Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2017, Blaðsíða 42
Helgarblað 3.–6. febrúar 201734 Lífstíll
Þ
egar fólk reynir að selja
okkur smúðing og segir að
hann bæti á andoxunar-
efni í líkamanum er það
álíka heimskulegt og selja
okkur heitt vatn og segja að það
hækki líkamshitann.“ Þetta segir
dr. Kirsten Brandt í þætti á vegum
BBC sem sýndur var á RÚV á mánu-
dagskvöldið. Þar var sjónum beint
að svokölluðu heilsu- og ofurfæði
og ýmsar mýtur um tilteknar fæðu-
tegundir voru hraktar.
Einn virtasti næringarfræðingur
landsins er ánægður með þáttinn
og segir sorglegt hvað fólk er ginn-
keypt fyrir markaðssetningu, þar sem
afurðir, sem ekki eru hollari en ódýr-
ari valkostir, eru seldar dýrum dóm-
um. „Ég vara fólk við að trúa hverju
sem er og henda krónunni um leið,“
segir Ólafur Gunnar Sæmunds-
son, næringarfræðingur og kennari
við Háskólann í Reykjavík. Hann er
höfundur kennslubókarinnar Lífs-
þróttur, líklega veigamestu bókar
sem út hefur komið um næringar-
fræði á Íslandi. Í bók sinni hrekur
hann margar af þeim mýtum sem til
umfjöllunar voru í umræddum þætti
á RÚV. Nánar er rætt við Ólaf hér á
síðunni.
Andoxunarkraftur smúðinga?
Þátturinn sem um ræðir heitir The
truth about eating healthy. Um er
að ræða heimildaþátt frá BBC sem
rannsakar hvað best sé fyrir mann-
inn að borða og drekka, til að öðlast
góða heilsu. Sjónvarpskonan Fiona
Phillips fær í þættinum hjálp frá vís-
indamönnum til að afhjúpa hvaða
fæðu og vítamín er skynsamlegast að
neyta.
Eitt af því sem tekið er fyrir í
þættinum eru svokallaðir heilsu-
drykkir (smúðingar í þýðingu RÚV)
sem eru ríkir af andoxunarefnum.
Þar er um að ræða ávexti og græn-
meti sem sett er í safapressu og
hrært saman. „Það er mikið talað
um andoxunarefni núna af því að
þau sópa víst upp ýmsum efnum
sem gætu reynst frumum líkamans
hættuleg og eru talin valda krabba-
meini og hrörnun. En ég velti fyrir
mér hvort það að drekka þetta færi
mér þann andoxunarkraft sem ég er
að leita að,“ segir Fiona í þættinum.
Eitt prósent efnanna í blóðrásina
Hún ræðir við Gordon McDoug-
all hjá James Hutton Institute, sem
sýnir fram á hvað verður um blá-
berjasafa, sem er ríkur af andoxunar-
efnum, þegar hann fer í magann og
svo þarmana. Hann setur bláberjasafa
í vökva sem samanstendur af efnum
sem líkja eftir þeim sem eru í mag-
anum. „Í maganum eru þau [efnin]
góð og virka sem andoxunarefni. Þau
blandast vel.“ Gordon setur safann svo
í aðra efnablöndu sem líkir eftir þeim
sem eru í þörmunum. „Þegar andox-
unarefnin fara inn í þarmana breytast
aðstæður og skyndilega eru þau ekki
mjög stöðug. Safinn dökknar og nú
sérðu að þessir þættir fara að brotna
niður sem verður til þess að lítið berst
inn í líkamann þar sem þau geta ver-
ið virk. Þessi andoxunarefni ná aldrei
inn í blóðrásina í því magni sem er í
berjunum í upphafi. Um 1 prósent
[andoxunarefnanna] fer í blóðrásina,“
segir hann í þættinum.
Gerði tilraun á sjálfri sér
Fiona framkvæmdi einnig tilraun
á sjálfri sér. Hún sneiddi hjá græn-
meti, ávöxtum, heilkornum og kaffi
í 48 klukkustundir, til að finna nátt-
úrulega grunnstöðu andoxunarefna.
Í staðinn borðaði hún kartöflur, hrís-
grjón, pasta og hvítt brauð. Og drakk
mjólk. Því næst var tekið blóðsýni til
að mæla náttúrulega stöðu andoxun-
arefna.
Að svo búnu tók við andoxun-
arefnakúr með smúðingi. Næstu
klukkustundir eftir inntöku voru
teknar margar blóðprufur, til þess að
athuga hvort neyslan yki andoxunar-
efni í líkamanum. Dr. Kirsten Brandt,
við Newcastle University, rannsak-
aði blóðið. Mælingar sýndu að í kjöl-
far þess að Fiona drakk smúðinginn
hafi andoxunarefni í líkamanum auk-
ist mikið; mikið af efnunum barst inn
í blóðið.
