Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2017, Page 48
Helgarblað 3.–6. febrúar 201740 Menning
M
yndlistarmaðurinn Egill
Sæbjörnsson hefur lýst því
yfir að það verði ekki hann
sjálfur heldur tröllin Ūgh
og Bõögâr sem muni skapa
listaverk og sýna í íslenska skálanum
á Feneyjatvíæringnum 2017 sem hefst
13. maí og stendur yfir fram í nóvem-
ber.
Þessu er haldið fram í tilkynn-
ingu frá Kynningarmiðstöð íslenskrar
myndlistar (KÍM). Verkið sem verður
sent á myndlistarhátíðina fyrir hönd
Íslands mun nefnast Out of controll
og gefur orðaleikurinn einmitt til
kynna að það séu tröllin sem sitji nú
við stjórnvölinn. Stefanie Böttcher,
safnstjóri Kunsthalle Mainz, mun vera
sýningarstjóri tröllanna.
Þó að tilkynning KÍM sé ítarleg er
engu að síður erfitt að gera sér ná-
kvæma grein fyrir því hvers konar verk
Íslendingar senda til Feneyja, en að
sögn sýningarstjórans er þetta „metn-
aðarfyllsta verk Egils Sæbjörnssonar
til þessa.“
Áþreifanlegur handanheimur
Allt frá því að tilkynnt var í júní í fyrra
að Egill Sæbjörnsson myndi taka þátt
í Feneyjatvíæringnum 2017 fyrir hönd
Íslands hefur listamaðurinn talað
dulúðlega um verkefnið og ítrekað
nefnt tröll sem mögulega þátttakend-
ur í verkinu.
Nýjustu upplýsingar um verkið eru
í sama anda: „Þó að Ūgh og Bõögâr líti
út fyrir að koma úr horfnum furðu-
heimi verður þessi handanheimur æ
áþreifanlegri eftir því sem maður eyð-
ir meira tíma með tröllunum í Out
of controll in Venice. Egill telur að
tröllin séu nú þegar hluti af hans eigin
veruleika, en hann rakst fyrst á þau á
Íslandi árið 2008. Hvert sem Egill fer
fylgja tröllin honum. Þau hafa meira
að segja stigið í listræn fótspor hans,
deilt með honum vinnurými í Berlín,
skapað listaverk og kynnt sýningar,“
segir meðal annars í tilkynningu.
Í bók sem hægt er að nálgast á vef-
síðu KÍM lýsir Egill samskiptum sín-
um við tröllin í máli og myndum,
hvernig hann kynntist þeim og hvern-
ig þau sannfærðu hann um að fá að
taka þátt í í tvíærningnum
Umvefjandi þátttökukynningi
Í tilkynningunni segir enn fremur að
verkið muni ná út fyrir sjálfan skálann
sem á að hýsa verkið, bæði í tíma og
rúmi.
„Frá og með deginum í dag, þar
til Feneyjatvíæringurinn 2017 hefst
og jafnvel enn lengur munu Ūgh
og Bõögâr lauma sér inn í líf okkar –
ekki aðeins líf listamannsins. Smám
saman mun
æ fleira fólk
dragast inn í
heim þeirra og
finna þar allt
frá tröllslegum
hugsunum og listaverkum til tónlistar
þeirra og matarvenja (þau elska að
borða fólk). Hápunktur þessara sam-
skipta verður risavaxin þátttökukynn-
ing sem mun umvefja gestina og sýna
heiminum hina glaðlegu og ógnvekj-
andi sambúð Íslendinga og tröllanna.
