Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2017, Blaðsíða 37
fólk - viðtal 37Páskablað 11. apríl 2017
Ofvirki Skagastrákurinn
sem breyttist í vöðvafjall
Hafþór ákvað að hætta í fram-
haldsskóla 18 ára gamall. „Það komst
ekkert annað að en æfingar og að
borða. Mér fannst skólinn vera að
trufla mig frá æfingum. Álagið var oft
mjög mikið á þessum tíma, jafnvel
þrjár æfingar á dag. Mamma og pabbi
voru ekkert alltof ánægð með þetta til
að byrja með og fólk spurði mig hvað
ég væri eiginlega að spá, hvað ætlaði
ég eiginlega að fara að gera í lífinu?
Ég var að vinna við dyravörslu á þess-
um tíma og vissi svo sem ekkert al-
mennilega hvert ég ætti að stefna.
Það að vinna við að vera kraftakarl og
leika í auglýsingum var ekki eitthvað
sem ég vissi að væri hægt.“
Hafþór kveðst vera feginn því að
hafa fylgt innsæinu á sínum tíma.
„Það var eitthvað inni í mér sem
sagði að ég væri að gera rétt. Ég gerði
mér ekki grein fyrir því þá hvað það
átti eftir að skila mér miklu. Ég gerði
það sem hjartað sagði mér að gera.
Það skilaði mér þeim árangri sem ég
hef náð í dag.“
Hann viðurkennir að hann sjái
örlítið eftir að hafa ekki lokið nám-
inu á sínum tíma. Kannski mun
hann gera það í framtíðinni. „Ég veit
að ég gæti auðveldlega lært ef ég setti
mér það markmið. Ég er líka orðinn
rólegri í dag. Enda er ég næstum því
200 kíló!“
Fimm sinnum á verðlaunapall
Körfuboltaferli Hafþórs lauk þegar
hann var tvítugur og meiddist illa á
ökkla. Hann þurfti að kveðja draum-
inn um spilamennsku í NBA. Í stað-
inn tók annað við. Hann hitti Magnús
Ver Magnússon í líkamsræktarstöð
og sagði hann Hafþór vera efni í afl-
raunamann.
„Þegar ég var í körfunni var ég
alltaf á ferðinni enda vildi ég hafa
gott þol og vera í góðu formi. Þannig
að ég náði ekki að styrkjast eins
mikið og stækka. En um leið og ég
hætti í körfunni og byrjaði í lyft-
ingum þá stökkbreyttist líkaminn,“
segir Hafþór. „Ég fékk brjálæðislegan
áhuga og hef ekki stoppað eftir þetta.
Ef ég set mér markmið þá get ég ekki
hætt án þess að ná því.“
Hafþór hefur sex sinnum unnið
titilinn Sterkasti maður Íslands og
þrisvar sinnum hefur hann unnið
keppnina um sterkasta mann
Evrópu. Fimm sinnum hefur hann
lent á palli í keppninni Sterkasti
maður heims, ýmist í öðru eða þriðja
sæti. Núna er hann orðinn óþreyju-
fullur. Í ár verður það fyrsta sæti.
„Ég er búinn að vera á palli í
fimm ár án þess að vinna og núna er
kominn tími á það. Ég er búinn að
vera alveg nógu oft í öðru og þriðja
sæti. Ég myndi gera hvað sem er til
að vera sterkasti maður heims, enda
ætla ég að vinna í ár. Ég hef aldrei
verið í eins góðu formi og núna, og ég
hef heldur aldrei verið eins ákveðinn,
enda geri ég nákvæmlega ekkert ann-
að þessa dagana en að borða, æfa og
sofa. Ég vil koma heim með titilinn
og gera mömmu og pabba, dóttur
mína, og fjölskylduna stolta af mér.“
Erfið fjarvera frá dótturinni
Hafþór varð faðir 21 árs.
„Hún er algjört yndi, hún Theresa
mín. Ég varð allt annar maður eftir
að ég eignaðist hana. Ég varð miklu
betri maður. Það breytir auðvitað
öllu að eignast barn. Það breytti samt
ekki þeirri stefnu sem ég var á lífinu,
og ef eitthvað er þá gerði það mig
enn ákveðnari í ná langt. Mig lang-
aði að ná árangri og ná árangri í líf-
inu – út af henni. Ég vil að hún horfi
á pabba sinn og sjái hann sem fyrir-
mynd. Og sé stolt af mér.“
Theresa er í dag átta ára og býr í
Danmörku. Hafþór nýtir hverja ein-
ustu stund sem hann fær með dóttur-
inni og kveðst óska að þær væri fleiri.
„Það er oft erfitt þegar of langur tími
líður á milli. Söknuðurinn verður svo
mikill. Helst vildi ég geta hitt hana
miklu oftar. Ég reyni að heimsækja
hana í Danmörku þegar ég get og
þegar hún kemur til Íslands er aldrei
dauð stund hjá okkur.“
Vill hitta Jón Pál
Hafþór hefur undanfarin ár farið með
hlutverk Gregors „The Mountain“
Clegane í hinum geysivinsælu sjón-
varpsþáttum Games of Thrones
„Það var
engan
veginn hægt
að fá mig til
að sitja kyrr og
læra. Það bara
gekk ekki. Ég
þurfti alltaf að
vera að gera
eitthvað.