Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2017, Qupperneq 22
Helgarblað 3.–6. febrúar 2017
Heimilisfang
Kringlan 4-12
4. hæð
103 Reykjavík
fréttaskot
512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7000
512 7050
aðalnúmer
ritstjórn
áskriftarsími
auglýsingar
sandkorn
22 Umræða
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson
Ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Kristjón Kormákur Guðjónsson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson
Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
S
ú grein almennra hegn-
ingarlaga (95. grein) sem boð-
ar sektir eða fangelsi við því að
smána erlenda þjóð eða þjóð-
höfðingja erlendra ríkja er einkenni-
leg. Það er einkar vandræðalegt
til þess að vita að í eitt af þeim fáu
skiptum sem reynt hefur á ákvæðið
var þegar ritsnillingurinn Þórbergur
Þórðarson var dæmdur fyrir að hafa
kallaði Adolf Hitler blóðhund. Þar
var ekkert ofmælt, eins og okkur er
öllum ljóst.
Ef þingmenn hefðu staðið vaktina
hefði verið búið að fella
þetta fáránlega ákvæði
úr gildi fyrir löngu. Það
eiga ekki að vera til sér-
lög um að refsivert sé að
móðga þjóðhöfðingja.
Því ber að fagna að þing-
menn Vinstri grænna
hafa lagt fram frumvarp
þess efnis að þessi grein
hegningarlaga standi ei
meir. Frumvarpið hefur
áður verið lagt fram en
náði ekki fram að ganga,
sennilega vegna sinnu-
leysis þingmanna. Þetta
er frumvarp sem full
samstaða ætti að vera
um á þingi. Við hljótum
að gefa okkur að þing-
menn séu allir talsmenn
tjáningarfrelsis. Hér
er komin góð sending
frá Vinstri grænum og
henni á að taka fagn-
andi.
Samkvæmt hinni
óþörfu og furðulegu
grein væri hægt að sekta þingmann
Pírata, Ástu Guðrúnu Helgadóttur,
fyrir þessi orð sem hún lét nýlega
falla í ræðu á Alþingi: „ Notum rétt
orð þegar þau eiga við: Donald
Trump er fasisti.“ Blessunarlega er
samfélag okkar lýðræðisþjóðfélag og
þar hefði Ásta Guðrún aldrei verið
sektuð, hvað þá varpað í fangelsi
fyrir dóm sinn um forseta Banda-
ríkjanna, því öllum er ljóst að þetta
ákvæði almennra hegningarlaga er
algjörlega úr takti við nútímahugs-
unarhátt. Samt er ákvæðið þarna
ennþá.
Nú geta menn haft ólíkar skoðan-
ir á orðum Ástu Guðrúnar um hinn
mjög svo umdeilda forseta Banda-
ríkjanna. Vissulega má flokka orð
hennar sem ókurteisi eða taktleysi,
en alls ekki sem fúkyrðaflaum. Orðin
eru að mörgu leyti skiljanleg. Donald
Trump er talsmaður harðrar þjóð-
ernisstefnu, hefur talað ítrekað niður
til kvenna, flokkar múslima sem
hryðjuverkamenn og viðhefur niðr-
andi ummæli um minnihlutahópa.
Hann hefur horn í síðu frjálsra fjöl-
miðla og þráir greinilega að koma
böndum á þá. Hann hefur engan
veginn sýnt að hann sé sérstakur
talsmaður mannréttinda. Frá því
hann var formlega settur í embætti
hefur hann tekið alls kyns ákvarðan-
ir sem lýðræðislega þenkjandi fólki
hugnast ekki. Það er ekki einkenni-
legt að þetta sama fólk leiði hug-
ann að fasismanum þegar kemur að
Donald Trump.
Vinstri græn hafa stigið gott skref
með frumvarpi sínu um breytingu á
95. grein almennra hegningarlaga.
Frumvarpið fær vonandi afgreiðslu
og samþykki þingsins. Það verður
saga til næsta bæjar ef einhver þing-
maður leggst gegn því. n
Góð sending frá Vinstri grænum
Götur án bíla
Á bloggsíðu sinni fer Björn Bjarna-
son, fyrrverandi ráðherra, hörð-
um orðum um stefnu meirihluta
borgarstjórnar í samgöngumál-
um og beinir sérstaklega spjót-
um að Hjálmari Sveinssyni. Full-
trúar meirihluta
borgar stjórnar,
undir formennsku
Hjálmars, í um-
hverfis- og
skipulagsráði
felldu á dögun-
um tillögu full-
trúa Sjálfstæðisflokksins um að
leita umsagnar Vegagerðarinnar,
lögreglunnar, Samgöngustofu og
samtaka sveitarfélaga áður en
skýrsla starfshóps um lækkun
umferðarhraða á götum borgar-
innar vestan Kringlumýrar-
brautar yrði tekin til afgreiðslu.
Björn segir um þetta: „Hroki
meirihlutans undir forystu
Hjálmars Sveinssonar er í sam-
ræmi við annað sem frá honum
kemur. Stefna hans um byggingar
án bílastæða og götur án bíla er
í ætt við ofríkisstefnur sem þola
hvorki skoðun né umræður.“
Ég veit eiginlega
ekki hvar ég enda
Ólafur Snævar hefur verið á biðlista eftir búsetu í 11 ár. – DV
Við tökum upp söngvara,
hljóðfæraleikara, hljómsveitir,
hljóðbækur, og margt fleira
Stúdíó
NORN
Síðumúla 17, 108 Reykjavík • Sími 561 7200 • studionorn.is • facebook.com/studionorn
Kannski vel ég
að fara í fangelsi
Sturla Þórðarson var dæmdur fyrir hatursummæli. – DV
Það hefur eitthvað
gengið á
Hjörvar Hafliðason um ráðningu Lars Lagerbäck sem landsliðsþjálfara Noregs. – Twitter
Leiðari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Myndin Borgarlandslag Nú hefur sól hækkað ögn á lofti og inni á milli bregður henni fyrir. Við þær aðstæður leggur hún stundum blessun sína á hversdagslega hluti þannig
að þeir öðlast nýja fegurð. mynd SiGtryGGur Ari
„Við hljótum að
gefa okkur að
þingmenn séu allir tals-
menn tjáningarfrelsis.