Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2017, Page 40
Helgarblað 3.–6. febrúar 201732 Heilsa
Opnunartilboð á viðgerðum og aukahlutum
iP
one í úrvali
Erum flutt á Grensásveg 14
Allskyns
aukahlutir
Grensásvegur 14
s: 534 1400
Öll hulstur á 1.990 á meðan birgðir endast
Þ
egar við veltum fyrir okkur
hvað það er að stunda heil-
brigt kynlíf getur ýmislegt
komið upp í huga fólks.
Sumir kynnu að velta fyrir
sér praktík, aðrir að horfa til sjúk-
dóma og örugglega margir sem
horfa til þess að það sé gert með
samþykki beggja aðila og á jafn-
ræðisgrundvelli. Nýleg mynd í leik-
stjórn Páls Óskars Hjálmtýssonar,
Fáðu Já !, var sýnd við góðar undir-
tektir í skólum landsins sem og í
sjónvarpi. En þar var beitt annarri
nálgun en hefðbundið er í kyn-
fræðslu til yngri kynslóðarinnar og
sérstaklega var tekið á mörkum kyn-
lífs og ofbeldis sem þótti takast með
miklum ágætum.
Það er staðfest sem okkur hefur
lengi grunað, þ.e.a.s. að íslenskir
unglingar byrji tiltölulega snemma
að stunda kynlíf í samanburði við
önnur lönd, eða í kringum 15 ára
aldur. Þá er það áhyggjuefni að
kostnaður við kaup á getnaðarvörn
eins og smokknum hindri ung-
lingana í að nota slíkar sjálfsagðar
varnir. Þeir eru feimnir að biðja um
pening fyrir slíku hjá foreldrum sín-
um og má ljóst vera að of oft eru
stunduð kynmök án varna sökum
þessa. Það er ekkert launungar-
mál að tíðni kynsjúkdóma er hæst
í aldurshópnum 15–25 ára og hefur
lengi verið svo, alvarlegir sjúkdóm-
ar leynast þarna á meðal og geta
haft veruleg áhrif á framtíð ungs
fólks. Þar nægir að nefna mögu-
lega ófrjósemi hjá konum af völd-
um klamydíu sýkingar, en alvarlegri
sjúkdómar eins og HIV og lifrar-
bólga smitast einnig við kynlíf og
geta verið óafturkræfir.
Skortir upplýsta
umræðu á heimilinu
Fjöldi tilfella af klamydíu á Íslandi
er einna mestur í heimi og er ekki
ljóst hvers vegna það er, sumir telja
okkur fara óvarlegar og eiga fleiri
rekkjunauta, aðrir segja að gott að-
gengi að slíkri skoðun, umræðan
hefur verið virk og prófið er ókeypis.
Hvað sem rétt er erum við að greina
of marga á hverju ári en ríflega 2.000
greiningar eru á hverju ári og hefur
farið fjölgandi undanfarin ár sam-
kvæmt tölum landlæknis. Hið sama
gildir um tíðnitölur lekanda og HIV,
auk sárasóttar yfir tilkynningar-
skylda sjúkdóma. Þetta er met sem
er ekki hægt að vera stoltur af sem
Íslendingur.
Þetta eru ekki nýjar fréttir en það
sem kannski stingur mann mest er
að samskipti milli foreldra og ung-
linga virðast ekki nægjanlega góð,
upplýst umræða á heimilinu virðist
vera undantekning frekar en regla
og þurfum við að finna leið til að
breyta því. Í því samfélagi sem við
lifum í í dag virðast enn þrífast veru-
legar ranghugmyndir um nær alla
þá þætti sem snúa að kynlífi, kyn-
heilbrigði og mörkum ofbeldis, þrátt
fyrir gnótt upplýsingaflæðis á ver-
aldarvefnum og í internetvæddum
símum ungmenna nú til dags. Það
er því ekki hægt að bera við skorti á
möguleikum til að fræðast. Vefsíð-
ur hafa þar leikið ákveðið hlutverk
og markviss kynfræðsla fer fram í
skólum og í gegnum sjálfboðavinnu
læknanema, Ástráð, svo eitthvað sé
nefnt. En betur má ef duga skal!
Fræðsla lykilatriði
Mér sem lækni finnst stundum að
fræðslan og umræðan snúist fyrst og
fremst að ótímabærri þungun og að
okkur beri að koma í veg fyrir slíkt.
Ósjaldan kemur móðir með dóttur
sína til að biðja um pilluna, en hún
ver einstaklinginn nákvæmlega ekk-
ert gegn kynsjúkdómi. Mögulegt
er að hún ýti kannski frekar undir
minni notkun smokka og þar með
aukna smithættu. Hér er auðvitað
fræðsla lykilatriði og hlýtur að
stærstum hluta að falla á herðar for-
eldra. Nú hef ég ekki neinar nýjar töl-
ur um notkun getnaðarvarnarpill-
unnar hér í samanburði við lönd í
kringum okkur en það væri fróðlegt
að vita hvort við eigum líka met í
þeirri notkun sem þó má telja líklegt.
Mottó okkar allra
En hver er þá niðurstaðan? Að
mínu viti er hún margþætt. Í
fyrsta lagi þarf að bæta aðgengi að
getnaðarvörnum eins og smokkum,
skoða þarf kynfræðslu í skóla og
endurmeta hana í samvinnu við
nemendur og foreldra. Það ætti að
skylda foreldri til að taka svipuð
námskeið, enda ekkert sem segir til
um hæfni foreldra til að miðla upp-
lýsingum í raun, hvað þá heldur að
þeirra eigin reynsla sé endilega til
þess fallin að geta veitt leiðbein-
ingu. Þetta ætti því ekki að vera neitt
feimnismál. Nýleg lög um bólusetn-
ingu barna við HPV veiru er stórt
skref í kynheilbrigði og virðingarvert
á niðurskurðartímum, en betur má
ef duga skal. Við erum því líklega öll
sammála að kynlíf er eitthvað stór-
kostlegt og ef vel tekst til eykur það
sjálfstraust, vellíðan og almenna
hamingju þeirra sem þess njóta. Því
ætti að hvetja til þess en að sama
skapi uppfræða um hætturnar.
Heilbrigt kynlíf hlýtur að verða
mottó okkar allra! n
Óheilbrigt kynlíf
n Íslenskir unglingar byrja snemma að stunda kynlíf n Fræðsla lykilatriði
Teitur Guðmundsson
læknir
„Heilbrigt
kynlíf
hlýtur að verða
mottó okkar
allra!