Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2017, Blaðsíða 10
10 Páskablað 11. apríl 2017fréttir
Opið virka daga frá 9 til 18
laugardaga 11 til 15
Ármúla 31 - Sími 588 7332
Baðinnréttingar
i-t.is
Sex milljarða skuldir
afskrifaðar hjá ríkisstofnunum
T
ekið var á uppsafnaðri
skuldasöfnun 57 ríkisstofn
ana á dögunum með því að
afskrifa 5,9 milljarða króna
skuldir þeirra í sérstakri
niðurfellingu. Viðskiptaráð Íslands
segir að mikilvægt sé að ný lög um
opinber fjármál nái markmiðum sín
um þannig að skilgreind útgjöld rík
isstofnana standist, annars sé hætta
á því að skuldaafskriftir sem þess
ar verði ekki undantekning heldur
meginregla næstu árin.
2,6 milljarðar felldir niður hjá
Landspítalanum
Þann 22. mars síðastliðinn voru
samþykkt lokafjárlög fyrir árið 2015
þar sem þessi niðurfelling skulda
ríkisstofnana kom fram. Viðskipta
ráð birtir umfjöllun um málið á vef
sínum þar sem fram kemur að um
rædd grein í lokafjárlögunum hafi
farið nokkuð hljótt í umræðunni.
Þar kemur fram að um tvenns
konar afskriftaraðgerðir hafi ver
ið að ræða. Annars vegar fengu þær
stofnanir sem skulduðu annaðhvort
yfir 10% af fjárlagaveltu eða meira en
50 milljónir króna í árslok 2015, 85%
af sínum halla afskrifuð. Undan
tekning var gerð hjá Landspítalan
um þar sem afskriftir skulda námu
90% af halla, eða alls 2,6 milljörðum
króna. Afskriftir stofnana sem féllu
undir þennan lið námu 5,6 milljörð
um króna.
Hins vegar fengu þær stofnanir
sem skulduðu milli 10–50 milljónir
króna í árslok 2015, 50% af rekstrar
halla afskrifuð. Alls námu afskriftir
þessara stofnana 315 milljónum
króna.
Vandinn orðinn þeim um megn
Í athugasemdum lokafjárlagafrum
varpsins segir að almennt sé um að
ræða tilvik þar sem uppsafnaður
halli sé orðinn það mikill að ekki hafi
lengur verið talið raunhæft að við
komandi aðilar gætu unnið á hon
um að óbreyttum fjárheimildum og
þjónustustigi.
„Tilgangur þessarar aðgerðar er
einnig að búa í haginn fyrir einstök
ráðuneyti með því að skapa þeim
traustari grundvöll undir áætlana
gerð og undirbúning að framkvæmd
fjárlaga á árinu 2017 í samræmi við
lög um opinber fjármál og betri að
stæður til að uppfylla lagakröfur um
að halda útgjöldum málaflokka inn
an fjárheimilda.“
Verði ekki verðlaunaðar með
afskriftum
Í umfjöllun Viðskiptaráðs segir að
ráðið gagnrýni ekki afskriftirnar sem
slíkar.
„Ljóst er að aðgerða var þörf úr
því sem komið var. Hins vegar árétt
ar ráðið mikilvægi þess að ný lög um
opinber fjármál nái markmiðum sín
um svo að stofnanir séu ekki verð
launaðar fyrir að fara fram úr skil
greindu fjármagni sínu og afskriftir
sem þessar endurtaki sig ekki.“
Viðskiptaráð bendir á að undan
farin ár hafi markmið stjórnvalda í
ríkisfjármálum ekki rímað við end
anlega niðurstöðu. Ríkisreikning
ur hafi að meðaltali farið 5,9% fram
úr fjárlögum hvers árs eftir hrun.
Hlutfallið sé enn hærra sé horft til
fjárlagafrumvarps, þar sem fram
úrkeyrslan hefur numið 8,4% að
meðaltali.
Bent er á að í fjármálastefnu ríkis
og sveitarfélaga til næstu fimm ára
sé gert ráð fyrir um 1,6% afgangi í
rekstri hins opinbera á næsta ári sem
fer svo stiglækkandi.
