Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2017, Blaðsíða 18
18 Páskablað 11. apríl 2017fréttir
BAÐHERBERGIS-
Þitt er valið
Þú velur að kaupa innréttinguna í
ósamsettum einingum, eða lætur okkur um
samsetninguna. Að sjálfsögðu önnumst við
líka uppsetningu og endanlegan frágang.
Fullkomin þjónusta, eigið verkstæði.
Fjölbreytt úrval aF hurðum, Framhliðum,
klæðningum og einingum
styrkur - ending - gæði
HÁGÆða DaNSKar
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
iNNrÉttiNGar
Opið:
Mán. til föstudaga kl. 09 til 18
Laugardaga kl. 11 til 15
10 athyglisverðar hug-
myndir í Betri Reykjavík
n Metfjöldi hugmynda barst í ár n Risasprellikarl, hundakaffihús og gapastokkur
Breiðholt
Kisur á öll hjúkrunarheimili
Auður Óskarsdóttir vill fá
ketti á öll hjúkrunarheimili
á höfuðborgarsvæðinu.
Bendir hún á að mikið sé
um heimilislausa ketti í
borginni. „Þessir kettir geta
gert sig heimakomna inn
á hjúkrunarheimili og veitt
vistmönnum félagsskap,“
ritar Auður og bætir við að
ákveðnar rannsóknir hafa
bent til þess að það sé mikill
félagslegur ávinningur fyrir
einstaklinga að umgangast
gæludýr. „Oft er mikill félagsskapur af þessum dýrum sem myndi koma sér vel fyrir vist-
menn hjúkrunarheimila, sem eiga það til að vera einangraður hópur.“
Risasprellikarl Arnar Snæberg Jónsson stingur upp á
að stærsta sprellikarli í heimi verði komið fyrir á hentugu grænu svæði í Breiðholti.
„Settur verði niður 10–12 metra hár staur og sprellikarlinn festur tryggilega efst á
hann. Áhugasamir sprellarar geta síðan kíkt við og togað í spottann og séð karlinn
veifa höndum og fótum í einskærri gleði við mikla ánægju viðstaddra. Síðan mætti
skipta út sprellikarlinum reglulega og setja upp sprellikonu og jafnvel sprellidýr.
Þannig yrði fjölbreytni tryggð, enda fylgir öllu sprelli nokkur alvara.“
Arnar bætir við að eftir talsverða rannsóknarvinnu virðist sem að risasprellikarl
af þessu tagi sé einsdæmi á heimsvísu. Þetta yrði því fyrsti sprellikarlinn til al-
menningsnota og líklega sá stærsti í heimi. „Fyrirbærið er því einstakt á heimsvísu,
skemmtilegt, gott aðdráttarafl og öflug markaðssetning á Breiðholtinu.“
Miðborg
Gapastokkur
á Austurvöll
Ragnar Björnsson stingur upp á að komið
verði fyrir gapastokki á Austurvelli fyrir
„spillta stjórnmálamenn sem hafa logið
sig til valda og brugðist trausti kjósenda.“
Leggur Ragnar til að gestum og gangandi
verði boðið að rassskella stjórnmála-
mennina fyrir væga þóknun sem gæti
runnið til Fjölskylduhjálpar. Aðspurður
um rök segir hann þau liggja ljós fyrir.
Skilti fyrir
endurnar
Sveindís Anja Vilborgar
stingur upp á að komið verði
upp fallegu skilti við Tjörnina
í Reykjavík þar sem vegfar-
endum er ráðið frá því að gefa
öndunum brauð. Í stað þess
væru vegfarendur hvattir til að
gefa fuglunum fæðu á borð við
steinalaus vínber, elduð hrís-
grjón og fuglafræ. Í rökstuðningi segir Sveindís að yndislegt fuglalíf sé við Tjörnina en það sé
þó vel vitað að brauð geri fuglunum ekki gott. „Skiltið væri fallegt, skýrt og einfalt og kæmi
skilaboðunum vel áleiðis, fuglarnir yrðu heilbrigðari og Tjörnin hreinni.“
Stytta til
heiðurs Jóni Páli
Hólmfríður Ben Benediktsdóttir stingur upp
á að reist verði stytta af Jóni Páli Sigmarssyni
kraftlyftingamanni að hnykla vöðvana. Styttan
gæti verið áletruð með hinum fleygu orðum
„Ekkert mál fyrir Jón Pál.“ Stingur Hólmfríður
upp á að styttunni verði komið fyrir í Hljóm-
skálagarðinum og að þá mættu vera þar í kring
skemmtileg útitæki til að efla krafta, svo sem
aflraunasteinar, fyrir bæði börn og fullorðna.
