Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2017, Side 8
Helgarblað 3.–6. febrúar 20178 Fréttir
Fylgist með okkur á Facebook.com/Lyfsalinn
Uppakomur • Leikir • Tilboð
Sjálfstætt starfandi
apótek í Glæsibæ
Okkar markmið er að veita þér og þínum framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf
Fylgist með okkur á Facebook.com/Lyfsalinn
Uppakomur • Leikir • Tilboð
Opnunartími: Virka daga 8.30-18
Laugardaga 10.00-14.00
Ósýnileg einkenni
Talið er að allt að 12 þúsund Íslendingar séu haldnir vefjagigt (fibromyalgia syndrome)
en um er að ræða langvinnan sjúkdóm eða heilkenni sem samanstendur af fjölmörgum
einkennum frá hinum ýmsu líffærakerfum og þykir oft og tíðum ansi óútreiknanlegt.
Helstu einkenni eru langvinnir og útbreiddir verkir frá stoðkerfi, almennur stirðleiki,
yfirþyrmandi þreyta og svefntruflanir. Þetta kemur fram á doktor.is.
Vefjagigtin getur þróast á löngum tíma og viðkomandi gerir sér litla grein fyrir í
fyrstu að eitthvað óeðlilegt sé í gangi. Verkir sem hlaupa til dag frá degi, stirðleiki og
yfirþyrmandi þreyta af og til eru oft byrjunareinkennin. Einkennin eru ekki viðvarandi í
fyrstu, koma og fara, ný einkenni bætast við. Smám saman vindur sjúkdómurinn upp á
sig þar til einkenni hverfa ekki langtímum saman. Einkennin eru mjög mismunandi milli
einstaklinga, bæði hvað fjölda varðar og hversu slæm þau eru. Vefjagigt getur verið
mildur sjúkdómur þar sem viðkomandi heldur nær fullri færni og vinnugetu, þrátt fyrir
verki og þreytu, en hann getur líka verið mjög illvígur og rænt einstaklinginn allri orku
þannig að hann er vart fær um annað en að sofa og matast.
Þar sem ekki sjást nein ummerki um sjúkdóminn, hvorki á sjúklingnum, né í
almennum læknisrannsóknum þá hafa þessir einstaklingar oft mætt litlum skilningi
heilbrigðisstarfsfólks, aðstandenda, vina eða vinnuveitenda. Enn þann dag í dag telja
sumir að vefjagigt sé í raun ekkert annað en verkjavandamál sem geti talist eðlilegur
hluti af lífinu og enn aðrir telja að um sé að ræða „ruslafötu greiningu“ það er að allt sé
kallað vefjagigt sem ekki er hægt að greina sem aðra „almennilega sjúkdóma.“
É
g hef aldrei heyrt neinn segja
að það sé frábært að vera með
vefjagigt.“ Þetta segir Hekla
Geirdal í samhengi við pistil
eftir leikkonuna Maríu Birtu
Bjarnadóttur sem birtist í vikunni
og vakti nokkra athygli. Í pistlinum
greinir María Birta frá því að henni
hafi verið mjög létt þegar hún
greindist með sjúkdóminn. Þá telur
María Birta að það helsta sem hrjái
vefjagigtarsjúklinga sé hreyfingar-
leysi.
Veik frá 12 ára aldri
Hekla, sem er 21 árs, greindist með
vefjagigt árið 2014. Hún hefur þó
fundið fyrir gigtinni frá því að hún
var 12 ára. Samhliða vefjagigt þjá-
ist Hekla af mígreni, þunglyndi og
kvíða sem er allt fylgifiskar gigtar-
innar. „Ég er búin að vera meira og
minna veik síðan í 8. bekk. Það að
vera með vefjagigt tekur alveg jafn
mikið á andlegu hliðina eins og þá
líkamlegu.“
Heklu þykir sárt að María Birta
skuli fullyrða um vefjagigtarsjúk-
linga og tala um þá sem eina heild.