Lækkaði stöðu andoxunarefna
En þar með er sagan ekki öll. „En um
leið reynir líkaminn að losa sig við
þau því að þessar ókunnu sameind-
ir eiga ekki heima í líkamanum,“
segir hún í þættinum. „Og að lokum
verður minna af þeim en fyrir. Á átta
tímum [eftir neyslu] kemstu ekki
aftur upp í grunnstöðuna.“ Með
öðrum orðum leiddi smúðingurinn
til þess að minna af andoxunarefn-
um var í líkamanum, átta tímum eft-
ir inntöku.
Dr. Kirsten Brandt er þó ekki á því
að smúðingar séu skaðlegir. „Ég held
það nú ekki en þeir eru ekki gagn-
legir heldur.“ Hún segir að líkaminn
bregðist við og stilli af upptöku efn-
anna, eftir því hvað honum berst.
Líkaminn viðheldur hæfilegri stöðu
andoxunarefna í líkamanum og los-
ar sig við umframefni. „Við vitum
að andoxunarefni eru í ávöxtum og
grænmeti sem eru mikilvægur hluti
af hollu mataræði en að kaupa vöru
sem á að bæta andoxunarefnastöð-
una er peningasóun,“ segir Brandt. n
Heilsudrykkir draga
úr andoxunarefnum
n Líkaminn minnkar upptöku andoxunarefna við mikla neyslu n Mýtur um næringu afhjúpaðar
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
Gojiber Sjónvarpskonan Fiona Phillips sýnir fram á að gojiber veita fólki ekki meira af C-
vítamíni en jarðarber. Mynd BBC
„Heilsudrykkur“ Drykkir
sem þessir valda því líkaminn
dregur úr upptöku andox-
unarefna, þvert á það sem
margir halda. Mynd 123rf.CoM
Sorglegt að sjá fólk eyða
peningunum í heilsuvörur
Ó
lafur Gunnar er ánægður með
þáttinn og flest það sem
þar kom fram. Hann segir
hins vegar í samtali við DV
að í honum hafi svo sem ekkert nýtt
komið fram. „Um ýmsa þessa þætti
fjalla ég í bókinni minni, til dæmis um
ætlaðan undramátt kókoshnetuolíu.“
í þættinum ræðir Fiona við
næringarfræðing sem bendir á að
hefðbundin jurtaolía sé ekkert síðri fyrir
heilsuna – en margfalt ódýrari.
Ólafur Gunnar fagnar því að þátturinn hafi tekið á detox-ruglinu, sem hann kallar
svo. Hann segir að höfuðverkur sem fólk fái þegar það hætti að borða til að „hreinsa
líkamann“ sé ekki merki um að eiturefni séu að fara úr líkamanum heldur stafi höfuð-
verkurinn ekki síst af vökva- og orkuskorti.
Í þættinum var líka gerð prófun á hvaða morgunverður reynist veita fólki bestu
magafyllina til lengri tíma. Þar hafa soðin egg og grillað beikon yfirhöndina, sam-
anborið við jógúrt og banana annars vegar og hefðbundið morgunkorn hins vegar.
Próteinmagnið skiptir þar sköpum en beikon og egg máltíðin innhélt 25 grömm af
próteinum á meðan hinar tvær aðeins tíu grömm. En Ólafur Gunnar bendir á að prótein
sé saðsamasti orkugjafinn. Í hæfilegu magni sé það góður orkugjafi. Hins vegar vill
hann taka fram að þegar verið er að huga að máltíð þarf að taka með í reikninginn
fleiri þætti en saðsemi og hvað egg og beikon varðar að þá eru þau snauð af ýmsum
mikilvægum næringarefnum svo sem trefjum og mörgum vítamínum og steinefnum.
Persónulega segist hann frekar mæla með morgunverði eins og hafragraut með mjólk
sem mætti bragðbæta með t.d. rúsínum og hafa svo eitt egg með og ekki gleyma svo
að taka inn D-vítamíngjafa eins og eina teskeið af lýsi.
Ólafur Gunnar segir að líkaminn sé ansi flinkur að stilla sig af. Ef hann skorti tiltekið
næringarefni sé upptaka þess úr mat mjög mikil. Á sama hátt sé upptakan mun minni
ef næringarbúskapur líkamans, með tilliti til efnisins, er góður. Hann varar við ofneyslu
á hvers kyns næringarefnum. „Ef við spænum í okkur ógrynni af tilteknum næringar-
efnum þá getur það leitt til þess að líkaminn nái ekki að stilla sig eðlilega af og það
leitt til eitrunar, eins og dæmin sanna.“
Hann gagnrýnir fjölmiðla fyrir að dreifa oft á tíðum hálf dulbúnum auglýsingum í
formi frétta um gagnsemi „ofurfæðis“ og svokallaðra náttúru- og fæðubótarefna.
Hann varar fólk ekki síst við því að taka mark á vörum sem auglýstar eru með reynslu-
sögum. Þær hafi ekkert að segja um raunverulega virkni þess sem er auglýst.
Ólafur Gunnar vill að lokum hvetja fólk til að verða sér úti um ábyggilegar upplýs-
ingar um næringu, svo sem á vef Landlæknis.