„Orðatiltæki Jóns Páls: „Ekkert mál fyrir
Jón Pál“ lifir meðal manna en yngra fólk veit
ekki hvaðan það er sprottið þó það þekki og jafnvel noti orðatiltækið. Höldum nafni þessa
sterkasta manns á lofti því ímynd hans er bæði jákvæð og skemmtileg,“ ritar Hólmfríður en
uppástunga hennar fær einkar góð viðbrögð á síðunni.
Reykjavík
Eye Tómas Helgi Bergs stingur
upp á parísarhjóli við Hallgrímskirkju,
sem yrði þá í líkingu við London
Eye-hjólið fræga í Lundúnum. Hjólið
myndi heita Reykjavík Eye og segir
Tómas að hægt sé að fá meiri yfirsýn
og taka betri myndir úr hjólinu en úr
Hallgrímskirkjuturni. Þannig myndu skapast betri aðstæður til ljósmyndunar fyrir erlenda
ferðamenn og Íslendinga.
Hundakaffihús Heiða Dóra
Jónsdóttir stingur upp á sérstöku hundakaffihúsi en slíka
staði má finna víða erlendis. „Væri ekki gaman að geta tekið
hunda inn á kaffihús með sér í staðinn fyrir að tjóðra þá fyrir
utan við staur? Heppileg staðsetning væri milli Klambratúns
og Hlemms, eða þar í kring,“ ritar Heiða en tæplega 60
manns hafa lýst velþóknun á uppástungunni á síðunni.
Kjalarnes
Kynningar-
skilti á
Kjalarnes
Elfa Björk Ellertsdóttir stingur
upp á að komið verði fyrir kynn-
ingarskilti þar sem fólk er hvatt
til þess að staldra við á Kjal-
arnesi og njóta náttúrufegurð-
ar, sjóbaða og fleiri tómstunda
sem nesið hefur að bjóða. „Það
þarf að vekja athygli fólks á
Kjalarnesi og að þetta sé meira
en hjáleið á þjóðvegi 1.“
Hlíðar
Bjórgarður við
Kjarvalsstaði
Bolli Héðinsson leggur til að sumarbjór-
garði verði komið fyrir við Kjarvalsstaði,
í samstarfi við bjórframleiðendur.
Bjórgarðurinn yrði opinn frá maí til loka
ágúst og eingöngu um helgar. Hægt
væri að setja upp bjórgarðsborð og
fá hljómsveit til að leika tónlist. Bolli
bendir á að þeir sem þekki til bjórgarða
í Þýskalandi viti hversu lifandi mannlíf
getur þrifist þar. Auk bjórs væri hægt að
bjóða upp á mat beint af grilli.
Vesturbær
Gönguleið helguð
Þórbergi
Elfa Björt Gylfadóttir stingur
upp á að heiðruð verði minn-
ing Þórbergs Þórðarsonar rit-
höfunds með því að merkja
leiðina sem Þórbergur gekk
daglega frá heimili sínu við
Hringbraut um Vestur bæinn.
Þórbergur bjó lengi við
Hringbraut og á fleiri stöðum í Vesturbænum, sem
kemur mikið við sögu bókum hans. Stingur Elfa upp
á að á gönguleiðinni verði komið fyrir skilti með
fróðleik, til dæmis um Müllersæfingar, orðasöfnun
eða upplýsingar og/eða texti úr bókum Þórbergs,
og vekja þannig áhuga á verkum hans.
R
eykjavíkurborg hefur síð-
ustu sjö ár efnt til hugmynda-
söfnunar þar sem íbúar geta
komið með uppástungur að
framkvæmdum og viðhalds-
verkefnum í borginni. Frestur til að
skila inn hugmyndum rann út þann
24. mars síðastliðinn og mun kosn-
ing fara fram í haust. Fram kemur í til-
kynningu að metþátttaka hafi verið í
ár en alls voru 1.080 hugmyndir lagð-
ar fram. Til 8. apríl verður mögulegt
að rökstyðja, ræða og gefa hugmynd-
um vægi á vefnum hverfidmitt.is en
hugmyndir sem teknar verða í áfram-
haldandi vinnslu verða að fá fylgi tíu
íbúa. Þá mun hverfisráð borgarinnar
taka ákvörðun um 25 hugmyndir fyrir
borgarhlutana tíu í júní næstkom-
andi og í október verður loks blásið til
kosninga meðal íbúa Reykjavíkur.
Uppástungurnar eru jafn mis-
munandi og þær eru margar og inni
á milli leynast nokkrar sem myndu
líklega seint teljast raunsæjar. DV tók
saman nokkrar af athyglisverðustu
hugmyndunum í ár. n
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is