Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2017, Blaðsíða 20
Helgarblað 3.–6. febrúar 201720 Skrýtið
Óvæntur afli gæti
kostað lífstíðardÓm
n Thomas Breeding fann dularfullan pakka í hafinu n Innihaldið var milljóna virði
Þ
etta atvik breytti lífi mínu
og gerði mig meðvitaðri
um þær hættur sem geta
leynst úti á rúmsjó,“ segir
Thomas Breeding, 32 ára
sjómaður í Panama City á Flórída í
Bandaríkjunum. Thomas þessi gæti
verið á leið í lífstíðarfangelsi eftir að
hafa tekið afdrifaríka ákvörðun eftir
veiðiferð í Mexíkóflóa í janúar í fyrra.
Grunsamlegur pakki
Þennan dag fann Thomas, sem var
skipstjóri á litlum línubáti, grun
samlegan pakka í sjónum undan
ströndum Bandaríkjanna, nánar
tiltekið í Mexíkóflóa. Við nánari
eftir grennslan kom í ljós að um
var að ræða kókaín, alls tuttugu
kíló. Í stað þess að koma efnunum í
hendur lögreglu tók Thomas þá af
drifaríku ákvörðun að
reyna að koma efnun
um í umferð í von um
skjótfenginn gróða.
Það hefði hann betur
látið ógert.
Stórfellt misferli
Breeding var í hópi
fimm manns sem
lögreglan handtók
í fyrrasumar vegna
gruns um stórfellt
fíkniefnamisferli.
Eftir að Thomas kom
í land með efnin
hafði hann samband
við einstaklinga sem
höfðu reynslu af sölu
fíkniefna. Fjórmenn
ingarnir sem Thomas nálgaðist
töldu sig geta komið kókaíninu í
verð og átti Thomas að fá hluta af
hagnaðinum. Áætlanirnar fóru
út um þúfur því lögreglan komst
á snoðir um málið og voru allir
fimm handteknir í kjölfarið. Í frétt
Panama City News Herald kemur
fram að allir hafi játað sína aðild
að málinu og bíða þeir nú dóms í
málinu sem fellur þann 16. febrúar
næstkomandi.
Fólk átti sig á hættunni
„Ég vil að fólk viti af þessari hættu
og viti hvað það á ekki að gera ef
þeir lenda í sömu aðstæðum og
ég,“ sagði Breeding í bréfi sem
hann skrifaði Panama City News
Herald. Ekki er talin ástæða til að
rengja það að Thomas hafi fund
ið pakkann fyrir tilviljun en ásetn
ingur hans um að koma efnunum
í umferð er litinn mjög alvarlegum
augum af saksóknurum vestan
hafs, enda var magnið mikið og
mikils virði. Hámarksrefsing fyrir
brot af þessu tagi er lífstíðarfang
elsi eins og fyrr segir.
Harðduglegur sjómaður
Í bréfi sínu til Panama City News
Herald segir Thomas að hann hafi
verið á veiðum um 80 kílómetra
frá landi þegar hann rakst á pakk
ann í hafinu. Hann segist hafa talið
að innihald hans, kókaínið, myndi
breyta lífi hans til frambúðar. Það
hefur sannarlega gengið eftir en
ekki á þann veg sem Thomas ætl
aði. „Ég vissi ekki hvaðan kókaínið
kom og hef aldrei verið viðriðinn
fíkniefnaviðskipti áður. Ég var bara
harðduglegur og ungur sjómaður,“
segir hann en þess er þó getið að
Thomas hafi áður hlotið dóm fyrir
vörslu fíkniefna. Dómur í málinu
fellur um miðjan febrúar sem fyrr
segir. n
Vandræði Thomas Breeding gæti átt
lífstíðardóm yfir höfði sér.
Á veiðum Thomas
var á veiðum undan
ströndum Bandaríkj-
anna í janúar í fyrra
þegar hann rakst á
pakkann.
„Ég vissi ekki
hvaðan kókaínið
kom og hef aldrei verið
viðriðinn fíkniefna
viðskipti áður.
Eyravegi 23, Selfossi - S: 555 1314 - hannyrdabudin.is
Póst-sendum um allt land
Garn í sjöl