Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2017, Blaðsíða 28
28 Páskablað 11. apríl 2017fréttir - erlent
Eins og handrit að
heimsendamynd
n Venesúela á barmi algjörs niðurbrots n Hungur, skortur og óeirðir
V
erðbólga er á bilinu sjö til
átta hundruð prósent og því
er spáð að hún gæti orðið
yfir allt að sautján hundruð
prósent í ár. Sjúkrahús er
lömuð og eiga aðeins um þrjú pró-
sent þeirra lyfja og lækningavara sem
þörf er á. Afleiðingarnar eru dauði
sjúklinga. Um 82 prósent íbúa lifa við
fátækt og börn eru gefin frá foreldr-
um. Næringarskortur og hungur ríkir,
flamingóar og maurætur eru drepnar
til matar. Óeirðir eru á götum, ákvarð-
anir dómstóla eru túlkaðar sem
valdarán og stjórnvöld beita hervaldi
gegn íbúum.
Lýsingin hér að ofan hljómar
vissulega eins og handrit að
heimsendamynd en er engu að síður
sönn lýsing á stöðu mála í Venesúela,
Suður- Ameríku ríkinu sem fyrir fáum
árum var hið fremsta í álfunni í efna-
hagslegu tilliti og velmegun íbúa.
Framtíðin var björt. En svo hrundi
olíuverð.
Olían blessun og bölvun
Að segja að lækkandi olíuverð sé
eina ástæðan fyrir því hörmungar-
ástandi sem nú ríkir í Venesúela er
ofureinföldun, vissulega. Flókið sam-
spil margra þátta er auðvitað ástæð-
an. En olíulindir Venesúela eru þær
stærstu sem þekktar eru í heiminum
og olía stendur undir um 95 prósent-
um af öllum vöruútflutningi lands-
ins. Þegar olíuverð lækkar er augljóst
að það hlýtur að hafa áhrif til hins
verra á efnahaginn. Það hefur gerst
áður, á níunda áratugnum þegar af-
leiðingar olíukreppanna 1973 og 1979
höfðu haft þau áhrif að verulega dró
úr olíueftirspurn í heiminum lækkaði
heimsmarkaðsverð um allt að helm-
ing. Það gerði það að verkum að verð-
bólga jókst hömlulaust í Venesúela og
varð mest 100 prósent árið 1996. Fá-
tækt jókst verulega í landinu en allt
að 66 prósent þjóðarinnar lentu undir
fátæktarmörkum. Erlendar skuldir
ríkisins uxu því langt yfir höfuð og
landsframleiðsla féll á sama stig og
hún hafði verið áratugum áður. Það
er kannski ruddalegt að skrifa það
en segja má að allt sé þetta hjóm eitt
miðað við það sem Venesúela gengur
nú í gegnum.
Byltingar og borgarastríð
Venesúela braust undan nýlendu-
veldi Spánar snemma á nítjándu
öldinni eftir að hafa lotið yfirráðum
Spánverja frá árinu 1522. Þar skipti
þáttur frelsishetjunnar Simóns
Bolívar hvað mestu máli og hefur
honum verið hampað þar í landi
alla tíð síðan, sem og víðar í löndum
Suður-Ameríku. Stjórnmálaástand í
landinu var hins vegar óstöðugt alla
nítjándu öldina og á árunum 1859
til 1863 geisaði blóðugt borgarastríð
í landinu sem olli dauða hundraða
þúsunda. Byltingar voru tíðar og ein-
ræðisherrum var steypt af stóli, að-
eins til að aðrir einræðisherrar tækju
sæti þeirra.
Uppgangstími fram á níunda
áratuginn
Á árum fyrri heimsstyrjaldarinnar
fundust gríðarlegar olíulindir í
Venesúela sem gerðu það að verk-
um að efnahagur landsins tók gríðar-
legan kipp og árið 1935 var hagvöxtur
í Venesúela hinn mesti í allri Suður-
Ameríku. Næstu áratugi flæddu olíu-
peningar inn í landið en á sama tíma
var stjórnmálaástand enn sem fyrr
óstöðugt. Almennt er talað um að
fyrstu lýðræðislegu kosningarnar hafi
farið fram árið 1947 þegar Rómulo
Gallegos var kjörinn forseti en strax
árið eftir var honum steypt af stóli.
