Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2017, Side 11
Helgarblað 23. júní 2017 fréttir 11
Er Costco-
bensínið
betra?
Olíufélögin svara fyrir þrálátan
orðróm þess efnis að Costco-
bensín dugi betur
Eggert, forstjóri N1
„Þessi orðrómur er ekki annað er
orðrómur. Costco-bensínið dugar ekki
betur. N1 hefur í fjölda ára notað bæti-
efni bæði í bensín og dísil sem minnkar
útblástur og dregur úr eyðslu. N1 selur
eingöngu bensín sem stenst nýjustu
kröfur um umhverfisvernd og jafnframt
þær kröfur sem samtök framleiðenda
bensínvéla gera. Prófanir helstu
bílaframleiðenda heims sýna að þessi
nýju bætiefni skila betri árangri fyrir all-
ar tegundir bensínvéla. Betra bensín N1
helst í hendur við tækniþróun véla sem
gerir nýjar kröfur til betra eldsneytis.“
Jón Ólafur, forstjóri Olís
„Við höfum orðið vör við orðróm þess
efnis að Costco-bensín dugi betur en
annað bensín. Þetta er algjörlega út í
hött að mínu mati enda hefur ekkert
komið fram sem styður þetta. Við kaup-
um okkar eldsneyti eftir viðurkenndum
og samþykktum stöðlum sem segja til
um gæði eldsneytisins. Í eldsneyti í dag
er blandað etanóli enda kveða lög á
um að ákveðið hlutfall eldsneytis skuli
blandað með endurnýjanlegu eldsneyti
og skal að lágmarki vera 5 prósent af
seldu eldsneyti. Okkur er ekki kunnugt
um eiginleika bætiefnisins hjá Costco,
en ég tel algjörlega útilokað að það auki
orkuinnihald eldsneytis með þeim hætti
að það endist lengur en annað eldsneyti
sem er til sölu hér á markaði.
Það hefur einnig komið fram að
eldsneytið sem Costco selur er keypt
af Skeljungi sem kaupir sitt eldsneyti
af sama birgja og Olís sem er Statoil í
Noregi. Því finnst mér þessar skýringar
bæði langsóttar og ótrúverðugar.“
Valgeir, forstjóri Skeljungs
„Eldsneytið sem selt er á á stöðvum
Skeljungs, Orkunnar og Orkunnar X er
sama eldsneyti og er selt hjá Costco.
Íblöndunarefni er ekki til þynningar
heldur til að bæta eiginleika eldsneytis.“
Guðrún Ragna, fram-
kvæmdastjóri Atlantsolíu
„Atlantsolía blandar ekki etanóli í bens-
ín en við blöndum vetnismeðhöndlaðri
lífdísilolíu, öðru nafni VLO, í dísilolíuna.
VLO bætir gæði olíunnar sem skilar betri
og skilvirkari bruna ásamt því að auka
kuldaþol hennar. Einnig dregur VLO úr
losun gróðurhúsalofttegunda og gerir
dísilolíuna því mun umhverfisvænni.“
„CostCo-bensínið dugar ekki betur“
n Íslensku olíufélögin óttast ekki samkeppnina n Bíða þess að mesta sveiflan gangi yfir n Veislan búin, segir formaður Neytendasamtakanna
Ólafur Arnarson, formaður Neytendasamtakanna
„Veislan á kostnað neytenda er búin“
„Íslenskir neytendur eru vaknaðir.
Það er engin spurning,“ segir Ólafur
Arnarson, formaður Neytendasam-
takanna. Hann telur að áhrif Costco á
Íslandi séu rétt að byrja. Íslendingar
hafi of lengi sætt sig við fákeppni og
séu nú að vakna til meðvitundar. „Við
sjáum að arðsemi bæði smásölu-
verslana og olíufélaganna hefur verið
slík, í þessu fámenna landi, að þetta
er fákeppnisgróði sem þarna hefur
orðið til. Sú veisla, sem hefur verið á
kostnað neytenda, er búin.“
Ólafur fagnar jafnframt nýjustu
hræringunum á íslenska smásölu- og
eldsneytismarkaðinum – að Hagar
hafi keypt allt hlutafé í Olís, Skelj-
ungur sameinast Iceland og 10-11
og N1 búið að kaupa Festi hf. „Það
er þó ekki nóg að olíufélag kaupi
smásölufyrirtæki og öfugt. Þau þurfa
að bjóða neytendum lægra verð og
minni álagningu.“ Þá þykir Ólafi það
einstaklega ánægjulegt að Costco
virðist ætla að láta Íslendinga njóta
góðs af heimsmarkaðsverði á olíu
sem og stöðu krónunnar.
