Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2017, Page 38
Helgarblað 3.–6. febrúar 201730 Skrýtið Sakamál
V e g a m ó t a s t í g u r 4 | 1 0 1 R e y k j a v í k | s í m i 5 1 1 3 0 4 0 | v e g a m o t @ v e g a m o t . i s
FRÁ 11–16
ALLT MERKILEGT
Sérmerktar
persónulegar
gjafavörur
Hægt er að fá
bæði sent heim
eða sækja í
versluninni.
Pantaðu í
netverslun
okkar
Þú
velur lit og texta!
10 ára
GarðatorGi 3, Garðabæ - S: 555 3569 - www.alltmerkileGt.iS - Sala@alltmerkileGt.iS
Hörmulegur endir
n Theresa og Pasquale áttu í forræðisdeilu n Hún fór á versta veg
Í
apríl árið 2011 fékk Theresa
Riggi, þá 47 ára, 16 ára dóm,
hafði enda játað sig seka um
manndráp og borið við skertri
dómgreind. Upphaflega hafði
Theresa verið kærð fyrir morð.
Þannig var mál með vexti að
Theresa hafði flutt, ásamt þrem-
ur börnum sínum; átta ára tvíbur-
um, Austin og Gianluca, og Ceciliu,
fimm ára, frá Skene í Aberdeen-
skíri til Edinborgar í kjölfar skiln-
aðar hennar og barnsföður hennar,
Pasquale Riggi.
Deilt um forræði
Reyndar hafði Theresa látið sig
hverfa með börnin, í júlí 2010, og
var þeirra um skeið saknað og eftir
þeim lýst. Lögreglu tókst um síðir að
rekja ferðir þeirra til íbúðar í vestur-
hluta Edinborgar og aðhafðist ekki
frekar í málinu.
Að sögn hafði Theresa, sem var
frá Kaliforníu í Bandaríkjunum,
verið verndandi móðir og eftir skiln-
aðinn deildu hún og Pasquale um
forræði yfir börnunum.
Að kvöldi 2. ágúst, 2010, ræddu
Theresa og Pasquale saman í síma
og eðlilega bar forræðisdeiluna á
góma. Theresa spurði Pasquale
hvort hann hygðist taka af henni
börnin og svaraði hann á þann veg
að hún gæfi honum ekkert val hvað
það áhrærði.
Theresa sagði þá: „Þá skaltu
kveðja,“ og skellti á.
Börnunum banað
Þann 3. ágúst mætti Theresa ekki í
fyrirtöku vegna forræðisdeilunnar.
Dómari fyrirskipaði að hún skyldi
fundin og að félagsmálayfirvöld
mætu hvort ástæða væri til að setja
börnin í tímabundið fóstur.
Til þess kom þó ekki því daginn
eftir fundust börnin þrjú látin á
heimili fjölskyldunnar við Slateford
Road í Edinborg. Til að missa ekki
börn sín í hendur föður þeirra hafði
Theresa gripið til þess örþrifaráðs
að ráða þeim bana. Börnin stakk
hún með hníf, átta stungum hvert
barn, og framkallaði síðan gas-
sprengingu, hugsanlega til að fela
verksummerki.
Að því loknu henti Theresa sér
fram af svölum íbúðarinnar, en lifði
af 12 metra fall. Að sögn vitna hafði
Theresa „öskrað hástöfum“ áður en
hún klifraði upp á svalariðið og lét
sig síðan falla með höfuðið á und-
an.
Skert dómgreind en full ábyrgð
Þegar dómarinn kvað upp dóminn
sagði hann meðal annars: „Heil fjöl-
skylda er rústir einar vegna gjörða
þinna. Faðir barnanna, Pasquale
Riggi, og öll fjölskyldan hafa ver-
ið svipt börnunum. Og þú, sem
elskaðir börn þín á einlægan, en
óeðlilegan og ráðríkan, hátt, hef-
ur nú glatað þeim og ert völd
að þessum sorglegu málalyktum.“
Dómarinn bætti við að þrátt fyrir
að Theresa hefði verið dæmd fyrir
manndráp væri hún engu að síður
ábyrg gerða sinna. Dómarinn mælt-
ist enn fremur til þess að Theresu
yrði vísað úr landi að afplánun lok-
inni.
Síðasta gjöfin
Verjandi Theresu sagði að hún hefði
verið undir feiknaálagi þegar hún
fyrirkom börnum sínum og að auki
glímt við ýmiss konar geðtruflanir.
Börnin hefðu átt „hug hennar allan“
og tilhugsunin um að missa þau
hefði verið óbærileg. „Eins órökrétt
og bilað það kann að virðast, þá sá
hún heiminn í því ljósi,“ sagði verj-
andinn. „Að bana þeim var henn-
ar hinsta gjöf til
þeirra.“
Theresa
Riggi svipti
sig lífi í
fangelsi
10. mars
2014. n
„Að bana
þeim var
hennar hinsta
gjöf til þeirra
Í járnum Theresa
greip til örþrifaráða til
að missa ekki börnin.