Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2017, Blaðsíða 87
Gott í gogginn 7Páskablað 11. apríl 2017 KYNNINGARBLAÐ
Sælkerapizzur með fyrsta
flokks hráefni úr héraði
„Við spörum ekki áleggið“
Pizzugerð hjá kaffi-sel, á bænum efra-seli skammt frá Flúðum, á sér 20 ára sögu og
fullyrða má að pizzurnar hjá kaffi-
seli hafi sterk sérkenni enda eru þær
orðnar mjög þekktar: „Við byrjuðum
smátt en erum núna með tvo ofna
þannig að við getum bakað hátt í
40 pizzur á klukkustund, þegar mikið
er að gera. Við höfum alltaf lagt
áherslu á að nota hráefni úr héraði,
t.d. af garðyrkjustöðvunum í kring.
kjötafurðir, hakk og beikon og annað,
allt kemur þetta úr héraðinu. Þetta
eru því mjög „local“ pizzur. Við fáum
til dæmis deigið frá sindra bakara á
Flúðum sem nýlega hóf sína starf-
semi hér. síðan er sósan algjört lykil-
atriði, leyniuppskrift sem við höfum
haldið óbreyttri í 20 ár. Við gerum
sósuna alveg frá grunni.“
Þetta segir unnsteinn logi
eggertsson, einn eigenda kaffi-sels.
Hann bætir við að áleggið sé ekki
sparað á pizzurnar, enda eru þær
þekktar sem sælkerapizzur með
ríkulegu og ljúffengu áleggi.
Í sama anda hefur hamborgara-
matseðillinn á kaffi-seli nýlega verið
endurnýjaður. Hamborgararnir eru
orðnir sannkallaðir „gourmet“ sæl-
kerahamborgarar, sem bera örnefni
úr héraðinu og nöfn þekktra persóna
á borð við Fjalla-eyvind (sjá mynd).
enn fremur er boðið upp á nokkr-
ar tegundir af súpum, m.a. með hrá-
efni úr héraði, salöt og fleiri rétti á
matseðlinum. kaffi-sel er fjölskyldu-
fyrirtæki þar sem þrjár kynslóðir
koma að rekstrinum. Hjónin Halldór
guðnason og ástríður g. Daníels-
dóttir stofnuðu staðinn á sínum
tíma, fyrir rúmlega 30 árum. Dóttir
þeirra, Halldóra Halldórsdóttir, er
eiginkona unnsteins, en auk þessara
fjögurra vinna börn unnsteins og
Halldóru mikið á staðnum.
starfsemin í heild samanstendur
af þessum rómaða veitingastað,
18 holu golfvelli og gistiaðstöðu
sem nýlega var sett á laggirnar.
golfklúbburinn Flúðir er rekinn sem
séreining en öll þjónusta við golfara
fer fram á veitingastaðnum. Að
sögn unnsteins er vinsælt hjá fyrir-
tækjahópum að panta golfhring og
grillveislu á veitingastaðnum á eftir.
Þá eru pizzuhlaðborð á kaffi-seli
mjög vinsæl, ekki síst eftir unglinga-
og krakkagolfmót. á hlaðborðinu eru
allar pizzur á matseðli í boði, gestir
borga sig inn á hlaðborðið og fá sér
pizzur eins og þeir geta í sig látið.
kaffi-sel er að efra-seli, í þriggja
kílómetra fjarlægð frá Flúðum.
Veitingastaðurinn er opinn alla daga
frá 11.00–21.30. Nánari upplýsingar,
matseðla, myndir og fleira má skoða
á heimasíðu staðarins, kaffisel.is og
kaffi-sel á Facebook.
Halldóra Halldórsdóttir
pizzumeistari
Sælkerapizzur
frá Kaffi Sel