„Í þeirri stefnu er eðlilega ekki
gert ráð fyrir framúrkeyrslu á
útgjaldahlið rekstursins. Ráðið árétt
ar því í ljósi sögunnar mikilvægi þess
að ný lög um opinber fjármál nái
markmiðum sínum þannig að fyrir
fram skilgreind útgjöld ríkisstofnana
standist. Annars er hætta á að af
skriftir líkt og þær sem áttu sér stað í
lokafjárlögum verði ekki undantekn
ingartilvik heldur meginregla næstu
árin.“
Í meðfylgjandi töflum má sjá
hvernig staða verst settu ríkisstofn
ananna var í árslok 2015 og hversu
miklar skuldir voru afskrifaðar. n
Svona var afskrifað hjá þeim
85% niðurfelling
Stofnanir sem skulduðu annaðhvort yfir 10% af fjárlagaveltu eða meira en 50 milljónir
króna og fengu 85% af sínum halla afskrifaðan*
Landspítali –2.919 2.627
Sóltún, Reykjavík –527,8 448,6
Landbúnaðarháskóli Íslands –401,1 340,9
Heilbrigðisst. Suðurl. –399,7 339,7
Heilbrigðisst. Austurl. –251,0 213,4
Hólaskóli – Háskólinn á Hólum –189,6 161,2
Einkaleyfastofan –163,6 139,1
Samgöngustofa –158,8 135,0
Flensborgarskóli –149,5 127,1
Lögreglustjórinn á höfuðb. –146,2 124,3
Heilbrigðisst. Vestfj –142,2 120,9
Heilbrigðisst. Norðurl. –96,2 81,8
Sýslumaður á höfuðb. –95,5 81,2
Sjúkrahúsið á Akureyri –75,1 63,8
Heilsug. á höfuðb. –74,7 63,5
Heilbrigðisst. Suðurnesja –65,2 55,4
Náttúrufræðistofnun Íslands –77,4 53,0
Sýslumaður Vesturlands –61,2 52
Sólvangur Hafnarfirði –59,5 50,6
Rannsóknanefnd samgönguslysa –59,0 50,2
Þjóðskrá Íslands –107,0 49,1
Námsgagnastofnun –55 46,8
Sýslumaður Suðurlands –48,4 41,1
Sýslumaður Austurlands –34,2 29,1
Stjórnartíðindi –27,1 23,0
Sýslumaður N-eystra –26,5 22,5
Listasafn Íslands –26,2 22,3
Námsmatsstofnun –24,4 20,7
Sýslumaður Vestfjarða –22,1 18,8
Sýslumaður Vestmannaeyja –13,7 11,6
Alls skuldir/afskrifað: –6.497 5.613,9
Raðað frá hæstu niður í lægstu niðurfellingu
50% niðurfelling
Stofnanir sem skulduðu milli 10–50 milljónir króna fengu 50% af rekstrarhalla afskrifuð
Ríkislögreglustjóri –49,5 24,8
Fjölbr.sk. í Breiðholti –47,9 24,0
Rannsóknarmiðst. Íslands –43,2 21,6
Menntask. í Kópavogi –40,3 20,2
Verkmennt.sk. Akureyri –37,3 18,7
Lögreglustj. Vesturland –33,1 16,6
Sinfóníuhljómsveitin –28,0 14,0
Menntask. á Akureyri –27,2 13,6
Menntask. við Sund –25,8 12,9
Kvennask. í Reykjavík –24,2 12,1
Héraðsdómstólar –23,4 11,7
Þjóðleikhúsið –21,9 11,0
Fjölbr.sk. Suðurl. –21,8 10,9
Lögreglustj. Austurlands –21,1 10,6
Lögreglustj. Norðurl. V –20,2 10,1
Ríkissaksóknari –17,7 8,9
Sýslum. Norðurlands V –16,9 8,5
Tilraunst. Hásk. Keldum –15,5 7,8
Stofn. Árna Magnússonar –15,5 7,8
Lögreglustj. Suðurnes –15,3 7,7
Sýslumaður Suðurnes –15,0 7,5
Lögreglustj. Suðurland –13,6 6,8
Lögreglustj. Vestfjörðum –11,6 5,8
Póst- og fjarskiptastofnun –11,4 5,7
Lögreglustj. Vestm.eyjar –11,3 5,6
Fjölbr.sk. Norðurl. V –10,9 5,5
Framhaldssk. Mosfellsbæ –10,4 5,2
Alls skuldir/afskrifað: –629,9 315,6
Raðað frá hæstu niður í lægstu niðurfellingu
Uppsafnaður halli í
árslok 2015 í millj. kr.
Afskrifað
í millj. kr.
Uppsafnaður halli í
árslok 2015 í millj. kr.
Afskrifað
í millj. kr.Ríkisstofnun
Ríkisstofnun
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Landspítalinn Uppsafnaður halli Landspítalans í árslok
2015 nam rúmum 2,9 milljörðum króna. Ríflega 2,6 milljarðar
þar af voru afskrifaðir í aðgerðum sem Viðskiptaráð segir að
hafi verið nauðsynlegar, úr því sem komið var.