Efnahagur Venesúela tók
risastökk um miðjan áttunda ára-
tuginn eftir að olíukreppan skall á
árið 1973. Árið 1976 var olíuiðnað-
urinn þjóðnýttur og útgjöld ríkis-
ins margfölduðust eftir það. Á sama
tíma jókst erlend lántaka verulega
og þegar eftir spurn eftir olíu dróst
saman á sama tíma og framleiðsla
jókst í heiminum á níunda áratugn-
um leiddi það til hörmulegrar stöðu,
svo sem fyrr er rakið. Efnahagskrepp-
an sem þá tók við leiddi til uppþota,
þeirra alvarlegust voru uppþot í höf-
uðborginni Caracaz árið 1989 þar
sem hundruð létu lífið. Árið 1992
voru gerðar tvær misheppnaðar
valdaránstilraunir, önnur þeirra und-
ir stjórn Hugo Chávez, sem á eftir að
koma við sögu hér síðar. Sitjandi for-
seti, Pérez, var settur af sökum spill-
ingar ári síðar og árið 1995 var Hugo
Chávez náðaður á þáverandi forseta,
Rafael Caldera.
Verðbólga og skuldir hið eina
sem ekki skortir
Hugo Chávez var kjörinn forseti árið
1998 og eftir fylgdi það sem hefur ver-
ið nefnt Bolívar-byltingin, þar sem
ný stjórnarskrá var samin, ráðist var
í aðgerðir til að vinna gegn fátækt og
uppbyggingu innviða. Um aldamótin
hækkaði olíuverð verulega og efna-
hagur Venesúela naut góðs af. Hins
vegar er olíuverð óstöðugt og lækkaði
það verulega á árunum 2001 til 2003.
Það olli pólitískum óstöðug leika enn á
ný, fjöldamótmælum og valdaránstil-
raunum og síðar allsherjar verkfalli.
Allt þetta olli enn frekari efnahagserf-
iðleikum. Hugo Chavés stóð óróleik-
ann hins vegar af sér og frá árinu 2004
varð pólitískt ástand, sem og efna-
hagslegt, stöðugra. Verulega dró úr fá-
tækt og misskiptingu auðs með aukn-
um útgjöldum ríkisstjórnar Chavéz til
félagslega kerfisins. Á sama tíma var
hins vegar ekki horft til þess að byggja
upp olíuiðnaðinn, sem allt hvíldi á, né
heldur að byggja upp sjóði eða aðra
innviði sem gætu dregið úr þeim áhrif-
unum sem sveiflur í olíuverði óhjá-
kvæmilega valda.
Síga fór á ógæfuhliðina á ný árið
2010, og enn frekar árin þar á eftir.
Var það lækkandi olíuverð sem
þar átti stærstan þátt. Má segja að
síðan þá hafi allt legið niður á við.
Hugo Chavéz féll frá árið 2013 og
var Nicoláz Maduro kjörinn forseti í
hans stað. Maduro hefur hins vegar
ekki ráðið við nokkurn hlut, og eft-
ir olíverðshrunið árið 2014 er staðan
sú að að skortur er á öllu í landinu,
mat, lyfjum, iðnaðarvörum og pen-
ingum. Hið eina sem ekki er skortur
á er verðbólga og skuldir.
Börn og fullorðnir svelta
Fátt bendir til að breytinga sé að
vænta fyrir íbúa Venesúela á næst-
unni. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
spáir allt að sautján hundruð pró-
senta verðbólgu í ár og áfram-
haldandi efnahagskreppu. Alþjóða-
bankinn lýsti því seint á síðasta ári að
landið væri í gríðarlegri þörf fyrir fjár-
hagslega aðstoð en lánalínur væru
landinu lokaðar. Óeining er í stjórn-
málunum, sífellt vaxandi óánægja
er með störf Maduros forseta sem
hefur þingið á móti sér eftir að and-
stæðingar hans náðu meirihluta þar
í kosningum í desember 2015. Í byrj-
un þessa mánaðar samþykkti Hæsti-
réttur landsins, sem í meginatriðum
er hliðhollur Maduro, tilskipun sem
þýddi að Maduro gæti samþykkt lög
án aðkomu þingsins með tilstilli rétt-
arins. Sú tilskipun var dregin til baka
eftir gríðarleg mótmæli þar sem
ákvörðuninni var líkt við valdarán.
Meira að segja harðir stuðningsmenn
Maduros snerust gegn ákvörðuninni.
Hann er nú sagður svo valtur í sessi
að lítið þurfi til að allt sjóði upp úr.
Hættan á að Maduro beiti hervaldi til
að halda völdum er talin veruleg og
ástandið er eldfimt. Á meðan svelta
börn og fullorðnir. n
Freyr Rögnvaldsson
freyr@dv.is
Átök við lögreglu Mótmælendur berjast við lögreglu á götum Caracas, höfuðborgar
Venesúela, í byrjun aprílmánaðar. Skortur er á öllu í landinu og óeirðir daglegt brauð. Mynd EPA
Upplausnarástand Mótmælendur bera slasaða konu frá átakasvæði á götum Caracas.
Valtur í sessi Nicoláz Maduro, forseti
Venesúela, stjórnar nú landi sem er á barmi
algjörs niðurbrots. Þess er krafist að hann
fari frá en óvinsældir hans aukast dag frá
degi. Mynd EPA