Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2017, Page 34
Helgarblað 3.–6. febrúar 201726 Fólk Viðtal
Eitt sinn fannst hann skólaus í felum
inni í ókunnugum stigagangi. Þá
taldi hann sig þurfa komast í skjól frá
umheiminum,“ segir Kristín Hildur.
Hún hafði verulegar áhyggjur
af syni sínum og fann hvað honum
leið illa þrátt fyrir að hann reyndi
að bera sig vel. „Hann upplifði alls
staðar mótlæti og það er takmarkað
hvað einn einstaklingur getur þol
að af því. Ég reyndi að fá hann til að
flytjast heim til Íslands, til ættingja
okkar hér á landi en hann tók því fá
lega,“ segir hún. Þorleifur upplifði
þó mjög góða kafla inni á milli og
Kristínu Hildi er sérstaklega minn
isstætt símtal 6. desember, innan
við viku áður en Þorleifur hvarf. „Þá
fór hann á tónleika með uppáhalds
hljómsveitinni sinni og skemmti
sér frábærlega. Ég talaði aðeins við
hann í síma og hann var alsæll,“
segir Kristín Hildur.
„Ég fer mínar leiðir“
Kvöldið afdrifaríka, 12. desember
2014, fór Þorleifur til Fredrikshavn
til að skemmta sér. Það kvöld heyrði
hann í móður sinni í síma í hinsta
sinn. „Hann var frekar leiður og ég
hafði áhyggjur af honum. Hann var
nýhættur með kærustu sem hafði
tekið saman við annan strák og ég
vissi að honum hafði sárnað það
mjög. Ég bað hann um að passa
vel upp á sig og þá varð hann enn
leiðari. Eftir á að hyggja þá vissi
hann að þetta yrði í síðasta skipti
sem hann talaði við mig og hann átti
erfitt með að kveðja. Við spjölluðum
aðeins saman og síðustu orðin sem
hann sagði, áður en hann kvaddi,
voru: „Ég fer mínar leiðir“, segir
Kristín Hildur. Hún hafi ekki áttað
sig á merkingu þeirra þá en síðan
hafi setningin ásótt hana.
„Ég varð að fá þetta uppgjör“
Sólarhringur leið þar til tilkynnt
var um hvarf Þorleifs. „Ég var stödd
á bingókvöldi skammt frá heimili
mínu. Það var svo skrítið að allt í einu
þyrmdi yfir mig og ég fann að eitt
hvað var í gangi. Þá hringdi síminn
hjá umsjónarmanni kvöldsins sem
var afar vandræðalegt enda var hann
nýbúinn að biðja alla um að slökkva
á símum og ganga frá þeim. Þá var
verið að leita að mér. Skömmu síðar
náði sambýlismaður minn í mig og
sagði mér að Þorleifs væri saknað. Þá
vissi ég að eitthvað hræðilegt hefði
gerst,“ segir Kristín Hildur.
Samkvæmt öryggismyndavélum
sást Þorleifur yfirgefa krá í Fred
rikshavn kl. 6.20 og ganga í átt að
höfninni. Eins og áður segir fjöll
uðu danskir og íslenskir fjölmiðlar
um málið en aðeins var greint frá
því að Þorleifur hefði sést klifra
yfir girðingu hjá höfninni og síðan
hefði leit verið hætt nokkrum dög
um síðar. Sannleikurinn var hins
vegar sá að lögreglan uppgötvaði
annað myndband þar sem Þorleifur
sést standa á hafnarbakkanum og
síðan stökkva út í opinn dauðann.
„Lögreglan ætlaði ekki að sýna mér
myndbandið og réð mér í raun al
farið frá því að horfa á það. Ég varð
hins vegar að fá að vita alla söguna
og sjá hvernig hann bar sig að. Hvort
hann hafi verið tví stígandi eða jafn
vel hrasað út í höfnina. Ég varð að
fá þetta uppgjör og ég er sátt við að
hafa lagt þetta á mig,“ segir Kristín
Hildur.
