Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2017, Blaðsíða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2017, Blaðsíða 52
52 lífsstíll Páskablað 11. apríl 2017 Leiðandi á leiksvæðum • Sími 565-1048 jh@johannhelgi.is • www.johannhelgi.is Gúmmí- hellur Jóhann Helgi & Co ehf, „Stofnað 1990“ Sími 565 1048 - 820 8096 jh@johannhelgi.is – www.johannhelgi.is Útileiktæki: Rólur, vegasölt, gormatæki, rennibrautir, leikkastalar ofl. Frá viðurkenndum framleiðendum eins og Lappset, Wicksteed, Stilum, Dynamo, Huck ofl. Járnrimlagirðingar fyrir skóla- og leikskólalóðir, íþróttavelli, fjölbýlishús og einkalóðir. Þýsk gæði frá Legi. Hjólabrettapallar frá Rhino Ramps í Belgíu, komnir upp víða um land við frábærar undirtektir notenda. Fallvarnarefni: Gúmmíhellur frá Þýskalandi og gúmmímottur á gras, þar sem grasið vex upp í gegn um motturnar og motturnar hlífa grasinu og virka sem fallvörn. Leikföng, húsgögn og búnaður fyrir leikskóla frá stærsta dreifingaraðila Danmörku, Lekolar (áður Rabo - Brio). Mörk og körfur, útiþrektæki og ýmsar gerðir af sparkvöllum frá viðurkenndum framleiðendum eins og t.d. Sure Shot, Lappset, Wicksteed og Saysu. Bekkir, ruslafötur, stubbahús, skýli, reiðhjólagrindur, trjágrindur, pollar, ljósastaurar, blómaker ofl. frá GH Form, Vekso, Nifo, Orsogril Vestre o.fl. Bændur og hestamenn: Nótuð plastborð, fjárhúsgólf, búgarðagirðingar (Dallas), gerði og girðingarstaurar. úr plasti, básamottur og fóðurgangamottur. BJóðuM HeiLdarLausnir á LeiksvæðuM. uppsetning, viðHaLd og þJónusta Leitið tiLBoða w w w .jo ha nn he lg i.i s Sumarhúsið og garðurinn 2. 2009 33 M yn di r f rá F er ða þj ón us tu nn i V at ns ho lti w w w .s ta yi ni ce la nd .is Meðferð sem gagnast flestum Erla Björnsdóttir hefur sérhæft sig í hugrænni atferlismeðferð við svefnleysi E rla Björnsdóttir hefur sérhæft sig í hugrænni atferlismeð- ferð við svefnleysi og vinnur að rannsóknum á því sviði með samstarfsmönnum í Evrópu og Bandaríkjunum. Erla, sem er doktor í líf- og læknavísindum, er höfundur bókarinnar Svefn, sem kom nýlega út. Erla er fyrst spurð hvað gerist ef við sofum ekki nóg. „Það er ótal margt sem gerist, bæði í líkama og sál. Það má segja að áhrifin séu mjög víðtæk og snerti flesta fleti daglegs lífs,“ segir hún. „Fólk finnur fyrir einbeitingarskorti, orkuleysi og pirringi. Þráðurinn verð- ur styttri og minnið verður verra. Þegar svefnskortur fer að verða langvarandi taka að hlaðast upp alls kyns bólgu- efni í blóðinu sem geta aukið áhættu á ýmsum sjúkdómum. Fólk er líklegra til að upplifa kvíða og depurð af því að það er í til finningalegu ójafnvægi. Ónæmis kerfið gefur eftir og fólk nælir sér í flensu og pestir. Slysahætta eykst, afköst í vinnu minnka, fólk tekur fleiri veikindadaga og nýtir heilbrigðisþjón- ustu í auknum mæli. Við sjáum líka að fólk sem þjáist af svefnleysi leitar frekar í áfengi og lyf.“ Sjaldgæfar undantekningar Eru dæmi um að manneskjur sem sofa einungis nokkra tíma á sólar- hring finni ekki fyrir neinum nei- kvæðum áhrifum vegna þess? „Samkvæmt rannsóknum eru til einstaklingar sem hafa ákveðna genasamsetningu og komast upp með að sofa minna en sex tíma, án þess að finna fyrir neikvæðum áhrif- um. Það eru um þrjú prósent mann- kyns sem hafa þessi einkenni. Þetta er því miklu sjaldgæfara en við kannski höldum.“ Er alltaf til lausn við krónísku svefnleysi? „Í langflestum tilvikum er til lausn. Hvert tilvik þarf að skoða fyrir sig. Sú meðferð sem gagnast flestum er hugræn atferlismeðferð.