Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2017, Blaðsíða 19
Helgarblað 3.–6. febrúar 2017 Fréttir Erlent 19
Í takt við tímann
• Við erum flutningsmiðlun og sjáum um að koma vörum milli landa.
• Við byggjum á víðtækri reynslu úr flutningaheiminum.
frakt flutningsmiðlun / sundagörðum 2 , 104 reykjaVík / sími: 520 1450
Iman
Fyrirsæta
Fyrirsætan Iman, eða
Zara Mohamed Abdulma
jid, fæddist í Sómalíu árið
1955. Hún flutti ung til
Bandaríkjanna þar sem hún
hóf fyrirsætuferil sinn. Iman
var á hátindi ferilsins á
áttunda og níunda áratug
liðinnar aldar og af mörg
um talin brautryðjandi á
sínu sviði. Iman giftist
tónlistarmanninum
David Bowie árið 1992
og voru þau hjón allt
þar til Bowie lést á
liðnu ári.
Steve Jobs
Stofnandi Apple
Frumkvöðullinn Steve Jobs, einn
af stofnendum tölvurisans Apple,
var sonur Abdulfattah Jandali sem
fæddist í Homs í Sýrlandi en flutti
til Bandaríkjanna til að stunda
háskólanám. Þar kynntist Abdulfattah
móður Jobs. Jobs, sem lést árið 2011, var
síðan ættleiddur skömmu eftir fæðingu
af hjónunum Paul Reinhold Jobs og Clöru
Hagopian. Líffræðileg móðir Jobs var
bandarísk en af þýskum og svissneskum
ættum. Hún varð ólétt að Jobs sumarið 1954
þegar hún og Jandali heimsóttu fjölskyldu
Jandali í Homs. Þar sem þau voru ekki gift
var litið á það sem skömm að eign
ast barn utan hjónabands.
Af þeim sökum, meðal
annars, var Jobs gefinn
til ættleiðingar.
Alia Shawkat
Leikkona
Alia Shawkat er einna best þekkt
fyrir leik sinn í þáttunum Arrested
Development þar sem hún túlkaði
Maeby Fünke á eftirminnilegan
hátt. Shawkat, sem er 28 ára, hef
ur leikið í fjölmörgum þáttum og
bíómyndum síðan þá. Faðir henn
ar, Tony Shawkat, flutti frá Írak
til Bandaríkjanna árið 1978. Tony
þessi er einnig leikari en hann kom
meðal annars fram í myndinni
Three Kings frá árinu 1999.
Paula Abdul
Tónlistarkona
Paula Abdul, sem var dómari
í American Idol um árabil, á
ættir að rekja til Sýrlands. Faðir
hennar, Harry Abdul, fæddist
í Aleppo í Sýrlandi en ólst að
mestu upp í Brasilíu, eða allt
þar til hann flutti til Bandaríkj
anna ásamt fjölskyldu sinni.
Paula er mjög þekkt í tónlistar
heiminum í Bandaríkjunum og
hefur hún verið tilnefnd til og
unnið til fjölmargra verðlauna
á því sviði.
Brandon Saad
Landsliðsmaður í íshokkí
Brandon Saad er 23 ára íshokkíleikmaður hjá
Columbus Blue Jackets. Hann hefur unnið Stanley
bikarinn tvisvar með Chicago Blackhawks og var
valinn í stjörnulið NHLdeildarinnar í fyrra. Þá er
Brandon landsliðsmaður Bandaríkjanna í íþróttinni.
Faðir Saads er sýrlenskur flóttamaður sem kom
til Bandaríkjanna 18 ára gamall. Frændsystkin
Brandons eru enn búsett í hinu stríðshrjáða landi.
Sean Rad
Frumkvöðull og stofnandi Tinder
Sean Rad er þekktastur sem einn af mönnunum á bak við stefnumótasmáforritið Tinder.
Rad er sonur íranskra hjóna sem fluttu til Los Angeles á áttunda áratug liðinnar aldar.
Foreldrar hans unnu í tæknigeiranum og Rad fylgdi í fótspor þeirra. Rad stofnaði sitt fyrsta
fyrirtæki 18 ára gamall áður en Tinder fór í loftið árið 2012.
F. Murray Abraham
Óskarsverðlaunaleikari
F. Murray Abraham, 77 ára, er bandarískur leikari
sem vann til Óskarsverðlauna árið 1984 fyrir leik
sinn í myndinni Amadeus. Abraham, sem fæddist
árið 1939, er sonur Fahrid Abraham, bifvélavirkja
sem flutti til Bandaríkjanna fimm ára
gamall frá Sýrlandi. Fjölskylda
Fahrids flúði frá Sýrlandi í
kjölfar hungursneyðar sem
þar ríkti. Abraham
hefur leikið í fjölda
kvikmynda á ferli
sínum, meðal
annars All the
President‘s Men,
Scarface og nú
síðast The Grand
Budapest Hotel.
Þá leikur hann
einnig í þáttunum
Homeland.