Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2017, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2017, Blaðsíða 42
Helgarblað 3.–6. febrúar 201734 Lífstíll Þ egar fólk reynir að selja okkur smúðing og segir að hann bæti á andoxunar- efni í líkamanum er það álíka heimskulegt og selja okkur heitt vatn og segja að það hækki líkamshitann.“ Þetta segir dr. Kirsten Brandt í þætti á vegum BBC sem sýndur var á RÚV á mánu- dagskvöldið. Þar var sjónum beint að svokölluðu heilsu- og ofurfæði og ýmsar mýtur um tilteknar fæðu- tegundir voru hraktar. Einn virtasti næringarfræðingur landsins er ánægður með þáttinn og segir sorglegt hvað fólk er ginn- keypt fyrir markaðssetningu, þar sem afurðir, sem ekki eru hollari en ódýr- ari valkostir, eru seldar dýrum dóm- um. „Ég vara fólk við að trúa hverju sem er og henda krónunni um leið,“ segir Ólafur Gunnar Sæmunds- son, næringarfræðingur og kennari við Háskólann í Reykjavík. Hann er höfundur kennslubókarinnar Lífs- þróttur, líklega veigamestu bókar sem út hefur komið um næringar- fræði á Íslandi. Í bók sinni hrekur hann margar af þeim mýtum sem til umfjöllunar voru í umræddum þætti á RÚV. Nánar er rætt við Ólaf hér á síðunni. Andoxunarkraftur smúðinga? Þátturinn sem um ræðir heitir The truth about eating healthy. Um er að ræða heimildaþátt frá BBC sem rannsakar hvað best sé fyrir mann- inn að borða og drekka, til að öðlast góða heilsu. Sjónvarpskonan Fiona Phillips fær í þættinum hjálp frá vís- indamönnum til að afhjúpa hvaða fæðu og vítamín er skynsamlegast að neyta. Eitt af því sem tekið er fyrir í þættinum eru svokallaðir heilsu- drykkir (smúðingar í þýðingu RÚV) sem eru ríkir af andoxunarefnum. Þar er um að ræða ávexti og græn- meti sem sett er í safapressu og hrært saman. „Það er mikið talað um andoxunarefni núna af því að þau sópa víst upp ýmsum efnum sem gætu reynst frumum líkamans hættuleg og eru talin valda krabba- meini og hrörnun. En ég velti fyrir mér hvort það að drekka þetta færi mér þann andoxunarkraft sem ég er að leita að,“ segir Fiona í þættinum. Eitt prósent efnanna í blóðrásina Hún ræðir við Gordon McDoug- all hjá James Hutton Institute, sem sýnir fram á hvað verður um blá- berjasafa, sem er ríkur af andoxunar- efnum, þegar hann fer í magann og svo þarmana. Hann setur bláberjasafa í vökva sem samanstendur af efnum sem líkja eftir þeim sem eru í mag- anum. „Í maganum eru þau [efnin] góð og virka sem andoxunarefni. Þau blandast vel.“ Gordon setur safann svo í aðra efnablöndu sem líkir eftir þeim sem eru í þörmunum. „Þegar andox- unarefnin fara inn í þarmana breytast aðstæður og skyndilega eru þau ekki mjög stöðug. Safinn dökknar og nú sérðu að þessir þættir fara að brotna niður sem verður til þess að lítið berst inn í líkamann þar sem þau geta ver- ið virk. Þessi andoxunarefni ná aldrei inn í blóðrásina í því magni sem er í berjunum í upphafi. Um 1 prósent [andoxunarefnanna] fer í blóðrásina,“ segir hann í þættinum. Gerði tilraun á sjálfri sér Fiona framkvæmdi einnig tilraun á sjálfri sér. Hún sneiddi hjá græn- meti, ávöxtum, heilkornum og kaffi í 48 klukkustundir, til að finna nátt- úrulega grunnstöðu andoxunarefna. Í staðinn borðaði hún kartöflur, hrís- grjón, pasta og hvítt brauð. Og drakk mjólk. Því næst var tekið blóðsýni til að mæla náttúrulega stöðu andoxun- arefna. Að svo búnu tók við andoxun- arefnakúr með smúðingi. Næstu klukkustundir eftir inntöku voru teknar margar blóðprufur, til þess að athuga hvort neyslan yki andoxunar- efni í líkamanum. Dr. Kirsten Brandt, við Newcastle University, rannsak- aði blóðið. Mælingar sýndu að í kjöl- far þess að Fiona drakk smúðinginn hafi andoxunarefni í líkamanum auk- ist mikið; mikið af efnunum barst inn í blóðið. Lækkaði stöðu andoxunarefna En þar með er sagan ekki öll. „En um leið reynir líkaminn að losa sig við þau því að þessar ókunnu sameind- ir eiga ekki heima í líkamanum,“ segir hún í þættinum. „Og að lokum verður minna af þeim en fyrir. Á átta tímum [eftir neyslu] kemstu ekki aftur upp í grunnstöðuna.