Þannig mun hún sýna hvernig ein-
föld samskipti geta að lokum þróast
yfir í djúpan skilning sem umbreytir
sjónarhorni okkar, hugmyndum um
sannleika og raunveruleika, og sam-
bandi okkar við umheiminn.“
Björg Stefánsdóttir, fram-
kvæmdastjóri KÍM, segir að á undan-
förnum árum hafi íslenski skálinn
oftar en ekki verið notaður sem vett-
vangur til að leysa upp félagslegar
byggingar hvort sem það hafi verið
tiltekin hugmyndafræði, þjóðernis-
legar hugmyndir eða goðsögnin um
listamanninn. „Þessi hefð heldur
áfram með Out of controll in Venice
þar sem mörk milli hins raunverulega
og ímyndaða hverfa algjörlega og við
erum dregin inn í töfrandi en hrika-
legan heim tröllanna tveggja.“ n
→ Inni- og útimerkingar
→ Sandblástursfilmur
→ Striga- og
ljósmyndaprentun
→ Bílamerkingar
→ Gluggamerkingar
→ Prentun á símahulstur
→ Frágangur
... og margt fleira
Skoðaðu
þjónustu
okkar á
Xprent.is
SundaBorG 1, reykjavík / SímI 777 2700 / XPrent@XPrent.IS
Egill ætlar að trolla á
Feneyjatvíæringnum
Tröllin Ūgh og Bõögâr eru sögð munu skapa listaverk fyrir hönd Íslands í Feneyjum
„Þetta er metnaðarfyllsta verk
Egils Sæbjörnssonar til þessa.
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Eddan 2017 verður veitt 26. febrúar
K
vikmyndin Hjartasteinn eftir
Guðmund Arnar Guðmunds-
son hlýtur sextán tilnefningar
til Eddunnar 2017. Kvikmynd
Baltasars Kormáks, Eiðurinn, hlýtur
næstflestar tilnefningar eða þrettán
talsins. Myndirnar eru báðar til-
nefndar sem besta kvikmynd ársins
auk Sundáhrifanna eftir Sólveigu
Anspach. Eddan er veitt í 25 flokkum
og fer verðlaunaafhendingin fram 26.
febrúar næstkomandi. Hátíðin verður
sýnd í beinni útsendingu á RÚV. Allar
tilnefningar má sjá nálgast á dv.is. n
Sjónvarpsmaður ársins
n Ævar Þór Benediktsson n Andri Freyr
Hilmarsson n Brynja Þorgeirsdóttir
n Helgi Seljan n Sigrún Ósk Kristjáns-
dóttir
Sjónvarpsefni ársins
n Borgarstjórinn n Leitin að upp-
runanumn Ligeglad n Ófærð n Rætur
Kvikmynd
n Eiðurinn n Hjartasteinn n Sund-
áhrifin
Leikstjórn
n Baltasar Kormákur – Eiðurinn
n Guðmundur Arnar Guðmundsson
– Hjartasteinn n Sólveig Anspach –
Sundáhrifin
Leikkona í aðalhlutverki
n Diljá Valsdóttir – Hjartasteinn n Hera
Hilmarsdóttir – Eiðurinn n Margrét
Vilhjálmsdóttir – Grimmd
Leikari í aðalhlutverki
n Baldur Einarsson – Hjartasteinn
n Blær Hinriksson – Hjartasteinn
n Snorri Engilbertsson – Fyrir framan
annað fólk
Heimildamynd
n Jökullinn Logar n Keep Frozen
n Ránsfengur (Ransacked)
Hjartasteinn
hlýtur 16 tilnefningar
Metsölulisti
Eymundsson
27. jan–1. feb 2017
Íslenskar bækur
1 LögganJo Nesbø
2 Átta vikna blóðsykurkúrinn
Michael Mosley
3 Aflausn Yrsa Sigurðardóttir
4 Synt með þeim sem drukkna
Lars Mytting
5 HeiðaSteinunn Sigurðardóttir
6 TvísagaÁsdís Halla Bragadóttir
7 PetsamoArnaldur Indriðason
8 1984 George Orwell
9 Leyndarmál húðarinnar
Yael Adler
10 Iceland Small World- lítil
Sigurgeir Sigurjónsson