Hekla bendir á að vefjagigt sé ótrú-
lega lúmsk og leggist misjafnlega á
fólk. Þá geti fólk verið með sjúkdóm-
inn á mismunandi stigum. „Sumir
geta að einhverju leyti haldið sjúk-
dómnum niðri með réttu mataræði
og hreyfingu á meðan aðrir komast
varla út úr húsi. Þetta er svo mis-
jafnt. Enginn vefjagigtarsjúklingur
velur að liggja upp í rúmi og gera
ekki neitt. Þetta er miklu flóknara en
það.“
Sökum verkja hefur Hekla þurft
að taka sér hlé frá námi. Hún vinn-
ur sem þjónn á veitingastað í miðbæ
Reykjavíkur um helgar en þarf að
slaka vel á á milli vakta til þess að
halda verkjunum í lágmarki. „Ég var
að vinna um síðustu helgi og finn
enn fyrir því í líkamanum í dag. Ég
fer næst að vinna um helgina og þarf
því að taka því mjög rólega alla vik-
una.“
Einstaklingsbundinn sjúkdómur
Hekla vonar að frásögn hennar veiti
almenningi innsýn í hvernig það er
að glíma við stöðuga verki og geta
með litlu móti stjórnað þeim. Þá
vill hún ítreka að mataræðið skipti
gríðarlega miklu máli þegar kemur
að því að halda einkennum sjúk-
dómsins í viðráðanlegu horfi. Þó er
það mjög misjafnt hvaða matur fer
vel í fólk og hvaða fæðutegundir ýta
undir gigtina.
„Flest okkar finnum mun þegar
við tökum út sykur. Og margir þola
illa rautt kjöt. En eins og með svo
margt annað sem tengist vefjagigt
þá er þetta mjög einstaklings bundið
líka.“
Það sem Heklu þykir verst við
sjúkdóminn er hversu félagslega
einangruð hún er. Þá segir hún að
fólk sem þekkir ekki gigt skilji ekki
alltaf hvernig það er að þurfa að lifa
við króníska verki.
„Suma daga neyði ég mig í
vinnuna. Hvert skref er svo sárt. Svo
koma dagar sem ég kemst ekki út
úr húsi. Þá daga get ég ekki hugsað
mér að brosa í gegnum sársaukann.
Sem betur fer koma góðir dagar inn
á milli.“
Þá segir Hekla að lokum: „Þetta er
kaldur veruleiki fjölmargra einstak-
linga sem eru með vefjagigt. Þetta
er líka hliðin sem fæstir þora að tala
um nema í lokuðum Facebook-hóp-
um þar sem fólk er enn með for-
dóma í garð sjúkdómsins.“ n
„Suma daga neyði
ég mig í vinnuna“
Hekla Geirdal gagnrýnir Maríu Birtu fyrir að setja alla vefjagigtarsjúklinga undir sama hatt
Kristín Clausen
kristin@dv.is
Erfitt „Ég er búin að vera meira og minna
veik síðan í 8. bekk. Að vera með vefjagigt
tekur alveg jafn mikið á andlegu hliðina eins
og þá líkamlegu,“ segir Hekla. mynd siGtryGGur ari
Aldrei
meiri kaup-
máttur
Þrátt fyrir að dregið hafi úr
hraða launahækkana hefur
kaupmáttur haldið áfram að
aukast og var hann 7,1 pró-
senti meiri í desember 2016
en í desember 2015. Þetta kom
fram í Hagsjá Landsbankans á
fimmtudag.
Þar kom einnig fram að árið
2016 hafi verið einstakt hvað
varðar launaþróun og aukn-
ingu kaupmáttar. Launavísi-
talan hefur ekki hækkað meira
síðastliðinn aldarfjórðung.
Laun í landinu hækkuðu að
meðaltali um 11,4 prósent á
milli áranna 2015 og 2016 sem
er mun meiri hækkun en á síð-
ustu árum.
Þar sem verðlagsþróun hefur
verið hagstæð skiluðu launa-
breytingarnar á árinu 2016 mik-
illi kaupmáttaraukningu. Jókst
kaupmáttur meðallauna um
9,5 prósent frá árinu 2016 en til
samanburðar minnkaði kaup-
máttur á milli áranna 2007 til
2010 um rúmlega 11 prósent.
Síðan þá hefur hann aukist
stöðugt en frá nóvember 2014
til ársloka 2016 hefur kaup-
máttur aukist um tæp 15 pró-
sent og er nú meiri en nokkru
sinni fyrr.