Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2017, Side 24
Helgarblað 3.–6. febrúar 201724 Fólk Viðtal
„Enginn gEtur barist að Eilífu gEgn ofurEfli“
Þ
ann 16. desember 2014
birtu íslenskir fjölmiðlar
fréttir af því að lýst væri eftir
tvítugum Íslendingi, Þorleifi
Hallgrími Kristínarsyni,
sem hafði verið týndur í fjóra
daga. Hann fór út að skemmta sér í
bænum Fredrikshavn í Danmörku
á föstudagskvöldi en skilaði sér
aldrei heim til sín. Hvarf hans var
ráðgáta. Tveimur dögum síðar var
tilkynnt um að leit hefði verið hætt.
Greint var frá því að í myndskeiði frá
öryggismyndavélum sæist maður
sem líktist Þorleifi klifra inn á afgirt
hafnarsvæði og talið væri að hann
hefði endað í höfninni. Aldrei var þó
greint frá því að til væri myndband
þar sem Þorleifur sést standa við
bryggjusporðinn í Fredrikshavn
eitt andartak og hugsa sinn gang.
Síðan tekur hann ákvörðun og
stekkur í faðm Ægis. DV ræddi
við móður Þorleifs, Kristínu Hildi
Þorleifsdóttur, um harmsögu sonar
hennar, sem hófst með hræðilegum
veikindum á barnsaldri sem ollu því
að Þorleifur „brann“ fyrir augum
móður sinnar og missti 60 prósent
af húð sinni. Það var upphafið á átta
ára stríði fyrir dómstólum, einelti og
barsmíðum. Að hennar sögn brást
kerfið Þorleifi og hann átti sér ekki
viðreisnar von. „Hvert sem hann
sneri sér þá rakst hann á veggi,“ segir
Kristín Hildur um átakanlegt fráfall
frumburðar síns.
„Ég horfði á hann brenna“
Mæðginin fluttu til Danmerkur
árið 1995 en þá var Þorleifur aðeins
eins árs gamall. Bróðurpart þessara
tveggja áratuga bjuggu mæðginin í
eða í grennd við Hanstholm, litlum
útgerðarbæ í Norður-Jótlandi þar
sem ferjan Smyril Line kemur að
höfn frá Seyðisfirði. Þorleifur var
heilbrigður og kátur drengur fyrstu
árin þar til ógæfan dundi yfir þegar
hann var sex ára gamall. Hann veikt-
ist af vægri flensu og leitaði Kristín
Hildur til læknis til að fá bót meina
hans. Læknirinn ávísaði hálfri panó-
díl til að vinna á veikindunum en allt
kom fyrir ekki. Ástandi Þorleifs hrak-
aði stöðugt. Hann var lagður inn á
Thisted-spítala tveimur dögum síð-
ar og var þá gríðarlega kvalinn. „Ég
horfði á hann brenna upp fyrir fram-
an augun á mér. En ég gat ekkert að
gert. Ég get ekki einu sinni reynt að
lýsa því með orðum hversu hræðileg
tilfinning þetta var. Vanmátturinn
var algjör en ég trúði og treysti því að
læknarnir vissu hvað þeir væru að
gera,“ segir Kristín Hildur.
Greindur með ofnæmi
Fjórum dögum síðar kom í ljós að
Þorleifur litli var með heiftarlegt of-
næmi fyrir parasetamóli, sem er
lykilhráefni í verkjalyfjum eins og
panódíl. Þá höfðu læknarnir meðal
annars meðhöndlað Þorleif eins
og hann þjáðist af mislingum. Litli
drengurinn var að lokum fluttur
á sjúkrahúsið í Árósum þar sem
læknar uppgötvuðu hvaða amaði
að og rétt meðferð hófst. „Þorleifur
var við dauðans dyr og lá sofandi í
öndunarvél í tæpar sjö vikur. Hann
fékk blöðrur, eins og eftir bruna-
sár, um allan líkamann og missti 60
prósent af húð sinni,“ segir Kristín
Hildur. Þegar litli drengurinn vakn-
aði loks upp þá voru kvalirnar
óbærilegar. Alls þurfti hann að dvelj-
ast í 14 mánuði á sjúkrahúsi.
