Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2017, Page 56
36 menning Helgarblað 2. júní 2017
Samtal
þrennra
tíma
Ljósmyndarinn Einar Falur fetar í fótspor hins danska Johannesar Larsen
L
andsýn – Í fótspor Johannesar
Larsen er yfirskrift sýningar
Einars Fals Ingólfssonar ljós-
myndara í Hafnarborg. Sýn-
ingin stendur til 20. ágúst.
„Á sýningunni eru annars vegar
ljósmyndir sem ég hef tekið síð-
ustu þrjú árin í stóru samstarfsverk-
efni við danskan listamann sem hét
Johannes Larsen, sem fæddist 1867
og dó 1961. Hann var einn þekkt-
asti og vinsælasti listamaður Dana á
sínum tíma, gríðarlega vinsæll fyrir
landslagsmálverk og ekki síst mál-
verk og myndir af fuglum, kallaður
Fuglamálarinn,“ segir Einar Falur
sem segir frekari deili á Larsen.
„Árið 1927 var Larsen fenginn til
þess af þeim meisturum, Nóbels-
verðlaunaskáldinu Johannes V.
Jensen og Gunnari Gunnarssyni, að
halda til Íslands til að teikna mynd-
ir fyrir nýja útgáfu Gyldendal af Ís-
lendingasögunum sem átti að koma
út í stóru broti. Hann féllst á að taka
þetta að sér, var að verða sextugur, og
hafði aldrei lesið Íslendingasögurn-
ar. Hann las þær á leiðinni og ætlaði
á einu sumri að teikna myndir í þessi
þrjú bindi. Það reyndist mun meira
verk en hann hafði grunað. Bæði
var Ísland erfitt yfirferðar árið 1927
og þetta var mikil nákvæmnisvinna.
Hann byrjaði að teikna og fór Suður-
og Vesturland með aðstoðarmanni
sínum. Tíu vikum seinna, þegar hann
kom til Stykkishólms, biðu hans þær
fréttir að kona hans lægi fyrir dauð-
anum. Þá sneri hann heim en hún
dó meðan hann var á leiðinni. Þau
voru mjög náin og hann treysti sér
ekki til að halda verkinu áfram strax,
en kom aftur til Íslands þremur árum
seinna. Árið 1930 var hann á landinu
í tólf vikur, ferðaðist um söguslóðir
Íslendingasagna og endaði við Mý-
vatn, þar sem hann sá nóg af fuglum,
1. september 1930. Hann skapaði
308 ótrúlega fínar teikningar og tveir
þriðju þeirra enduðu í frábærlega fal-
legri útgáfu af Íslendingasögunum
sem Gyldendal gaf út 1930–32.“
Ferðaðist með Íslendinga-
sögurnar
Einar Falur ákvað að feta í fótspor
Larsen og ljósmynda á stöðunum
þar sem hann hafði teiknað. Þetta er
ekki í fyrsta sinn sem hann fetar slóð-
ir látins listamanns. „Fyrir nokkrum
árum eyddi ég fjórum árum í ljós-
myndaverkefni sem ég vann upp úr
vatnslitamyndum sem breski mynd-
listarmaðurinn W.G. Collingwood
málaði á slóðum Íslendingasagna
árið 1897. Úr því verkefni varð stór
sýning í Þjóðminjasafninu sem
flakkaði síðan til ýmissa staða innan-
lands og utan og gefin var út bók um
það verkefni. Ég ætlaði aldrei að gera
neitt þessu líkt aftur. Þetta var svo
erfið vinna. Samt endaði það á því
að ég fór að skoða Larsen og fylltist
forvitni og fannst ég verða að skoða
hann betur. Sú vinna tók þrjú ár.
Ég undirbjó mig vandlega, las
mér til um staðina og var búinn að
lesa þær sögur sem gerast á hverjum
stað, hvort sem það var Víga-Glúms
saga eða Egils saga. Ég var líka búinn
að lesa dagbækur Larsen og vissi
hvað hann hefði upplifað á þessum
slóðum.
Í fyrra var ég á ferðinni í tólf vikur,
sömu tólf vikur og Larsen árið 1930,
og fór á staðina þar sem hann hafði
unnið að sínum nákvæmu teikning-
um. Ég var með stóra spýtumynda-
vél þar sem maður er með dúkinn
yfir hausinn þegar maður myndar.
Þetta er gamla aðferðin sem gefur
ótrúlega skarpa mynd í gríðarlega
mikilli upplausn. Ég tók ljósmyndir
af þeim stöðum sem Larsen hafði
teiknað, stundum sömu sjónarhorn
og hjá honum, en líka mín eigin. Ég
ferðaðist með Íslendingasögurnar,
bæði danska og íslenska útgáfu, og
las á þessum stöðum, lá í tjaldi eða
svaf í bílnum. Mér fannst alltaf eins
og Larsen væri með mér, drekkandi
sinn snaps, reykjandi sína pípu og
með Íslendingasögurnar.“
„Mér fannst alltaf
eins og Larsen
væri með mér, drekkandi
sinn snaps, reykjandi sína
pípu og með Íslendinga-
sögurnar.
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is