Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2017, Page 29
við sendum keppendur út sem við
höfum trú á.“
Allir dagar eru eins
Þær segja alla daga eins, og dagana
snúast um og raðast í kringum æfingar,
sem oftast eru tvisvar á dag. Tanja Rún
mætir þrisvar í viku á æfingu með
Konna þjálfara. Inga Hrönn er hins
vegar í fjarþjálfun hjá honum og fer
á eigin tíma. „Það hentar mér betur,
frekar en að vera með niðurnegldan
tíma, ég mæti yfirleitt bara klukkan sex
á morgnana, þá er þetta búið og það
venst að vakna á þessum tíma,“ segir
Inga Hrönn.
„Konni sníður pró grammið
í kringum það sem
við erum að leggja
áherslu á hverju sinni, hann
fylgist náið með manni, mælingar og
eftirfylgni einu sinni í mánuði,
svo er hann alltaf hér þannig að
við getum spurt hann ef eitthvað
er. Hann fer einnig stundum út með
okkur á mót og það var frábært að hafa
hann með núna á Evrópumótið,“ segir
Tanja Rún.
„Lífið er rosalega niðurneglt,“
segir Inga Hrönn, sem er farin að sofa
um klukkan tíu öll kvöld. Samhliða
vinnu, heimili og æfingum tók hún
mastersnám í vetur og útskrifaðist í
febrúar. „Ég hélt bara að þessi önn yrði
mín síðasta. Dagarnir byrjuðu klukk-
an sex og voru til miðnættis, þetta var
ótrúlega erfitt og krefjandi, en á sama
tíma mjög skemmtilegt. Þetta er eins
og með sportið sem við erum í, fólk
fer í það til að skora á sjálft sig,“ segir
Inga Hrönn.
„Ég vakna, fer í skólann, í ræktina,
heim að elda fyrir vikuna eða læra,
svo að sofa, svo vakna ég klukkan
fimm og næsti dagur tekur við,“ segir
Tanja Rún. „Það eru allir dagar eins
og ekkert pláss fyrir önnur áhuga-
mál.“
Verður sportið alltaf hluti af
lífsstílnum?
„Á meðan mér líður vel þá held ég
áfram að æfa,“ segir Inga Hrönn.
„Þetta er það skemmtilegasta sem ég
geri,“ segir Tanja Rún, „og ég er til
í að gera þetta bara vel. Svo er þetta
kannski tímabundinn áhugi, en alla-
vega núna er hann gríðarlegur.“
Þær segja sportið hins vegar ekki
fyrir alla og það krefjist fórna. Margir
séu þó áhugasamir og þær fái oft
fyrirspurnir um hvað þær borði, hversu
oft þær æfi og slíkt. „Krökkunum í
skólanum finnst alveg sérstakt þegar
ég tek upp egg í tíma, en margir hafa
áhuga og spyrja mig, bæði í eigin
persónu og á Instagram,“ segir Tanja
Rún. „Það krefst fórna að ná langt í
þessu sporti,“ segir Inga Hrönn, „sem
dæmi má nefna að ég hitti vinkonur
mínar á Eurovision núna í maí og hafði
þá ekki hitt þær síðan í desember, mað-
ur þarf að gefa sig allan í þetta á meðan
tímabilið er,“ segir Inga Hrönn.
„Ég fer ekki út á föstudagskvöldi
með vinkonunum að djamma, af því
ég þarf að vakna snemma til að fara í
morgunbrennslu,“ segir Tanja Rún.
„Sumir fara og fá sér bjór, við
förum á æfingu.“
„Þetta eru aðrar áhersl-
ur,“ segir Inga Hrönn.
EvrópumEistaramótið Er annað af
tvEimur stErkustu áhugamannamót-
um í fitnEss og vaxtarrækt í hEim-
inum í dag mEð um 1.500 kEppEndur
frá 44 þjóðlöndum. mótið Er haldið í
santa susanna á spáni.
ung og upp-
rEnnandi Tanja
Rún stillir sér upp
fyrir myndatöku á
Evrópumótinu. Hún
á bjarta framtíð
fyrir sér í
sportinu.
nýbyrjuð
í sportinu
Tanja Rún hefur
æft og keppt
í innan við ár.
Mynd MuMMi Lú
fyrsta sæti
hEima og úti
Inga Hrönn hefur
unnið til fyrstu
verðlauna bæði
hér heima og í
Noregi. Mynd MuMMi Lú
í fanta-
formi
Inga
Hrönn á
Evrópumótinu á
Spáni, hún er í fanta-
formi og ákveður nú
á hvaða móti hún
ætlar að keppa
næst.