Hún segist hafa fellt nokkur tár
við að horfa á myndbandið en síð
an hafi hún horft á lögreglumann
inn sem stóð á móti henni og sagt
að hún skildi ákvörðun sonar síns.
„Hann var búinn að fá nóg. Hvert
sem hann sneri sér þá rakst hann á
veggi og hann gat ekki meira,“ segir
Kristín Hildur klökk.
Líkið ófundið
Hún er afar ósátt við viðbragðstíma
lögreglu vegna hvarfs Þorleifs.
„Lögreglan byrjaði ekki að leita
af alvöru fyrr en á þriðjudegin
um. Þá finna þeir þessi mynd
bönd og sjá nákvæmlega hvar hann
stekkur,“ segir Kristín Hildur. Að
eins var leitað í höfninni í tvo daga
með sónartækjum en síðan var
leitin blásin af. Mikil skipaumferð
og sterkir straumar eru á svæðinu
og var það mat sérfræðinga að lík
ið hefði rekið á haf út. „Ef lögreglan
hefði brugðist fyrr við þá hefðu þeir
fundið son minn. Þeir vildu ekki
einu sinni kalla til kafara til að leita.
Það var leitað með hálfum huga og
það er hræðileg tilhugsun að dreng
urinn minn sé ekki fundinn,“ segir
Kristín Hildur. Hún telur að ekki
hafi verið leitað nægilega vel í höfn
inni og brá því á það ráð að fá lið
sinni hóps í Danmörku sem leitar
að týndu fólki. „Þeir ætluðu að fá bát
til þess að leita almennilega í höfn
inni en fengu ekki leyfi til þess. Það
var karpað um það í fjóra mánuði en
síðan þurfti hópurinn frá að hverfa.
Það var afar sárt að upplifa þetta
fullkomna áhugaleysi á því að finna
son minn,“ segir Kristín Hildur.
Mikill söknuður
Tíminn frá fráfalli Þorleifs hefur
reynst Kristínu Hildi og fjölskyldu
hennar erfiður. „Við reynum að tak
ast á við þessi hversdagslegu verk
efni og tíminn læknar sárin að hluta.
Ég þarf að sinna fjórum börnum og
ég veit eiginlega ekki hvar ég væri án
þeirra. En ég sakna Þorleifs gríðar
lega og hugsa mikið til hans. Allt sem
minnir mig á þennan tíma þegar
hann hvarf veldur mér verulegu
hugarangri,“ segir Kristín Hildur.
Haldnar voru minningarathafnir um
Þorleif í Danmörku og á Íslandi þar
sem ættingjar og vinir komu saman.
Þar voru mörg hlý orð látin falla sem
fjölskyldunni þótti afar vænt. Meðal
annars hélt fyrrverandi kennari Þor
leifs stutta tölu þar sem fram kom að
af öllum nemendunum í bekknum
þá hefði hann talið Þorleif þann síð
asta til að hljóta þessi örlög. „Það var
af því að hann barðist eins og ljón í
gegnum erfiðleikana. En enginn get
ur barist að eilífu gegn ofurefli,“ segir
Kristín Hildur. n
Hafnarsvæðið í Fredrikshavn Hér kaus Þorleifur H. Kristínarson að binda enda á líf sitt í desember 2014.
„Hann var búinn að
fá nóg. Hvert sem
hann sneri sér þá rakst
hann á veggi og hann gat
ekki meira.
Eldbakaðar pizzur
hafnargata 36a, kEflavík / nálægt flugstöðinni
salur
fyrir
hópa
sími 557 1007
hamborgarar,
salöt, pasta,
kjúklingavængir
og flEira
5 5 2 - 6 0 6 05 5 2 - 6 0 6 0
Ugly. is - smiðjUvegi 2 og l angarima 21