Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2017, Blaðsíða 38
38 fólk - viðtal Páskablað 11. apríl 2017
Alhliða veisluþjónusta
Kökulist | Firðinum í miðbæ Hafnarfjarðar | Sími: 555 6655 og 662 5552 | kokulist@kokulist.is
Eingöngu fyrsta flokks hráefni
Tertur – Tapas snittur – Spjót – Súrdeigsbrauð
Konfekt – Kransakökur – Súpur – Brauðréttir
Gerðu daginn eftirminnilegan
Útskrift · Brúðkaup · Skírn · Ferming
og mörgum er í fersku minni atriðið
þegar persóna hans sprengdi höfuð-
kúpu Oberyns Martell með handafli.
Einn af höfundum þáttanna lýsti því
yfir að atriðið væri eitt það besta sem
sést hefur í þáttunum frá upphafi.
Fleiri hlutverk hafa boðist, sem
og leikur í auglýsingum. Hann kann
vel við sig fyrir framan myndavél-
ina. „Ég er náttúrlega ekki lærður
leikari en ég reyni eins og ég get að
læra af fólkinu í kringum mig. Ég get
orðið stressaður þegar kemur að því
að læra línur þannig að þetta getur
verið krefjandi, en samt svo ótrú-
lega gaman.
Ég er auðvitað
þakklátur fyrir öll
tækifærin sem ég
hef fengið og ég
veit að ég er að
mörgu leyti hepp-
inn en ég hef líka
þurft að vinna
fyrir þessum
líkama. Ég veit
ekki hvort ég væri
að fá þessi tækifæri ef
ég væri 80 kíló. Það eru
ekki margir þarna úti eins og
ég, 195 kíló og yfir 200 sentimetrar á
hæð. Það þarf einhver að leika alla
þessa stóru karla, og það eru ekki svo
margir að velja úr.“
Hann veit sjálfur að Hafþór Júlíus
er vörumerki. „Þetta er mín ímynd,
að vera sterkur og stór. Og ég vil
skapa vörumerki sem fólk fílar, það
er að segja karakter.“
Hafþór sker sig úr hvert sem hann
fer, enda gríðarstór og mikill maður
sem gnæfir yfir fjöldann. Það er ekki
að ástæðulausu að hann er kallaður
Fjallið. Nú er svo komið að banda-
rískir slúðurmiðlar eru farnir að elta
hann á röndum. Hann kippir sér þó
sjaldnast upp við athyglina.
„Þetta er orðið þannig í dag að
ég er nánast hættur að taka eftir því
þegar fólk starir á mig úti á götu. Þeir
sem eru í fylgd með mér taka hins
vegar eftir því. Ég hef til dæmis verið
innan um fólk sem ég er nýbúinn
að kynnast og það fer allt í einu að
taka eftir að allir í kring eru að horfa
í áttina að okkur. Og skilja ekkert í
því fyrr en þau að snúa sér við og sjá
mig!“
Honum er oft líkt við annan
kraftlyftingamann sem sigr-
aði huga og hjörtu Ís-
lendinga á árum áður,
Jón Pál Sigmarsson.
„Ég vissi auðvitað
hver hann var
þegar ég var yngri
en ég myndi samt
ekki beint segja
að hann hafi verið
fyrirmyndin mín
þá. En í dag myndi
ég ekki hafa neitt á
móti því að fá að spjalla
við hann og fá eitt eða tvö
ráð. Hann var auðvitað einstakur
maður, og þjóðhetja. Ég myndi samt
ekki líkja mér við hann.“
Fjölskyldumaður
Hann veit að hann verður ekki afl-
raunamaður það sem eftir er. Það er
annað með leiklistina. Hann hefur
fengið tilboð frá kvikmyndaverum
í Hollywood sem hann hefur þurft
að hafna vegna skuldbindingar við
Game of Thrones. Í framtíðinni sem
er samt allt opið hvað varðar leik-
listina.
„Eins og er þá er ég með mín
markmið í aflraununum og ætla að
ná þeim. Ég veit samt að ég hef ekki
endalausan tíma.“
Hvar heldurðu að þú verðir eftir
tíu ár?
„Þá verð ég orðinn 38 ára. Ég get
alveg séð það fyrir mér að vera leik-
ari eftir tíu ár. Búinn að koma mér vel
fyrir og verð vonandi orðinn kvæntur
maður,“ segir Hafþór. Honum
finnst ekki leiðinlegt að dekra við
konurnar í lífi sínu. „Þótt ég sé risa-
stór og sterkur þá kem ég samt mjúk-
lega fram við konur. Og ég reyni að
vera kurteis við alla sem ég hitti.
Mig langar líka að eignast stærri
fjölskyldu. Helst að eignast fleiri
börn,“ segir Hafþór. Tilhugsunin um
lítinn Hafþór sem vill vera alveg eins
og pabbi sinn er ekki afleit.
Ertu mikill fjölskyldumaður?
„Já, það er engin spurning. Ég
hef líka svo gaman af börnum og hef
alltaf haft. Mér finnst góð tilhugsun
að eiga fjölskyldu og lifa þannig lífi
í framtíðinni, enda heillar það mig
ekkert að fara niður í bæ að djamma
og drekka. Ég vil frekar þetta venju-
lega líf. Þetta hefðbundna.“ n
Föður-
hlutverkið
breytti öllu
„Ég varð allt
annar maður
eftir að ég eign-
aðist hana.“
Ótrúleg breyting Myndin er tekin árið
2006 þegar Hafþór var 17 ára. Líkt og sjá
má hefur hann breyst mikið.
Ætlar að vinna í ár Hafþór er staðráðinn í koma heim með titilinn Sterkasti maður heims.
„Ég gerði það
sem hjartað sagði
mér að gera. Það skilaði
mér þeim árangri sem ég
hef náð í dag.