Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2017, Blaðsíða 76

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2017, Blaðsíða 76
„ÁN EFA MEST ÓGNVEKJANDI ÁHEYRENDAHÓPUR Á LANDINU“ Albert Guðmundsson (26) laganemi, flugþjónn hjá Icelandair og varaþingmaður flutti jómfrúrræðuna sína á þingi: ÞINGMAÐURINN UNGI Albert hefur nú flutt fyrstu ræðu sína á Alþingi Íslendinga og margir hugsa hvort þetta þetta sé ekki afar stressandi tilfinning. „Ég hef nú haldið ófáar ræður í gegnum tíðina, og er almennt ekkert sérstaklega stressaður að fara upp í ræðustól, en í fullri hreinskilni, þá er þetta klárlega mest taugatrekkjandi ræða sem ég hef haldið. Það var frekar lítið sofið nóttina áður, og þegar upp var staðið kláraði ég ekki að skrifa ræðuna fyrr en klukkutíma áður en ég steig í pontu. En ég var nú búinn að ákveða efnið fyrir löngu og vissi upp hár hvað ég vildi segja, enda málefni sem mér er hugleikið. Ræðan heppnaðist svo bara vel og ég fékk góð viðbrögð. Mamma sagði reyndar að ég hefði talað of hratt, en það er annað mál,“ segir Albert og brosir. Vill hlúa vel að foreldrum, ömmum og öfum „Það má alltaf gera betur. Það er mjög mikilvægt að hlúa vel að þessum mála- flokki og búa þannig um að þeir sem hafa gefið til samfélagsins alla ævi geti lifað áhyggjulaust ævikvöld. Öll eigum við foreldra, ömmur og afa. Þetta er málefni sem snertir alla sem vilja eldast á Íslandi, og því er þetta málefni alls samfélagsins. Eins og ég talaði um í ræðunni, þá finnst mér mikilvægt að almannatryggingakerfið tryggi fólki framfærslu og að hvatarnir séu réttir, þannig að fólk sem hefur starfsgetu sjái hag sinn í því að afla sér tekna og leggja til samfélagsins. Í því samhengi benti ég á að við ættum að ganga enn lengra í að hækka frítekjumark og lækka tekjuskerðingar. Ég vil halda áfram að beita mér fyrir því,“ segir Albert ákveðinn á svip. Gott á fólk á þinginu Hvernig ætli upplifunin sé að vera kominn á þing? „Það var frekar óraunveruleg tilfinning að taka sæti á Alþingi, þessari merku stofnun, og vera kominn inn í umhverfi sem maður þekkir bara af sjónvarps skjánum. Mér var reyndar einstaklega vel tekið af samflokksmönnum, öðrum þing- mönnum og starfsfólki þingsins. En ég viðurkenni að þetta er sérstakur vinnustaður og það að taka til máls í þingsal er óneitan lega mjög stressandi. Þetta er án efa mest ógnvekjandi áheyrendahópur sem þú finnur á landinu, svo ekki sé meira sagt. En ég tek hins vegar fram að þetta er allt mjög gott fólk.“ Stjórnmálavitund ungs fólks hefur aldrei verið meiri Albert segir að stjórnmálin séu að breytast og fólkið með. „Það er alveg ljóst að við erum að upplifa mjög áhugaverða tíma í stjórn- málunum. Það mikil gerjun á litrófi stjórnmálanna, til dæmis hafa aldrei verið fleiri flokkar í framboði en í síðustu alþing- iskosningum. Fyrir mér virðist sem pólaríseringin milli vinstri og hægri sé að aukast, til að mynda hefur upp á síðkastið stofnun nýs sósíalistaflokks verið mikið í umræðunni, sem mér finnst sérstaklega athyglisvert. En ef maður horfir á þetta í breiðara samhengi þá endurspeglar þetta í raun þá þróun sem er að eiga sér stað í Evrópu, og raunar heiminum öllum. Ég tel reyndar að stjórnmálavitund fólks, sérstaklega ungs fólks, hafi aldrei verið meiri, þó svo að hún birtist ekki endilega í áhuga á flokkapólitík. Í þessu samhengi er rétt að nefna t.d. fjöldann allan af grasrótarhreyfingum sem hafa staðið fyrir baráttu ótal réttlætismála á síðustu árum. Það tel ég vera mikið fagnaðarefni og mjög dýrmætt fyrir lýðræðissamfélög.“ En hvernig ætli það sé með Albert sjálfan, ætli hann sé kominn með skýra framtíðarsýn? „Já og nei – það er klár- lega minn draumur að geta látið gott af mér leiða en á hvaða vettvangi það verður er óráðið, tíminn einn getur leitt það í ljós,“ segir Albert glaður á bragði. Albert vakti mikla athygli þegar hann tók sæti Alþingi í síðustu viku en hann er fyrsti varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður. Þrátt fyrir að vera fulltrúi yngri kynslóðarinnar og yngsti einstak- lingurinn til að taka sæti á yfirstandandi þingi tileinkaði Albert eldri borg- urum jómfrúrræðu sína. FÁGAÐUR Albert er glæsileikinn uppmálaður og kemur einstak- lega vel fyrir. lAGAneminn Göngutúr er góður til að hreinsa hugann. meÐ ReiSn Hér flytur Albert sína fyrstu ræðu á Alþingi Íslendinga. HÁTíðLEG oPNUN í GALLERí FoLD Margt var um manninn þegar Elínborg Oster- mann Jóhannesdóttir opnaði málverkasýningu sína í Gallerí Fold með pomp og prakt á dögun- um. Fjölmargir lögðu leið sína þangað til að njóta listarinnar og samfagna með Elínborgu. GlÆSileG Ármann Reynis- son og Bergþóra voru ánægð með verkin á sýningunni. FeRSK Jóhann Ágúst, framkvæmdastjóri Gallerí Fold, og Elínborg Ostermann Jóhannes dóttir myndlistakona brostu sínu blíðasta í tilefni dagsins. HReSSAR Ellen og Margrét voru glaðar á bragði og nutu sín í góðum félagsskap. AlSÆll Tryggvi Páll Friðriksson listmunasali var ánægður með opnunina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.