„Á meðan munurinn á eldsneytis-
verðinu er svona mikill er vel skiljan-
legt að fólk leggi á sig ferðalag í Garða-
bæinn til að taka bensín. Núna er um
það bil 30 krónu munur á lítranum á
milli Costco og þjónustustöðvanna.
Ef þú ætlar til dæmis að setja 40 lítra
á bílinn þá sparar þú 1.200 krónur á
hverri áfyllingu. Það fljótt að telja. Ég
tala nú ekki um þegar þú getur svo
farið í Costco og keypt rúðuþurrkur,
smurolíu, rafgeyma og dekk á miklu
lægra verði verið hefur.“
Ólafi þykir sömuleiðis líklegt að í
náinni framtíð muni íslensku olíufélög-
in minnka sína yfirbyggingu. „Þessar
steinsteypuhallir, þar sem er allt á milli
himins og jarðar er selt á uppsprengdu
verði, eru úreltar. Neytendur vilja ein-
faldari umgjörð og lægra verð. Hann
segir það heldur ekki skrítið að um
þessar mundir séu forstjórar olíufélag-
anna mikið í að tala upp sín fyrirtæki.
„Þetta er eðlilegt. Svo kemur að því að
þau bregðast við. Þau geta ekki annað.“Guðrún Ragna Garðarsdóttir, framkvæmdastjóri Atlantsolíu
„Of snemmt að
segja til um áhrifin“
„Já, við finnum fyrir komu þeirra
en teljum enn of snemmt að segja
til um hver áhrifin verða,“ segir
Guðrún Ragna Garðarsdóttir,
framkvæmdastjóri Atlantsolíu,
um innkomu Costco á íslenska
eldsneytismarkaðinn. Guðrún
segir starfsfólk Atlantsolíu ætla að
halda sínu striki. Hingað til hefur
fyrirtækið mælst með um 10 pró-
senta markaðshlutdeild á íslenska
olíumarkaðinum.
„Atlantsolía hefur alltaf boð-
ið upp á afsláttarkjör sem aukast
eftir því sem þú notar meira. Þá
erum við með 19 stöðvar um allt
land, sem eru opnar allan sólar-
hringinn, og ánægðustu viðskipta-
vinina samkvæmt íslensku Ánægjuvoginni 2017.
Við erum mjög stolt af okkar vinnu og árangrinum. En það má alltaf
gera betur.“
Guðrún segir ósköp eðlilegt að fólk leitist við að finna besta elds-
neytisverðið en í þeim samanburði má ekki gleyma að taka tillit til
þeirra afsláttarkjara sem í boði eru. „Það verður líka að taka í jöfnuna
hvort það borgar sig að keyra langt eftir nokkurra króna mun. Bæði fjár-
hags- og tímalega séð.“
Þá fagnar Guðrún því að neytendur hafi fengið fleiri valkosti. „Ólíkt
Costco og hinum olíufélögunum þá erum við ekki að selja aðra vöru.
Við erum ekki að lokka fólk til að „kíkja við í búðinni“ eða nýta sér aðra
þjónustu. Við reynum heldur að gera eldsneytiskaupin sem einföldust
og fljótlegust. Fólk getur fengið kvittanir í tölupósti og einnig fengið yf-
irlit yfir öll sín viðskipti á svokölluðum „Mínum síðum“. Þá skiptir okkur
líka miklu máli að stöðvarnar falli sem best að umhverfinu.“
Eggert Þór Kristófersson, forstjóri N1
„Bauhaus seldi meira en Byko og
Húsasmiðjan fyrstu 30 dagana“
„Við erum ekki í samkeppni við Costco og mun-
um aldrei vera það. Þeir eru með eina bensín-
stöð í Garðabæ á meðan við erum með yfir 100
stöðvar um allt land, sem eru opnar allan sólar-
hringinn.“ Þetta segir Eggert Þór, forstjóri N1,
sem viðurkennir þó að þeir geti lært heilmikið af
Costco þar sem þar á bæ séu frábærir „markaðs-
snillingar“ sem hafa nýtt sér fjölmiðla til að fá
ókeypis umfjöllun.