“ Með öðrum orðum leiddi smúðingurinn til þess að minna af andoxunarefn- um var í líkamanum, átta tímum eft- ir inntöku. Dr. Kirsten Brandt er þó ekki á því að smúðingar séu skaðlegir. „Ég held það nú ekki en þeir eru ekki gagn- legir heldur.“ Hún segir að líkaminn bregðist við og stilli af upptöku efn- anna, eftir því hvað honum berst. Líkaminn viðheldur hæfilegri stöðu andoxunarefna í líkamanum og los- ar sig við umframefni. „Við vitum að andoxunarefni eru í ávöxtum og grænmeti sem eru mikilvægur hluti af hollu mataræði en að kaupa vöru sem á að bæta andoxunarefnastöð- una er peningasóun,“ segir Brandt. n Heilsudrykkir draga úr andoxunarefnum n Líkaminn minnkar upptöku andoxunarefna við mikla neyslu n Mýtur um næringu afhjúpaðar Baldur Guðmundsson baldur@dv.is Gojiber Sjónvarpskonan Fiona Phillips sýnir fram á að gojiber veita fólki ekki meira af C- vítamíni en jarðarber. Mynd BBC „Heilsudrykkur“ Drykkir sem þessir valda því líkaminn dregur úr upptöku andox- unarefna, þvert á það sem margir halda. Mynd 123rf.CoM Sorglegt að sjá fólk eyða peningunum í heilsuvörur Ó lafur Gunnar er ánægður með þáttinn og flest það sem þar kom fram. Hann segir hins vegar í samtali við DV að í honum hafi svo sem ekkert nýtt komið fram. „Um ýmsa þessa þætti fjalla ég í bókinni minni, til dæmis um ætlaðan undramátt kókoshnetuolíu.“ í þættinum ræðir Fiona við næringarfræðing sem bendir á að hefðbundin jurtaolía sé ekkert síðri fyrir heilsuna – en margfalt ódýrari. Ólafur Gunnar fagnar því að þátturinn hafi tekið á detox-ruglinu, sem hann kallar svo. Hann segir að höfuðverkur sem fólk fái þegar það hætti að borða til að „hreinsa líkamann“ sé ekki merki um að eiturefni séu að fara úr líkamanum heldur stafi höfuð- verkurinn ekki síst af vökva- og orkuskorti. Í þættinum var líka gerð prófun á hvaða morgunverður reynist veita fólki bestu magafyllina til lengri tíma. Þar hafa soðin egg og grillað beikon yfirhöndina, sam- anborið við jógúrt og banana annars vegar og hefðbundið morgunkorn hins vegar. Próteinmagnið skiptir þar sköpum en beikon og egg máltíðin innhélt 25 grömm af próteinum á meðan hinar tvær aðeins tíu grömm. En Ólafur Gunnar bendir á að prótein sé saðsamasti orkugjafinn. Í hæfilegu magni sé það góður orkugjafi. Hins vegar vill hann taka fram að þegar verið er að huga að máltíð þarf að taka með í reikninginn fleiri þætti en saðsemi og hvað egg og beikon varðar að þá eru þau snauð af ýmsum mikilvægum næringarefnum svo sem trefjum og mörgum vítamínum og steinefnum. Persónulega segist hann frekar mæla með morgunverði eins og hafragraut með mjólk sem mætti bragðbæta með t.d. rúsínum og hafa svo eitt egg með og ekki gleyma svo að taka inn D-vítamíngjafa eins og eina teskeið af lýsi. Ólafur Gunnar segir að líkaminn sé ansi flinkur að stilla sig af. Ef hann skorti tiltekið næringarefni sé upptaka þess úr mat mjög mikil. Á sama hátt sé upptakan mun minni ef næringarbúskapur líkamans, með tilliti til efnisins, er góður. Hann varar við ofneyslu á hvers kyns næringarefnum. „Ef við spænum í okkur ógrynni af tilteknum næringar- efnum þá getur það leitt til þess að líkaminn nái ekki að stilla sig eðlilega af og það leitt til eitrunar, eins og dæmin sanna.“ Hann gagnrýnir fjölmiðla fyrir að dreifa oft á tíðum hálf dulbúnum auglýsingum í formi frétta um gagnsemi „ofurfæðis“ og svokallaðra náttúru- og fæðubótarefna. Hann varar fólk ekki síst við því að taka mark á vörum sem auglýstar eru með reynslu- sögum. Þær hafi ekkert að segja um raunverulega virkni þess sem er auglýst. Ólafur Gunnar vill að lokum hvetja fólk til að verða sér úti um ábyggilegar upplýs- ingar um næringu, svo sem á vef Landlæknis.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.