Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2017, Síða 46
26 sakamál Helgarblað 2. júní 2017
Afbrýðisemi dAuðAns
n Stutt ástarævintýr á Krít árið 2006 olli harmleik tveimur árum síðar
M
ál þýsku konunnar
Christine Schürrer bar
hátt í Svíþjóð árið 2008.
Christina fæddist í
Hannover árið 1976 og
segir ekki mikið af æsku hennar. Þó
er vitað að faðir hennar sagði skil
ið við fjölskylduna fyrir fullt og allt
þegar Christine var ellefu ára.
Christine fór í skiptinám til
Bandaríkjanna og bjó þá hjá ætt
ingjum á Manhattan. Þegar hún
sneri heim til Þýskalands settist
hún að í Göttingen og lagði stund
á nám í sögu í sex ár. Um eins árs
skeið dvaldi hún í Grikklandi, flutti
síðan heim á ný en fór síðan, árið
2006, aftur til Grikklands, Krítar
nánar tiltekið. Á Krít hitti Christine
Svía nokkurn, Torgny Hellgren,
og áttu þau rómantískt samband,
samband sem rann sitt skeið en
varð kveikjan að voðaverkum í Sví
þjóð árið 2008.
Þriðja sjálfsvígstilraunin
Sumarið 2007 kom Christine til
Svíþjóðar og bjó fyrst um sinn
í Södermalm, í miðborg Stokk
hólms, en fluttist síðar í úthverfið
Skarpnäck.
Á þessum tíma reyndi Christine
að fyrirfara sér í þriðja skipti. Fyrri
tvö skiptin áttu sér stað eftir að upp
úr slitnaði hjá henni og Torgny, en
Christine mun hafa fundist hún illa
svikin, þrátt fyrir að um hefði verið
að ræða aðeins tveggja vikna ástar
ævintýri.
Þessi þriðja sjálfsvígstilraun
tókst ekki frekar en hinar tvær fyrri
og á sjúkrahúsi var gert að smá
vægilegum skurðum á handleggj
um hennar og hún síðan útskrifuð.
En þess var skammt að bíða að
drægi til tíðinda.
Sjúklega afbrýðisöm
Í smáborginni Arboga í Västman
land í MiðSvíþjóð bjó Emma
Jangestig, 23 ára, tveggja barna
móðir, ásamt sambýlismanni sín
um og stjúpföður barnanna, áður
nefndum Torgny Hellgren.
Vitað er að Christine hafði
gert sér ferð til Arboga í tvígang,
12. og 14. mars 2008, sennilega í
könnunarskyni. Hún kom í þriðja
skipti til Arboga síðdegis 17. mars,
fór heim til Emmu og bankaði upp
á. Grunlaus opnaði Emma dyrnar
og án frekari kynningar ruddist
Christine inn í húsið. Síðan lét
hún hamar vaða í höfuð Emmu,
fimmtán sinnum alls.
Að því loknu sneri Christine sér
að börnum Emmu, Max, þriggja
ára, og Sögu, eins árs, og veitti þeim
banvæna höfuðáverka. Ástæða
ódæðisins var talin sjúkleg af
brýðisemi í garð Emmu vegna sam
bands hennar og Torgny.
Fór til Þýskalands
Emma lifði árásina af, en var ekki til
frásagnar, enda í dái. En lögreglan
var snögg til og handtók Nicklas
Jangestig, föður barnanna, en hon
um var sleppt daginn eftir þegar
ljóst var að hann hafði hvergi kom
ið nærri. Christine Schürrer hafði
hins vegar yfirgefið Svíþjóð og farið
til Þýskalands strax daginn eftir, 18.
mars. Hún var handtekin í Þýska
landi 22. mars, en sleppt samdægurs
vegna skorts á sönnunargögnum.
Christine handtekin
Þýska lögreglan sendi lífsýni úr
Christine til kollega sinna í Svíþjóð,
þann 24. mars.
Þá var Emma að koma til
sjálfrar sín og gat gefið lýsingu á
árásarmanninum sem smellpass
aði við Christine. Upptökur úr
eftirlitsmyndavélum sýndu að
Christine hafði verið í Arboga þegar
börn Emmu voru myrt og rekja
mátti skófar á vettvangi til hennar.
Þýska lögreglan handtók Christine
30. mars og hún var síðar send til
Svíþjóðar þar sem réttað var yfir
henni.
Árangurslaus áfrýjun
Undir lok ágúst 2008 var Christine
sakfelld fyrir morðin á börnunum
og morðtilraun gagnvart móður
þeirra. Christine undirgekkst geð
mat en var svo ósamvinnuþýð að
ekki reyndist unnt að komast að
niðurstöðu varðandi geðheilbrigði
hennar.
Þann 14. október, 2008, fékk
hún lífstíðardóm sem hún áfrýjaði
síðar. Áfrýjunin breytti engu og
fyrri dómurinn var staðfestur 16.
febrúar 2012. Christine var flutt
til Þýskalands í mars 2012 og mun
ljúka afplánun sinni í kvennafang
elsinu í Vechta í NeðraSaxlandi. n
Christine Schürrer
Hugsaði sambýliskonu
fyrrverandi ástmanns síns
þegjandi þörfina.
„Síðan lét
hún hamar
vaða í höfuð
Emmu, fimmtán
sinnum alls.