Kallaður „Scarface“
Sýkingin náði í augu hans og gerði
að verkum að hann missti sjón á
hægra auga. Það var svo illa farið
að taka þurfti húð úr kinn Þorleifs
til þess að græða yfir augað. „Augn-
lokin greru við augað og læknarnir
gerðu gat á þau. Það gerði að verkum
að hornhimnan á auganu eyddist
smátt og smátt upp.“ Litli drengur-
inn hafði veikindin af en ljóst var að
líf hans yrði aldrei samt. „Hann var
alsettur örum og sárum um allt and-
litið og líkamann. Hann var svo illa
farinn að hann þurfti að fara í endur-
hæfingu og læra að ganga upp í nýtt.
Hann þurfti að dveljast í 14 mánuði
á sjúkrahúsi en hann stóð sig eins og
hetja,“ segir Kristín Hildur.
Þorleifur missti eðli málsins sam-
kvæmt talsvert úr skóla á þessum erf-
iða kafla í lífi sínu og þegar hann mætti
loks þá var honum ekki tekið hlýlega.
Fljótlega hófu krakkar í skólanum að
stríða honum og hann fékk að heyra
háðsglósur um útlit sitt. Móðir hans
sá að þetta gæti ekki gengið og brá á
það ráð að taka Þorleif úr almennum
grunnskóla og setja hann í einkaskóla
þar sem hann fékk frið fyrir grimmd
skólafélaganna. Hann bjó hjá ömmu
sinni og afa á Mors-eyju í Limafirði
virka daga þar sem hann sótti skól-
ann og fór síðan heim til móður sinn-
ar og systkina um helgar. Þorleifur
naut sín vel í einkaskólanum og þar
hætti áreitið. Hann flutti síðan aftur
til Hanstholm um fermingaraldurinn
og þá hófst eineltið aftur. „Hann var
meðal annars kallaður „Scarface“ og
var reglulega fórnarlamb barsmíða.
Honum leið mjög illa en sem betur
fer átti Þorleifur alltaf góða vini sem
hjálpuðu honum í gegnum þetta. En
þessi illgirni tók að sjálfsögðu veru-
lega á hann,“ segir Kristín Hildur.
Augað stóð út úr tóftinni
Sjálf átti hún mjög erfitt með að sætta
sig við afleiðingar veikinda Þorleifs.
„Ég varð sjálf fyrir óhappi þegar ég
varð sex ára. Ég var í sveit hjá ömmu
og afa en þau tóku reglulega að sér
erfið ungmenni. Eitt sinn var ég að
rífast við eldri strák um hver ætti að
sitja fram í þegar hann sló mig í and-
litið með hvössu verkfæri. Ég hljóp
inn til ömmu og þá kom í ljós að
gat var komið á augasteininn,“ segir
Kristín. Afleiðingar árásarinnar urðu
þær að hún hélt auganu en missti
alveg sjónina á því. „Þetta hafði mikil
áhrif á mig. Augasteinninn var saum-
aður og ég fór í nokkrar aðgerðir til
að reyna að bjarga sjóninni. Með-
al annars var settur leppur yfir heila
augað til að laga hið meidda. Þetta
gerði að verkum að mér gekk illa að
læra að lesa og skrifa. Ég kunni bara
að vera blind. Þessi erfiða reynsla úr
æsku minni varð eflaust til þess að
ég varð gjörsamlega örvilnuð þegar
ljóst var að Þorleifur væri að missa
sjónina á öðru auga á sama aldri og
ég,“ segir Kristín Hildur.
Vann sigur eftir átta ára baráttu
Í framhaldi af veikindum sonar
síns hafi hún að öllum líkindum
n Þorleifur Kristínarson hvarf sporlaust í Danmörku fyrir tveimur árum n Lík hans hefur ekki fundist n Móðir Þorleifs segir harmsögu hans
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Þorleifur H. Kristínarson Hann hvarf þann 12. desember 2014 og hefur aldrei fundist. Fjölskylda hans fékk að sjá myndband þar sem
hann sést stökkva fram að höfninni í Fredrikshavn í Danmörku. Þorleifur þurfti að glíma við mikið mótlæti allt sitt líf.
„Hann var meðal
annars kallaður
„Scarface“ og var reglu-
lega fórnarlamb bar-
smíða.