“ Leita seint hjálpar Segðu mér aðeins frá hugrænni atferl- ismeðferð. „Hugmyndafræðin á bak við hug- ræna atferlismeðferð er sú að þegar vandinn er orðinn langvarandi þá séu það hugsanir okkar og atferli sem halda lífi í honum. Mjög oft byrjar svefnleysi út af einhverju, til dæmis veikindum eða álagi, svo líða veik- indin hjá en svefnleysið er ennþá til staðar. Fólk er þá komið í ákveðið mynstur og er farið að temja sér slæmar venjur sem vinna með því. Þegar fólk sefur illa þá finnst því eðlilegt að bæta sér það upp og fara fyrr að sofa kvöldið eftir eða ná sér í kríu í hádeginu, en það er einmitt þessi hegðun sem heldur því inni í vítahringnum. Þá þarf að kortleggja svefnmynstrið. Fólk sem kemur til mín heldur mjög nákvæma svefn- dagbók sem ég fer mjög vel yfir. Ég set fólki ákveðnar reglur og ramma um það hvenær það á að fara að sofa og hvað það á að gera ef það getur ekki sofnað. Svo fer ég yfir þá þætti sem hafa áhrif á svefn, eins og streitu, hreyfingu, mataræði og lífsstíl, svefn- herbergið og svefnumhverfið. Það eru svo ótal margir litlir þættir sem skipta máli þegar kemur að svefni. Með hugrænni atferlismeðferð sjáum við 80–90 prósent fólks ná góðum bata með svefninn. Þetta eru mjög oft einstaklingar sem eru búnir að glíma lengi við svefnleysi. Því mið- ur kemur fólk oft seint að leita sér hjálpar, er jafnvel búið að glíma við vandann í áratugi. Það kemur fólki stundum á óvart hversu fljótt árangur næst þar sem margir hafa gefið upp von um betri svefn. En þetta er ekki auðvelt fyrir einstaklinginn. Með- ferðin tekur að meðaltali sex vikur og reynir verulega á. Fólk þarf að breyta lífsstíl og venjum og taka allt svefn- mynstur algjörlega í gegn.“ Mælir ekki með svefnlyfjum Gera svefnlyf gagn? „Þar tekur fólk lyf sem bæla niður einkenni vandans en allt annað breytist ekki. Það er ekki verið að vinna í rótum vandans og ef fólk sleppir svefntöflunni þá dúkkar vandinn gjarnan upp aftur.“ Mælirðu þá ekkert sérstaklega með svefnlyfjum? „Nei, ég mæli ekkert sérstak- lega með þeim. Við Íslendingar tök- um allt of mikið af þeim en þau eiga rétt á sér í ákveðnum aðstæðum ef þau eru notuð rétt. Svefnlyf eru hugsuð í skamman tíma til að bregð- ast við skyndilegu og skammvinnu svefnleysi eða til að rjúfa vítahring. Þau geta verið gagnleg í upphafi meðferðar en það er ekki mælt með að fólk taki svefnlyf í meira en fjór- ar vikur í einu. Þau geta haft skaðleg áhrif til lengri tíma.“ Hreinsun fyrir hugann Er svefnleysi barna og unglinga mikið vandamál? „Mín tilfinning er sú að vandinn sé vaxandi. Það er mikil aukning í þjónustu hjá sálfræðingum fyrir börn og unglinga með svefnvanda. Nýleg íslensk rannsókn sýndi að börn í tíunda bekk sofa sex tíma á sólarhring á virkum dögum með- an þau þurfa að sofa níu til tíu tíma. Rannsóknir sýna mikil tengsl milli svefnskorts og athyglisbrests, þunglyndis, kvíða og lakari náms- árangurs. Heimurinn hefur gjör- breyst á stuttum tíma, tæki, tól og tækni sem var ekki til staðar áður hefur áhrif á svefn. Það er svo mikilvægt að auka fræðslu um svefn og góðar svefnvenjur. Um þetta ætti að vera mikil fræðsla í skólum.“ Í lokin, okkur dreymir þegar við sofum. Hvað viltu segja um drauma? „Við vitum lítið um drauma, jafn spennandi og þeir eru. Meðal þeirra sem koma til mín er fólk sem glím- ir við endurteknar martraðir sem tengjast oft einhverju óuppgerðu áfalli. Raskanir á draumsvefni verða oft ef við erum undir álagi og ljóst er að einhvers konar sálræn úrvinnsla á sér stað þegar okkur dreymir. Í draumsvefninum virðist eiga sér stað einhvers konar hreinsun fyrir hugann . Við Íslendingar erum mjög sér á báti meðal vestrænna þjóða þegar kemur að draumatrú og drauma- ráðningum. Kollegar mínir úti í heimi eru oft hissa þegar ég segi frá því hversu mikið við Íslendingar trú- um á drauma. Mér finnst sú trú mjög falleg.“ n Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is „Það kemur fólki stundum á óvart hversu fljótt árangur næst þar sem margir hafa gefið upp von um betri svefn. Erla Björnsdóttir Meðferðin tekur að meðaltali sex vikur og reynir verulega á. Mynd Sigtryggur Ari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.