Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2017, Page 87

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2017, Page 87
Gott í gogginn 7Páskablað 11. apríl 2017 KYNNINGARBLAÐ Sælkerapizzur með fyrsta flokks hráefni úr héraði „Við spörum ekki áleggið“ Pizzugerð hjá kaffi-sel, á bænum efra-seli skammt frá Flúðum, á sér 20 ára sögu og fullyrða má að pizzurnar hjá kaffi- seli hafi sterk sérkenni enda eru þær orðnar mjög þekktar: „Við byrjuðum smátt en erum núna með tvo ofna þannig að við getum bakað hátt í 40 pizzur á klukkustund, þegar mikið er að gera. Við höfum alltaf lagt áherslu á að nota hráefni úr héraði, t.d. af garðyrkjustöðvunum í kring. kjötafurðir, hakk og beikon og annað, allt kemur þetta úr héraðinu. Þetta eru því mjög „local“ pizzur. Við fáum til dæmis deigið frá sindra bakara á Flúðum sem nýlega hóf sína starf- semi hér. síðan er sósan algjört lykil- atriði, leyniuppskrift sem við höfum haldið óbreyttri í 20 ár. Við gerum sósuna alveg frá grunni.“ Þetta segir unnsteinn logi eggertsson, einn eigenda kaffi-sels. Hann bætir við að áleggið sé ekki sparað á pizzurnar, enda eru þær þekktar sem sælkerapizzur með ríkulegu og ljúffengu áleggi. Í sama anda hefur hamborgara- matseðillinn á kaffi-seli nýlega verið endurnýjaður. Hamborgararnir eru orðnir sannkallaðir „gourmet“ sæl- kerahamborgarar, sem bera örnefni úr héraðinu og nöfn þekktra persóna á borð við Fjalla-eyvind (sjá mynd). enn fremur er boðið upp á nokkr- ar tegundir af súpum, m.a. með hrá- efni úr héraði, salöt og fleiri rétti á matseðlinum. kaffi-sel er fjölskyldu- fyrirtæki þar sem þrjár kynslóðir koma að rekstrinum. Hjónin Halldór guðnason og ástríður g. Daníels- dóttir stofnuðu staðinn á sínum tíma, fyrir rúmlega 30 árum. Dóttir þeirra, Halldóra Halldórsdóttir, er eiginkona unnsteins, en auk þessara fjögurra vinna börn unnsteins og Halldóru mikið á staðnum. starfsemin í heild samanstendur af þessum rómaða veitingastað, 18 holu golfvelli og gistiaðstöðu sem nýlega var sett á laggirnar. golfklúbburinn Flúðir er rekinn sem séreining en öll þjónusta við golfara fer fram á veitingastaðnum. Að sögn unnsteins er vinsælt hjá fyrir- tækjahópum að panta golfhring og grillveislu á veitingastaðnum á eftir. Þá eru pizzuhlaðborð á kaffi-seli mjög vinsæl, ekki síst eftir unglinga- og krakkagolfmót. á hlaðborðinu eru allar pizzur á matseðli í boði, gestir borga sig inn á hlaðborðið og fá sér pizzur eins og þeir geta í sig látið. kaffi-sel er að efra-seli, í þriggja kílómetra fjarlægð frá Flúðum. Veitingastaðurinn er opinn alla daga frá 11.00–21.30. Nánari upplýsingar, matseðla, myndir og fleira má skoða á heimasíðu staðarins, kaffisel.is og kaffi-sel á Facebook. Halldóra Halldórsdóttir pizzumeistari Sælkerapizzur frá Kaffi Sel

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.