Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2017, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2017, Page 4
4 Helgarblað 23. júní 2017fréttir Þ að var sárt að sjá íbúðina auglýsta til sölu. Tjón mitt hljóp á milljónum og ég vil því vara aðra við. Ég myndi ekki óska versta óvini mínum að lenda í þessu,“ segir Eva Björk Pétursdóttir í samtali við DV. Hún keypti íbúð á Akranesi árið 2014 sem reyndist síðar óíbúðarhæf vegna myglu og sat uppi með um- talsvert fjárhagstjón. Íbúðalána- sjóður tók íbúðina yfir og auglýsir hana nú til sölu. Ekki er minnst einu orði á myglu í auglýsingunni en væntanlegum kaupanda er ráðlagt að kynna sér skýrslu sem Heilbrigðiseftirlit Vesturlands vann um ástand íbúðarinnar. „Það er talað um smá rakaskemmdir en ekki tekið fram hversu alvarlegt ástandið er. Ég er með mun ítar- legri skýrslu frá viðurkenndu fyrir- tæki,“ segir Eva Björk. „Hann vildi bara klára söluna og fá sína þóknun“ Eva Björk keypti íbúðina við Heiðarbraut árið 2014 og flutti inn um sumarið sama ár. „Ég skoðaði íbúðina einu sinni en var ekkert að færa til húsgögn eða neitt slíkt. Fasteignasali og seljandi stað- festu að enginn raki væri til staðar þegar ég spurði út í það. Þá fékk ég þær upplýsingar að sýnilegir blettir væru þurr- ir og af þessu þyrfti engar áhyggjur að hafa. Fast- eignasalar eiga að gæta hagsmuna bæði kaupenda og seljenda en það var ekki svo í þessu tilviki. Hann vildi bara klára söluna og fá sína þóknun,“ segir hún. Kaupin gengu í gegn þannig að Eva Björk tók yfir áhvílandi skuld- ir frá Íbúðalánasjóði og því gat hún ekki haldið eftir greiðslum eins og þekkist þegar um leyndan galla er að ræða. Þegar hún loks fékk íbúðina af- henta þá brá henni illa í brún. Þar sem áður höfðu staðið húsgögn blöstu við rakaskemmdir og á sumum stöðum hrikaleg mygla. „ Rakaskemmdirnar voru fald- ar vísvitandi,“ segir Eva Björk sem hafði enga reynslu af því að glíma við myglusvepp og freist- aði þess að gera íbúðina upp. „Ég eyddi háum fjárhæðum í skoðanir, mælingar og mat. Pabbi minn og ég lögðum mikið á okkur til þess að gera heimilið huggulegt en ástandið var verra en við áttuðum okkur á. Ég gat ekki boðið dóttur minni upp á þessar aðstæður enda var hún farin að glíma við óþægindi í öndunarfærum og út- brot á líkama,“ segir Eva Björk en hún flutti út árið 2015. Vonar að reynsla hennar verði lærdómur fyrir aðra Eva Björk ráðfærði sig við lög- fræðinga til þess að fá kaupunum rift en það reyndist ógjörningur. „Seljendurnir höfnuðu öllum kröfum um að salan gengi til baka og neituðu alfarið að ræða málið. Tilboð mitt hljóðaði upp á að þau tækju aftur við íbúðinni og lánun- um og ég tæki á mig kostnaðinn við endurbætur og skoðanir. Það taldi ég vel boðið en það gekk ekki upp af fyrrgreindum ástæðum,“ segir Eva Björk. Hún hafi verið í erfiðri stöðu og því tekið ákvörðun um að hætta að borga af lánunum. „Ég gat ekki lengur greitt af íbúð sem ég gat ekki búið í. Þá þurfti ég að skilja all- ar eignir okkar eftir, allt var ónýtt. Þetta var mikið tjón fyrir mig,“ segir Eva Björk. Hún passaði sig á að greiða opinber gjöld en sleppti af- borgunum af láninu og að lokum tók Íbúðalánasjóður íbúðina yfir. „Ég er brennd eftir þessa reynslu, en ég get lítið gert úr því sem komið er. Hins vegar getur reynsla mín vonandi orðið til þess að aðrir sleppi við slíkt tjón,“ segir Eva Björk. n Eldbakaðar pizzur hafnargata 36a, kEflavík / nálægt flugstöðinni salur fyrir hópa sími 557 1007 hamborgarar, salöt, pasta, kjúklingavængir og flEira „Gat ekki boðið dóttur minni upp á þessar aðstæður“ n Flúði myglaða íbúð á Akranesi n Íbúðalánasjóður freistar þess að selja eignina Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Földu gallana Eva Björk segir að fasteignasal i og seljandi hafi gert lítið úr blettum sem voru sýnilegir. Óíbúðarhæf Dóttir Ev u Bjarkar var farin að glíma við ýms a kvilla út af myglunni. Heiðarbraut Umrædd íbúð er í kjallara hússins. Íbúðalánasjóður auglýsir nú íbúðina til sölu. Mygla Eva Björk eyddi háum fjárhæðum í að meta ástandið og freista þess að gera endurbætur á húsinu. H ún neyddist til að gefast upp þegar bera fór á heilsukvil lum hjá dóttur hennar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.