 3 Karl og Árni Þór höfðu,
ásamt Ásgeiri Gunnarssyni heitnum,
frumkvæði að því að kaupa og fjármagna
húsið fyrir Junior Chambers-hreyfinguna
árið 1986. Mynd SigtryggUr Ari
Karl J. Steingrímsson Fór í mál við
JCI-hreyfinguna ásamt Árna Þór Árna-
syni vegna 30 ára gamallar skuldar.
Mynd SigtryggUr Ari
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Erlendu skipin
ein um hituna
Þrjú erlend skip eru nú við veiðar
í íslenskri fiskveiðilögsögu austur
af landinu; tvö norsk og eitt fær-
eyskt. Skipin eru við loðnuveiðar
en upphaf vertíðarinnar er nokk-
uð óvenjulegt þar sem engin ís-
lensk uppsjávarskip eru á miðun-
um vegna verkfalls sjómanna.
Erlendu skipin eru því ein um
hituna, að sinni að minnsta kosti.
Norðmenn mega veiða um sjö-
tíu prósent heildarkvótans, rúm
40 þúsund af tonn af 57 þús-
und tonnum. Í tilkynningu sem
Landhelgisgæslan sendi frá sér
á fimmtudag kom fram að varð-
skipið Týr væri á leið norður fyrir
landið með stefnu á loðnumið-
in, en þar sinnir gæslan venju-
bundnu eftirliti og tryggir að
veiðarnar gangi rétt fyrir sig.