Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2017, Page 47
Helgarblað 3.–6. febrúar 2017 Menning 39
» Loftsíur
» Smurolíusíur
» Eldsneytissíur
» Kælivatnssíur
» Glussasíur
Túrbínur
Bætir ehf. býður upp á
viðgerðarþjónustu fyrir
flestar gerðir túrbína.
Sími 567-2050 - Smiðshöfði 7 - 110 Reykjavík
Viðgerða- og varahlutaþjónusta í yfir 30 ár
Bætir ehf hefur í rúm 30 ár boðið uppá alhliða viðgerða- og varahlutaþjónustu fyrir breiðann
hóp viðskiptavina. Við þjónustum og útvegum varahluti í flestar tegundir dísilvéla og höfum
mikla reynslu í ZF og Twin Disc gírum. Bætir ehf hefur um árabil boðið uppá há gæða
varahluti, frá framleiðendum á borð við IPD og Interstate Mcbee, sem henta m.a. í vélar frá:
Caterpillar® Cummins® Detroit Diesel®
Nöfn vélaframleiðenda eru hér aðeins til upplýsinga og eru vörumerkin eign hvers framleiðanda. Cat® og Caterpillar® eru skrásett vörumerki í eigu Caterpillar Inc. Cummins® er skrásett vörumerki í eigu Cummins Engine Company. Detroit Diesel® er skráett vörumerki í eigu Detroit Diesel Corporation.
Venjulegt fólk í óvenjulegu umhverfi
Allaballar í lautarferð „Ég man ekki hvert var farið í
þessa lautarferð, ég man bara hvað það var ofboðslega leiðinlegt veður, rigning og allt
ömurlegt. Fólk var í litlum hópum, hver með sitt nesti, engir saman. Kannski voru
einhverjar ræður, en ég man að minnsta kosti ekki eftir því.“
Stúdíóið „Hinar myndirnar sem komu úr þessari töku voru náttúrlega hefð-
bundnari. Það var verið að mynda hana eina í stól á hvítum fleti. En svo bakkaði ég og tók eina
svona – bara upp á grínið. Þetta er dóttir mín sem heldur á spjaldinu til að bæta við ljósi í andlitið.
Þetta sýnir svolítið aðstæður manns, maður er ekki með tuttugu eða tvo aðstoðarmenn.“
Óskar og Blómey Nokkrar myndir af sjálfmenntaða listvefaranum og sérvitringnum Óskari Bertels Magnússyni
og eiginkonu hans Blómeyju Stefánsdóttur í sérstæðum hýbýlum þeirra eru á sýningunni. Hjónin bjuggu í sjálfskipaðri útlegð á Hellisheiði
eftir að heimili þeirra í Blesugróf var rifið. „Þetta byrjaði með því að ég tók myndir af nokkrum verkum fyrir Óskar. Hann var svo hrifinn af
því að sjá litmyndir og prent af verkunum sínum. En margir hafa verið hissa á því að ég hafi yfirhöfuð fengið að koma inn til hans, því hann
hleypti annars engum inn. Hann var eiginlega kolbrjálaður. Ég hafði ægilega samúð með konunni hans, því hún virtist hafa það rosalega
bágt. Ég var með eina litla vél og flass sem ég hafði fengið lánað. Þess vegna gat ég tekið myndir inni í húsinu, sem var eiginlega eins og
hellir. Þetta var pínulítið hreysi, mjög kalt þarna inni, ekkert vatn og enginn hiti. Mig minnir að það hafi ekki verið neinn vegur að húsinu
svo hann þurfti að bera þetta allt á bakinu, en þetta er allt horfið í dag.“
SÚM „Ég myndaði mikið fyrir SÚM. Þannig tók ég til dæmis myndir af bræðrunum Kristjáni og Sigurði Guðmundssyni þegar þeir voru að
fara að sýna, og svoleiðis. Jón Gunnar og Róska sátu bara þarna og ég tók þessa mynd … þetta er allt öðrum að þakka,“ segir Jóhanna og hlær.