Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2017, Síða 41
Helgarblað 3.–6. febrúar 2017 Heilsa 33
Fáanleg í ýmsum stærðum og útfærslum
Unnið hefur verið að þróun á smíði húsanna í mörg ár og er komin
mikil reynsla af byggingu þeirra við ólíkar aðstæður.
Gluggagerðin | Súðarvogi 3–5 | 104 Reykjavík | Sími 566 6630 | gluggagerdin.is
FALLEG ÍSLENSK SUMARHÚS
Þjóðleg
sumarhús sem falla
einstaklega vel að
íslensku landslagi
Sími: 562 5900
www.fotomax.is
Ömmu og
afa bollar í
miklu úrvali
Fæst í vefverslun og í verslun
okkar að Höfðabakka 3
M
illirifjagigt getur verið af
ýmsum toga en um er
að ræða verki í síðu eða
brjóstkassa sem versnar
við djúpa öndun eða aðr-
ar hreyfingar. Oftast er um að ræða
festumein í festingum millirifjavöðva
en festumein er bólga á staðnum þar
sem sin festist við bein. Svipuð ein-
kenni og við festumein geta einnig
stafað af stirðleika í liðamótum þar
sem rifbeinin tengjast hryggnum,
við þursabit eða brjósklos í brjóst-
eða hálshrygg. Einkennin koma
oftar fram hjá kyrrsetufólki og gjarn-
an í vinstri síðu hjá rétthentum og er
ástæðan sú að meiri hreyfing og lið-
leiki er á hægri hluta bolsins hjá rétt-
hentum og myndast minni spenna
og stirðleiki þeim megin.
Öndun er af tvennum toga, kvið-
öndun sem stjórnast af þindinni og
brjóstöndun sem stjórnast af milli-
rifjavöðvum. Við millirifjagigt getur
brjóstöndun orðið svo sársaukafull
að viðkomandi grípur til kviðöndun-
ar eingöngu. Hægt er að villast á
millirifjagigt og ýmsum öðrum verkj-
um og má þar nefna hjartaöng vegna
kransæðasjúkdóms, vélindabakflæði
eða aðra sjúkdóma í vélinda, gollur-
húsbólgu og brjósthimnubólgu.
Mikilvægt er að fá rétta sjúkdóms-
greiningu til að hægt sé að beita við-
eigandi meðferð. Ef um festumein
eða stirðleika er að ræða getur hiti og
nudd hjálpað. Stundum hjálpar að
sprauta í verkjasvæðið.
Tengsl við vefjagigt
Eins og áður segir er festumein al-
gengasta ástæðan fyrir millirifjagigt
en um sömu eða náskyld fyrirbæri
hafa verið notuð heitin vöðvabólga,
vöðvagigt og upp á síðkastið er al-
gengast að kalla þetta vefjagigt.
Vefjagigt
Vefjagigt (fibromyalgia) er náskyld
síþreytu (chronic fatigue syndrome)
og oft er erfitt að greina þar á milli.
Um orsakir vefjagigtar og síþreytu
er lítið vitað, sundum kemur þetta
í kjölfar veikinda eins og veirusýk-
inga, stundum eru til staðar langvar-
andi truflanir á svefni og stundum
byrjar þetta eftir slys. Sumir telja að
vefjagigt og síþreyta séu bandvefjar-
sjúkdómar en aðrir að þetta sé af sál-
rænum toga.
Meðferð við vefjagigt
Þegar búið er að útiloka aðra sjúk-
dóma er fyrsta skrefið í meðferð að
fræða sjúklinginn um sjúkdóminn,
útskýra að ekki sé um hættulegan eða
illkynja sjúkdóm að ræða, að þetta sé
ekki tóm ímyndun og að margir aðrir
séu haldnir þessum kvilla.
Meðferðin við vefjagigt er einstak-
lingsbundin og oftast þarf að prófa
sig áfram til að finna það sem hentar
hverjum og einum. Stundum þarf
að taka á atriðum í lífi sjúklingsins
eins og reykingum, óhóflegri áfeng-
isneyslu, slæmum matarvenjum,
miklu vinnuálagi og slæmum svefn-
venjum. Þeim sem reykja getur
batnað mikið við að hætta. Verkja-
lyf gagnast venjulega lítið en þung-
lyndislyf og jafnvel svefnlyf í stuttan
tíma gera stundum verulegt gagn.
