Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2017, Side 13
Helgarblað 3.–6. febrúar 2017 Fréttir 13
Björgunarsveitin: „eins og önn-
ur fjölskylda“
Daníel Þór Ágústsson var nýliði í
ferðinni og segir hann að það hafi
tekið um fjóra tíma að gera snjó-
húsið. „Þegar við höfðum gengið
upp Botnssúlur lærðum við hvern-
ig gera á snjóhús. Það þarf að hafa
nóg af snjó, minnst þriggja metra
hátt snjólag. Undir venjulegum
kringumstæðum myndi maður
byggja snjóhús fyrir einn en á nám-
skeiðinu vorum við sex í einu snjó-
húsi. Um nóttina var kalt úti, eða um
mínus fjórtán gráður. Snjó-
húsið var vel einangrað og
hélt okkur heitum í gegnum
nóttina,“ segir Daníel Þór.
„Þetta er afskaplega góður
félagsskapur en björgunar-
sveitin er eins og önnur fjöl-
skylda. Það er líka gott að geta
gefið eitthvað af sér,“ segir
Daníel Þór sem segir að um-
fram allt sé starfið mjög skemmti-
legt. Frá því hann byrjaði í þjálf-
un, árið 2015, hefur hann sinnt um
átta útköllum og tók meðal annars
þátt í leitinni að Birnu Brjánsdóttur
á dögunum. „Ég tók bæði þátt í fín-
leitinni á Reykjanesi og svo er ég líka
starfandi í bátaflokki sem fínkembdi
hafnarsvæðið í Hafnarfirði,“ segir
Daníel.
Hópheildin hvetur mann áfram
Sigrún Ósk segir ótrúlega upplifun
fólgna í því að fylgjast með 800 björg-
unarsveitum fínkemba Reykjanesið.
„Það sem hvetur mann áfram, til að
byrja með, er að vera hluti af þessari
heild. Það er ótrúlegt að finna fyrir
því hvað heildin getur gert mikið, sér-
staklega í ljósi síðastliðinna atburða,“
segir hún. „Eina sem þarf til að taka
þátt er að vera orðinn 18 ára og hafa
áhuga á útivist. Á þjálfunartímabil-
inu verða einstaklingar svo færir í að
sinna hvers konar útköllum sem geta
verið afar ólík,“ segir Sigrún.
Þjálfunarferlið samanstendur
af námskeiðum aðra hverja helgi
og fundum einu sinni í viku yfir 18
mánaða tímabil. Á námskeiðunum
læra nýliðarnir rötun, skyndihjálp,
ferða- og fjallamennsku, ísklifur,
leitartækni, umgengni við þyrlur og
meðferð björgunarbáta sveitarinnar.
Öll námskeiðin eru kennd af sjálf-
boðaliðum sem björgunarsveitin
hefur menntað sem leiðbeinendur.
Nýliðarnir borga ársgjald upp á
15.000 krónur en öll námskeiðin eru
á kostnað sveitarinnar sem útvega
nýliðum allan sérhæfðan búnað,
svo sem ísaxir, sigbelti og brodda. „Í
staðinn gerum við þá kröfu að ný-
liðar skuldbindi sig til að taka þátt
í starfi sveitarinnar,“ segir Sigrún.
Að loknu þjálfunarferli verða nýlið-
ar fullgildir björgunarsveitarmenn.
Þá geta þeir bætt við sig ýmsu sér-
námi svo sem fjallabjörgun eða leit
að fólki.
„Það er alveg ljóst að áhugi á
okkar starfi hefur aukist“
Nýliðaþjálfun hefst á haustin ár
hvert og fer fram af björgunarsveit-
um á landsvísu. Það sem hvetur
nýliða og björgunarsveitarmenn
áfram er kröftug hópheild sem
landsmenn hafa sérstaklega fylgst
með síðastliðinn mánuð. „Það er
alveg ljóst að áhugi á okkar starfi
hefur aukist,“ segir Þorsteinn G.
Gunnarsson, upplýsingafulltrúi
Landsbjargar, í samtali við DV.
Hann segir að þegar nýliðastarf
hefst á ný í haust muni koma í ljós
hvort nýliðnir atburðir verði til þess
að fleiri taki þátt í starfi björgunar-
sveitanna en áður. n
„Um nóttina
var kalt úti
eða um mínus fjórtán
gráður. Snjóhúsið
var vel einangrað og
hélt okkur heitum yfir
nóttina.
Finna hentugan stað í snjóhengjunni
„Þegar búið er að velja stað þarf að hefjast handa
og grafa sig ofan í sjóinn,“ segir Sigrún Ósk. Mynd
daníel Þór Ágústsson
„eins og önnur fjölskylda“ Daníel Þór segir
að umfram allt sé starfið afskaplega skemmti-
legt og félagsskapurinn góður.
Mynd daníel Þór Ágústsson
Kúnst að byggja snjóhús „Það þarf til dæmis að ganga úr skugga
um að rúmið sé hærra en gólfið því það kemur svo gríðarlegur kuldi
upp úr gólfinu,“ segir Sigrún Ósk. Mynd daníel Þór Ágústsson
sterk hópheild „Það sem hvetur mann áfram, til að byrja með, er að vera
hluti af þessari heild. Það er ótrúlegt að finna fyrir því hvað heildin getur gert
mikið,“ segir Sigrún Ósk. Mynd daníel Þór Ágústsson
sjálfbjarga á vetrarkvöldum
Nýliðar læra að vera sjálfbjarga í íslenskri
náttúru, hvernær sem er sólahrings, allan
ársins hring. Mynd daníel Þór Ágústsson
Borgartún 23, Reykjavík / Sími: 561 1300 / Opið: mán. - fös. 10-18, lau. 11-18 & sun. 12-16
Þú getur líka pantað á netinu www.reykjavikurblom.is
Blóm og gjafavara
við öll tækifæri
Góð og
persónuleg
þjónusta
Skírn - Fermingar - Brúðkaup - Samúð - Útfarir
Léttu á þér í meistaramánuði
20% afsláttur af Neera sítrónukúr í febrúar!