Þá eru yfirvofandi breytingar hjá N1 sem festi
nýlega kaup á Festi hf. Undir þeirri samsteypu
eru verslanir og fyrirtæki á borð við Krónuna,
Nóatún, Kjarval, Elko, vöruhótelið Bakka og
fasteignasafn Smáragarðs. Eggert segir þó ekki
tímabært að segja til um hvernig breytingar séu
í farvatninu þar sem ferlið sé að rétt að byrja.
Enn á eftir á að klára kaupsamning, fá samþykki
hluthafafundar og síðan á samkeppniseftirlitið
eftir að gefa grænt ljós á kaupin.
Eggert kveðst alls ekki hafa miklar áhyggjur
af innkomu Costco á íslenskan eldsneytismark-
að. Sérstaklega í ljósi þess sem sagan hefur
kennt okkur þegar nýjungar eru kynntar til leiks
á Íslandi.
„Bauhaus seldi meira en Byko og Húsasmiðj-
an fyrstu 30 dagana. Ég veit ekki alveg hvort það
sé enn þannig. Það var líka biðröð á Dunkin'
Donuts fyrstu tvær vikurnar. Íslenska brjálæðið
á til að vera mjög hresst og skemmtilegt. Við tök-
um hlutina með trompi. Það er ekkert að því.“
Þá segir Eggert: „Ég veit alveg hvað kostar
að kaupa bensín til Íslands og selja það ef taka
á tillit til alls kostnaðar og fjárfestinga sem eru
talsverðar. Ef N1 myndi selja bensín á sama
verði og Costco þá myndi ég tapa á því. Og af
því að N1 er markaðsráðandi aðili á olíumark-
aðinum þá væri það lögbrot og við hjá N1
erum með skýra sýn á að fylgja eftir öllum lög-
um og reglum. Ólíkt okkur, þar sem bensín og
olía eru okkar helsta söluvara, þá nota Costco-
menn eldsneytið til að lokka fólk í verslunina
sína. Þess vegna niðurgreiða þeir bensínið og
það er greinilega markaðskostnaður hjá þeim,
sem er fín strategía hjá þeim en gengur ekki
upp fyrir N1.“
Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri Olís
Gætu þurft að
endurmeta stöðuna
„Costco fær sína frumsýningu. Svo sjáum
við hvernig þeim verður tekið í íslensku
smásölumengi.“ Þetta segir Jón Ólafur
Halldórsson, forstjóri Olís, um nýjasta
keppinautinn á íslenskum olíumarkaði.
Hann segir Olís þó ekki vera í beinni
samkeppni við Costco.
„Við ætlum að halda áfram að gera
það sem okkur finnst við hafa gert vel.
Okkar fyrstu viðbrögð eru einfaldlega
að bíða eftir því að mesta sveiflan gangi
yfir. Costco hefur auðvitað fengið gríðar-
lega umfjöllun í fjölmiðlum. Því er ekkert
skrítið að fólk sé að tapa sér. Væntingarn-
ar voru svo miklar.“
Jón bendir á að Olís sé með allt annað viðskiptamódel en Costco. Til dæmis
kappkosti starfsmenn hjá Olís að þjónusta bílinn og bíleigandann. „Við bjóð-
um upp á þjónustu inni í hverfunum og úti á landi. Við erum í nærþjónustu við
okkar viðskiptavini nánast hvar sem er.“
Hann segir þjónustu sem þessa sannarlega kosta sitt. „Hingað til hefur
þjónustustigið verið eins um allt land. Nú verðum við hins vegar að bíða og
sjá hvort það sé enn eftirspurn eftir þessu þjónustustigi. Ef það er ekki þá
þurfum við mögulega að endurmeta stöðuna og ákveða upp á nýtt hversu
langt við ætlum að að ganga í því að þjónusta viðskiptavini okkar á kostnað
lægra verðs.“
Líkt og fram hefur komið festu Hagar kaup á öllu hlutafé í Olís í lok apríl.
Áður hefur komið fram að markmið kaupanna sé að bæta þjónustu við við-
skiptavini Haga sem jafnframt hafa fest kaup á Lyfju. Jón Ólafur gerir ráð
fyrir að Olís sameinist Högum eftir að samkeppniseftirlitið hefur skoðað og
lagt blessun sína yfir kaupin. Hann telur of snemmt að segja til um hvort eða
hvernig breytingar verða gerðar á rekstrinum eftir sameininguna. „Það hefur
ekkert verið ákveðið í þeim efnum.“