Slökun er alltaf til góðs og nudd og
hitameðferð geta oft gert gagn.
Rannsóknir hafa sýnt ótvírætt
gagn af líkamsþjálfun hjá sjúklingum
með vefjagigt eða síþreytu. Hæfileg
líkamsþjálfun með það að markmiði
að auka líkamlegt þrek er því lykilat-
riði í meðferð. Mikilvægt er að fara
sér ekki of geyst því þá getur ástandið
versnað. Gott er að byrja með sundi,
léttum gönguferðum eða leikfimi
og teygjuæfingum. Þetta þarf svo að
auka hægt og rólega eins og hentar
hverjum og einum. Langtímahorfur
eru yfirleitt góðar og flestir geta losn-
að við óþægindin að miklu eða öllu
leyti ef þeir fá viðeigandi meðferð. n
Líkamsrækt
og slökun gegn
millirifjagigt
„Rannsóknir hafa
sýnt ótvírætt
gagn af líkamsþjálfun hjá
sjúklingum með vefjagigt
eða síþreytu.
Millirifjagigt getur verið af ýmsum toga
Spurning:
Getur þú útskýrt fyrir mér af hverju við
fitnum? Er rétt að fólk myndi ekki fitu
úr sykri/kolvetnum ( kolhýdrötum),
þannig að við fitnum af því að borða
fitu en ekki sykur? Ef svo er, eru gos-
drykkir þá nokkuð fitandi?
Svar:
Hvort við fitnum eða ekki er fyrst og
fremst háð jafnvægi milli heildar-
orkuinntöku og brennslu hvers
einstaklings. Helstu orkugjafar fæð-
unnar eru fita sem gefur 9 kcal/gr,
kolvetni sem gefa 4 kcal/gr og prótein
sem einnig gefa 4 kcal/gr. Mikilvægt
er að neyta þessa orkugjafa í réttum
hlutföllum og hefur Manneldisráð
gefið út leiðbeiningar fyrir almenning
þar sem markmiðið er að fituneysla
gefi ekki meira en 30% af heildarorku,
prótein séu 10–15% af heildarneyslu
og kolvetni (sykur) gefi um 55–60% af
heildarneyslunni. Sé þessum mark-
miðum fylgt og heildarorkuneysla
fer ekki umfram orkuþörf einstak-
lingsins fitnum við ekki. Ef við hins
vegar neytum meiri orku en líkaminn
brennir, hvort sem hún er í formi fitu
eða sykurs í fæðinu, geymir líkaminn
hana í formi fitu.
Það er miserfitt fyrir líkamann
að vinna úr umfram magni af fitu og
kolvetnum. Fituna getur hann tekið
beint upp og flutt í geymslu. Við það
tapast einungis um 5% af orkunni.
Kolvetnin þurfa að fara í gegnum
margar efnabreytingar til að um-
breyta þeim í fitu. Þessar breytingar
krefjast mikillar orku og tapast
þannig um 25% af orku kolvetnanna.
Þegar nægilegt magn er af kolvetnum
í fæðinu notar líkaminn þau frekar
en fituna í brennslu og fer fitan þá
beint í fitugeymslur og við fitnum. Ef
minna er af kolvetnum í fæðunni en
líkaminn þarfnast til brennslu notar
hann fituna úr fæðinu til brennslu.
Ef meira er af kolvetnum í fæðinu
en líkaminn þarfnast, breytir hann
þeim í fitu. Það er því jafn mikilvægt
að huga að sykurneyslu og fituneyslu
til að koma í veg fyrir að við fitnum.
Í gosdrykkjum er mjög mikið
magn af sykri. Þegar við neytum
þeirra hækkar blóðsykur og fellur
síðan snarlega, þetta hefur neikvæð
áhrif á líðan og líkamsstarfsemi
og er engum hollt. Auk þess hefur
mikil sykurneysla í för með sér tann-
skemmdir og því mikilvægt fyrir alla
að takmarka neyslu á gosdrykkjum.
Kveðja,
Sólveig Magnúsdóttir læknir
Er sykur ekki fitandi?