Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2017, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2017, Side 6
6 Helgarblað 2. júní 2017fréttir Furðulega þingið sem Fullt var aF Frídögum n Frídagar næstum jafnmargir og þingfundardagar n Fara nú í sumarfrí til 12. september Á miðvikudag stóð til að slíta 146. löggjafarþingi þar sem mörg af stórmálum ríkis­ stjórnarinnar voru enn óaf­ greidd. Þingið, sem sett var 6. desember síðastliðinn, hef­ ur verið allt annað en dæmigert, raunar að margra mati stórfurðulegt, vegna þeirra aðstæðna sem sköp­ uðust með snemmbúnum kosning­ um í lok október og síðan stjórnar­ kreppu í kjölfarið sem varði þar til ný stjórn var formlega mynduð 11. jan­ úar 2014. Hefðu þingslit á miðviku­ dag haldið samkvæmt áætlun væru þingmenn nú farnir í 103 daga sum­ arfrí til 12. september næstkomandi. Sumarfríið er ekki bara langt því þrátt fyrir stutt og sérstakt þing þá voru frídagarnir næstum jafnmargir og þingfundardagar þess. DV rýndi í vegleg frí hinna kjörnu fulltrúa og fann meðal annars út að þingmenn og ráðherrar fengu um 137 milljónir króna í laun meðan þeir voru í fríi á liðnu þingi. 34 dagar í jólafrí Gengið var til alþingiskosninga þann 29. október í fyrra sem kunnugt er en 146. löggjafarþingið var ekki sett formlega fyrr en 6. desember, 38 dögum eftir kosningar. Hið nýsetta þing stóð þó ekki lengi því rúm­ lega tveimur vikum síðar var komið jólafrí. Það stóð frá 22. desember til 24. janúar og var því 34 dagar. Í milli­ tíðinni tókst þó loks að binda enda á stjórnarkreppuna í landinu og var ný ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Við­ reisnar og Bjartrar framtíðar form­ lega mynduð á Bessastöðum 11. jan­ úar. 17 daga páskafrí Næsta frí var síðan ekki síður ríf­ legt páskafrí sem stóð frá 7. til 23. apríl eða í 17 daga. Tveir almenn­ ir frídagar voru síðan til viðbótar, verkalýðsdagurinn 1. maí og upp­ stigningardagur 25. maí. Með jólafríinu gera þetta alls 53 frídaga á þeim 176 dögum sem liðu frá þingsetningu 6. desember að áætluðum þinglokum 31. maí. Til samanburðar þá voru 58 þing­ fundardagar á þessu sama tímabili. En eins og þingmenn sem sak­ aðir eru um fjarveru frá þingi eru duglegir að benda á þá felst vissu­ lega meira í starfi þingmanna en að hanga á þingfundum. Á tímabil­ inu eru að sjálfsögðu kjördæma­ og nefndardagar auk reglulegra funda í fastanefndum hjá mörgum þing­ manna. 30% tímans í fríi Eftir stendur hins vegar sú staðreynd að þingmenn og ráðherrar voru í fríi 30 prósent tímans á þinginu á sama tíma og mörg mikilvæg mál þokuð­ ust lítið eða ekkert áfram. Samkvæmt tölfræðiupplýsingum um þingfundi af vef Alþingis þá var meðallengd þingfunda fjórar klukkustundir og 40 mínútur en hefur ekki verið styttri síðan á 136. löggjafarþingi 2008– 2009 þegar meðallengdin var 04:23. Illugi Jökulsson, blaðamaður og samfélagsrýnir, var lítt hrifinn af fyrirhuguðu sumarfríi þingsins á þriðjudag þar sem hann deildi frétt um að þingi yrði slitið næsta dag. „Af hverju er þingið að fara í sumarfrí? Það á eftir að leysa fullt af málum. AF HVERJU HUNSKAST ÞINGMENN EKKI TIL AÐ VERA Í VINNUNNI OG VINNA FYRIR KAUPINU SÍNU?“ Þetta kaup þingmanna hefur svo aldrei verið hærra, eins og flest­ ir muna, síðan í kjölfar úrskurðar kjararáðs um launahækkun til handa kjörnum fulltrúum sem tók gildi 1. nóvember síðastliðinn. Þá voru laun forsætisráðherra hækkuð í rúmar tvær milljónir á mánuði, hinna tíu ráðherranna í rúmlega 1,8 milljón­ ir og þingafararkaup alþingismanna í rúmlega 1,1 milljón króna. Hér til hliðar má svo sjá hversu mikið frí­ dagar hinna kjörnu fulltrúa kostuðu ríkissjóð á nýafstöðnu þingi. Sem fyrr segir tókst ekki að ljúka þingstörfum á tilskildum tíma og boðað til þingfundar fimmtudaginn 1. júní þar sem hart var tekist á um tillögur dómsmálaráðherra um skip­ an dómara við Landsrétt. Þeim um­ ræðum var ekki enn lokið þegar DV fór í prentun. n Forsætisráðherra n Laun: 2.021.825 kr. á mánuði n 67.394 kr. á dag m.v. 30 daga í mánuði. n 53 frídagar = 3.571.882 kr. 10 ráðherrar n Laun hvers og eins: 1.826.273 kr. á mánuði. n 60.875 kr. á dag m.v. 30 daga í mánuði. n 10 ráðherrar = 608.757 kr. á dag. n 53 frídagar = 32.264.121 kr. Alþingismenn n Þingfararkaup alþingismanna: 1.101.194 kr. á mánuði. n 36.706 kr. á dag m.v. 30 daga í mánuði. n 52 þingmenn = 1.908.736 kr. á dag. n 53 frídagar = 101.163.008 kr. Alls laun vegna 53 frídaga: 136.999.011 kr. Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is 137 milljónir í laun fyrir frídagana „Af hverju er þingið að fara í sumarfrí? 29. október 2016 Þingkosningar. 6. desember 2016 146. löggjafarþing sett (38 dögum eftir kosningar). 22. desember 2016 – 24. janúar 2017 Jólafrí (34 dagar). 11. janúar 2017 Ný ríkisstjórn formlega mynduð á Bessastöðum. 7.–23. apríl 2017 páskafrí (17 dagar). 31. maí 2017 Áætluð þingslit. Við átti að taka 103 dagar í sumarfrí.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.