Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2017, Síða 16
Helgarblað 3.–6. febrúar 201716 Fréttir Erlent
Þögnin rofin
60 árum síðar
n Emmett var fórnarlamb hatursglæps
n Ný bók varpar ljósi á grimm örlög
Í
rúm 60 ár hefur Carolyn Bryant
Donham lítið sem ekkert tjáð sig
um hvað gerðist einn örlagaríkan
dag í ágústmánuði 1955 þegar leið
ir hennar og fjórtán ára blökku
manns, Emmett Louis Till, lágu
saman. Nokkrum dögum síðar fannst
illa farið lík Emmetts í Tallahatchie
ánni í Mississippi í Bandaríkjunum.
Færa má rök fyrir því að morðið
á Emmett hafi markað upphafið
að réttindabaráttu blökkumanna
í Bandaríkjunum upp úr miðri 20.
öldinni – og það sem meira er, gefið
baráttunni byr undir báða vængi.
Pyntaður og skotinn
Leiðir Carolyn og Emmetts lágu
saman í verslun einni í smábænum
Money í Mississippi þann 24. ágúst
1955 þar sem Carolyn vann. Emmett,
sem bjó í Chicago, var í heimsókn
hjá ættingjum sínum þegar hann
fór inn í verslunina sem var í eigu
Carolyn og eiginmanns hennar, Roy.
Carolyn, sem þá var 21 árs, var á vakt
þennan dag. Lengi var því haldið
fram að Emmett hefði sýnt Carolyn
kynferðis lega tilburði; móðgað hana,
flautað að henni, snert hönd hennar
eða gripið um mitti hennar. Hvað
sem því líður var Emmett rænt af
heimili frændfólks síns fjórum dög
um síðar; áverkar á líki hans gáfu til
kynna að hann hefði verið pyntaður
áður en hann var skotinn í höfuðið.
Sýknaðir af hvítum kviðdómi
Tveir menn voru handteknir grun
aðir um morðið á Emmett, versl
unareigandinn Roy Bryant, eigin
maður Carolyn, og hálfbróðir hans,
J. W. Milam, sem
báðir voru hvítir.
Þeir voru hins
vegar sýknaðir
af kviðdómi sem
einungis var skip
aður hvítum karl
mönnum þótt
þeir hefðu löngu
síðar viðurkennt
í viðtali við Look
Magazine að hafa
myrt drenginn.
Þar sem búið
var að rétta yfir
þeim og sýkna
var ekki hægt að
ákæra þá að nýju.
Sögðu þeir í við
talinu að dreng
urinn hefði átt þessi örlög skilið þótt
öllum megi vera ljóst að glæpurinn,
ef glæp skyldi kalla, hefði ekki verið
alvarlegur. Þó var ljóst að morðið var
hatursglæpur og vatn á myllu þeirra
sem börðust gegn misrétti í garð
þeldökkra, sérstaklega í suðurríkjum
Bandaríkjanna. Þess má geta að Roy
og Milam eru báðir látnir líkt og
flestir þeirra sem voru grunaðir um
aðild að morðinu.
Þegar málið var tekið til
meðferðar fyrir dómstólum sagði
Carolyn að Emmett hefði gripið í
hönd hennar, hún dregið höndina í
burtu en Emmett hefði elt hana bak
við afgreiðsluborðið. Þar hefði hann
sett hendurnar um mitti hennar og
viðhaft dónatal þegar hann sagðist
áður hafa verið með hvítri konu.
Annar framburður
Carolyn, sem í dag er 82 ára, opnar
sig um þetta í nýrri bók, The Blood
of Emmett Till, sem kemur út í
næstu viku. Þar lætur hún merkileg
ummæli falla sem eru á þá leið að
framburður hennar um þennan þátt
málsins, að Emmett hafi áreitt hana
kynferðislega, hefði ekki verið sann
leikanum samkvæmur. „Hún sagði
að það væri ekki rétt, en í hreinskilni
sagt segist hún ekki muna nákvæm
lega hvað gerðist,“ segir Timothy
B. Tyson, sagn
fræðiprófessor
við Dukeháskóla
og höfundur bók
arinnar.
Timothy fékk
áhuga á mál
inu árið 2008
þegar tengda
dóttir Carolyn
hafði samband
við hann. Sagð
ist hún hafa hrif
ist af annarri bók
eftir Timothy og
vildi hitta hann.
Þar ræddi hún
við hann um mál
Emmetts og við
það kviknaði áhugi
hans á mál inu, afraksturinn
er umrædd bók þar sem hann ræð
ir meðal annars við Carolyn. Í bók
inni segir Carolyn meðal annars að
skömmu eftir að Emmett var myrtur
hafi Roy flutt hana milli staða svo
lögregla hefði ekki upp á henni og
hún hugsanlega talaði af sér. Segir
hún að Roy hafi beitt hana ofbeldi
meðan á hjónabandinu stóð, en
þau skildu síðar. „Hún virðist hafa
verið beitt valdi þegar hún sagði frá
málavöxtum á sínum tíma. Henni
líður illa yfir þessu og hún glímir
augljóslega við samviskubit og
sektar kennd,“ segir Timothy við New
York Times um málið.
Skiptir máli
Þó að þessi framburður Carolyn
breyti litlu fyrir heildarmyndina
skiptir hann máli fyrir aðila máls
ins, þá sérstaklega aðstandendur
Emmetts. „Ég var að vona að ein
hvern daginn myndi hún opna sig,
það skiptir mig máli að hún hafi
gert það,“ segir Wheeler Parker, 77
ára frændi Emmetts. „Það er mikil
vægt að fólk skilji hvernig var litið á
orð hvítra gegn svörtum sem lög – og
margir blökkumenn létust af þeim
sökum. Þetta mál sýnir hvað blökku
menn þurftu að ganga í gegnum á
þessum tíma.“ n
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Sagði ósatt
Carolyn viður-
kennir að hafa
sagt ósatt þegar
hún sagði að
Emmett hefði
áreitt hana kyn-
ferðislega.
Myrtur Emmett var í heimsókn hjá
ættingjum sínum í Mississippi þegar
hann var myrtur árið 1955.
VIÐ ERUM ÓDÝRARI
EN ÞIG GRUNAR
SPRENGJUVERÐ
Á LED FLÓÐKÖSTURUM FYRIR VERKTAKA
Ludviksson ehf - Ledljós
Flatahraun 31 - Hafnarfirði
www.ledljós.is
LEDLÝSING
VINNUKASTARAR
80-90% SPARNAÐUR
Gæði - ábyrgð og
brautryðjendur í betri verðum ...
20W og upp í 1000w LED kastarar
Bláuhúsin v. Faxafen
s: 568 1800 s: 588 9988 s: 511 2500
Kringlunni Skólavördustíg 2
Bestir í sjónmælingum
Tímapantanir í síma