Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2017, Page 15
Helgarblað 3.–6. febrúar 2017 Fréttir 15
yfir nótt og koma svo að bílnum full-
hlöðnum að morgni. Á meðan þú get-
ur fengið allt að 80 prósent hleðslu á
30 mínútum í hraðhleðslu, getur tek-
ið 10–12 tíma að hæghlaða rafbíl að
fullu í venjulegri innstungu heima-
fyrir.
Noregur stendur öðrum þjóðum
framar í rafbílavæðingu en þar eru
rafbílar rúm 22 prósent af bílaflotan-
um, samanborið við rúmlega 1 pró-
sent hér á landi. Tugir þúsunda Norð-
manna eiga rafbíla en þar er líka að
finna mörg hundruð hraðhleðslu-
stöðvar, víðs vegar um landið. Ef við
miðum við verðlagningu í Noregi, er
ástæða til að hafa eilitlar áhyggjur.
Samkvæmt athugun DV á verði
Fortum Charge & Drive, sem er
stærsta hraðhleðslustöðvakeðja
Noregs með 130 stöðvar, kostar mín-
útan 2,5 norskar krónur með orkulykli
eða appi fyrirtækisins. Það gera 34,34
íslenskar krónur miðað við núverandi
gengi. Hálftími í slíkri stöð myndi því
kosta rúmar þúsund krónur íslenskar.
Ljóst er að rafbílaeigendur á Ís-
landi munu vona að ON miði ekki
við slíka verðlagningu enda myndi
það þýða að rafmagnið yrði litlu
ódýrara en bensín. Hér á landi er
algengt verð á 95 okt. bensíni 195,4
krónur í sjálfsafgreiðslu. Ef bensín-
bíll eyðir 5 lítrum á hundraði kostar
það 1.465 krónur að fara 150 kíló-
metra sem er raunhæf drægni full-
hlaðins rafbíls hér á landi. Að full-
hlaða rafbíl í um 40 mínútur á
norsku stöðinni myndi til sam-
anburðar kosta um 1.373 krónur.
Margar mismunandi útfærslur eru
síðan á verðlagningu hraðhleðslu-
fyrirtækja, sum taka startgjald og
síðan lægra verð fyrir hverja mín-
útu á meðan önnur rukka meira
fyrir fyrsta korterið og síðan er hver
mínúta eftir það ódýrari og allt þar
á milli. Eru þá ótaldar áskriftarleiðir
og önnur vildarkjör.
Fróðlegt verður því að sjá hvernig
útfærsla á verði verður hjá ON hér á
landi. n
Stáltech ehf. - tunguhálSi 10, Reykjavík - S: 5172322
CNC renniverkstæði
( 893 5888
Persónuleg
og skjót
þjónusta
þú finnur
okkur á
facebook
Olíufélögin fengu 55 milljónir
N1, Skeljungur og Olís sjá möguleika í rafmagninu
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra staðfesti þann 30. desember síðastliðinn tillögu
ráðgjafanefndar Orkusjóðs um úthlutun styrkja til uppbyggingar innviða fyrir rafbíla.
Líkt og fram kemur í umfjöllun DV hér á opnunni var 201 milljón króna úthlutað til 16
verkefna næstu þrjú árin. Þar af fékk Orka Náttúrunnar 57,1 milljón. Athygli vekur að
stóru olíufélögin þrjú, N1, Skeljungur og Olís fengu alls 54,6 milljóna styrk til að koma
upp 11 hraðhleðslustöðvum á tímabilinu. Olíufélögin vilja því augljóslega fá sinn skerf
af rafbílavæðingunni, sem vonir standa til að leysi í framtíðinni af hólmi þeirra helstu
söluvöru, jarðefnaeldsneyti.
Þessi verkefni fengu styrk:
Aðili HrAðHleðslA Venjuleg sTyrkur
kr.
Austurbrú ses 0 13 7.506.560
Árborg 0 5 3.725.000
garðabær 1 0 3.260.000
Hafnarfjarðarbær 1 0 4.000.000
Hs Orka hf 3 1 9.050.000
isavia ohf 1 0 4.500.000
Mosfellsbær 0 3 2.295.000
n1 hf. 3 0 15.000.000
Olíuverzlun Íslands hf 4 0 19.625.000
skeljungur hf 4 0 20.000.000
Orka náttúrunnar 14 4 57.100.000
OV ohf 2 3 11.600.000
reykhólahreppur 1 0 2.500.000
reykjavíkurborg 0 29 10.947.500
umhverfisstofnun 1 0 4.000.000
Vistorka hf 7 5 26.050.000
Eru þetta blóðpeningar
í þínum augum?
Augljós sparnaður fólginn í því að kaupa ekki eldsneyti
Hagkvæmni, sparnaður og umhverfisvitund eru vafalaust meðal helstu ástæðna þess
að fólk tekur stökkið og skiptir úr bílum sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti yfir í hreinan
rafmagnsbíl. Sífellt fleiri meta það svo að þessir þættir vegi þyngra en hugsanlegar
hömlur sem fylgja takmarkaðri drægni rafbíla samanborið við eldsneytisbíla.
Óútreiknanlegar sveiflur í eldsneytisverði undanfarin ár hafa opnað augu margra
fyrir áhrifum þessa kostnaðarliðar hvers heimilis á veski þeirra. Rekstrarkostnaður
rafbíla er langtum lægri. Á meðan rafmagnið er tiltölulega ódýrt, og hefur verið ókeypis
undanfarin ár þá hefur verð á bensínlítranum verið um og yfir 200 krónur undanfarin
misseri. Er verðið nú í um 195 krónum fyrir 95 okt. bensín. Þú þarft ekki að fara með raf-
bíla í olíuskipti og þá losa þeir engan koltvísýring. Viðhaldskostnaður er umtalsvert lægri
þar sem aðeins eru fjórir hreyfanlegir hlutar að jafnaði í rafmagnsvélum á meðan þeir
eru um þúsund í eldsneytismótor. Á meðan dugar ein þjónustuskoðun á ári fyrri rafbílinn.
Auðvitað geta allir hlutir bilað, en það er færri íhlutir til að bila í rafbílum.
En tökum til gamans dæmi um hvað þú gætir sparað þér í eldsneytiskostnað með
því að skipta yfir í rafmagnsbíl. Ef þú átt bíl sem eyðir 5 l/100km og ekur 15 þúsund
kílómetra á ári þá eyðir þú um 146.250 krónum á ári, bara í bensín. Ef þú ekur 30 þúsund
kílómetra eyðir þú 292 þúsund krónum.
Þumalputtareglan hefur verið að orkukostnaðurinn við rafbíla sé aðeins um þriðj-
ungur, jafnvel fjórðungur af eldsneytiskostnaði bensínbíla á ársgrundvelli.
Þannig má áætla að orkukostnaður rafbílaeiganda, sem ekur bílnum 15 þúsund
kílómetra á ári nemi um 40–50 þúsund krónum. Aki hann 30 þúsund kílómetra á ári sé
upphæðin á bilinu 70–100 þúsund.
Algeng staða Rafbílaeigendur í Reykjavík eru farnir
að bíða óþreyjufullir eftir fleiri hraðhleðslustöðvum í
samræmi við fjölgun rafbíla á götum borgarinnar. Biðraðir
myndast iðulega við þá hleðslupósta sem í boði eru í dag
þar sem aðeins einn bíll getur hlaðið í einu. Mynd sMj