Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2017, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2017, Page 36
Nýlega opnaði Einar Falur Ingólfsson sýninguna „Land- sýn – Í fótspor Johannesar Larsen“ í aðalsal Hafnar- borgar. Sýningin samanstendur af ljósmyndum Einars og teikningum Johannesar Larsen. Meginstef sýningarinnar er tíminn sjálfur, tími landsins og mannanna. Ljósmyndir Einars fjalla fyrst og fremst um sam­ tímann þó að samtímis kallist þær á við tíma Íslendingasagna og tíma Larsen á Íslandi. Ljósmyndaverk Einars geta vissulega staðið stök og sjálfstæð en undirstaða sýningarinnar er þó samtal Einars við teikningar Larsen. Margir góðir gestir mættu við opn­ un sýningarinnar, en hún stendur yfir til 20. ágúst. Góðir Gestir Ættingjar og vinir mættu og fögnuðu opnun með Einari. Gunnlaug, tengdamóðir Einars Fals, mætti með falleg sumarblóm. Landsýn í fótsporum Jóhannesar Einar Falur Ingólfsson opnar sýningu í Hafnarborg tenGda- mamma leit við Gunnlaug Eggertsdóttir, tengdamóðir Einars Fals, og Salvör Nordal, framkvæmdastjóri Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands. ljósmyndarakvartett Ljósmyndararnir Spessi Hall- björnsson, Ívar Brynjólfsson, Guðmundur Ingólfsson og Bragi Þór Jósepsson. ÁhuGasöm um menninGu Hrefna Haraldsdótt- ir framkvæmdastjóri Miðstöðvar ís- lenskra bókmennta, og ljósmyndarinn sjálfur, Einar Falur. menninGarþrenna Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður og myndlistarmennirnir Helgi Þorgils Friðjóns son og Steingrímur Eyfjörð. menninGarmæðGur Listakonan Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir og dóttir hennar, Andrea Magdalena Jónsdóttir, voru ánægðar með sýninguna. saman í listum Eiginkonan Ingibjörg Jóhannsdóttir, skólastjóri Landakotsskóla og myndlistarkona, var ánægð með sýninguna. Þau hjónin eru bæði listræn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.