Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2017, Qupperneq 14
14 Helgarblað 23. júní 2017fréttir
H
jalti Úrsus Árnason segir
alvarlegar brotalamir á
rannsókn á meintri morð-
tilraun sonar síns, Árna
Gils. Hann hefur verið í gæslu-
varðhaldi í nærri fjóra mánuði og
er ákærður fyrir morðtilraun.
Hjalti segir algjörlega ljóst að
Árni Gils hafi verið verja sig. Hann
segir að vissulega hafi sonur sinn
ekki verið neinn engill undanfar-
in misseri en það þýði þó ekki að
hann sé sekur um morðtilraun.
Sagður hafa stungið manninn í
hausinn
Samkvæmt ákæru gegn Árna
Gils er honum gefið að sök að
hafa reynt að myrða karlmann á
þrítugs aldri aðfaranótt sunnu-
dagsins 5. mars á bílastæði við
söluturninn Leifasjoppu við Iðu-
fell í Reykjavík. Samkvæmt ákæru
á Árni Gils að hafa stungið mann-
inn í höfuðið vinstra megin fyrir
ofan eyra með hníf. Í ákæru segir
að afleiðingar þessa hafi verið að
maðurinn hlaut skurð á höfði og
slagæðarblæðingu úr höfuðleðri
og náði áverkinn í gegnum fulla
þykkt höfuðkúpunnar.
Fengu tilkynningu um
berserksgang
Í gæsluvarðhaldsúrskurði yfir
Árna þann 11. maí síðastliðinn
segir að hann sé grunaður um brot
sem varði fangelsi eigi skemur en
fimm ár eða ævilangt. Í gæsluvarð-
haldsúrskurði sem féll þann sama
dag og atvikið átti sér stað kemur
fram að lögregla hafi verið kölluð
á vettvang við Leifasjoppu þar sem
þar gengi ónefndur aðili berserks-
gang og hefði meðal annars spark-
að í bíl sem þar væri.
Þegar lögregla kom á vettvang
var Árni þar einn á vettvangi og
kannaðist ekki við að vera sá sem
hafði sparkað í bílinn. Hann sagð-
ist vera með bílinn í láni af vin-
konu sinni. Hann sagði lögreglu
að maður hefði komið og ráðist á
hann en væri farinn. Í greinargerð
lögreglu segir að Árni hafi ver-
ið greinilega verið undir áhrifum
áfengis eða fíkniefna.
Á þessum tíma gefur umrædd
vinkona sig fram við lögreglu
og segir að Árni hafi stungið vin
hennar í höfuðið með hníf. Sá hafi
verið að aðstoða hana við að ná
bíl sínum frá Árna, sem að hennar
sögn hafi tekið hann í leyfisleysi.
Hún fullyrti að Árni hefði komið
með hnífinn. Konan sagði lögreglu
að maðurinn hefði farið í burtu og
verið keyrður á slysadeild.
Ólíkar frásagnir
Í gæsluvarðhaldsúrskurði hljóðar
frásögn mannsins svo: „Á slysa-
deild hafi verið rætt stuttlega við
A og fái frásögn hans samræmst
framburði eiganda bifreiðarinn-
ar. Kvaðst hann hafa verið beðinn
um að koma með bifreiðar-
eigandanum að Leifasjoppu til að
hitta Árna sem hafi verið með bíl
þess fyrrnefnda í leyfisleysi. Hafi
X komið en neitað að afhenda
eigandanum lykla bifreiðarinnar.
Kvaðst A hafa verið rólegur en
Árni hafi hins vegar verið mjög
æstur og hafi ekki virst vita hvað
hann var að segja. Árni hafi svo ætt
út úr bílnum, ráðist á sig og sleg-
ið hann í vinstra gagnaugað. Árni
sem væri mikið hærri en hann,
hafi látið sig svo falla ofan á sig
þannig að hann hafi lenti á bakinu
eða bakhliðinni á jörðinni. Hann
hafi náð að losa sig og staðið upp,
hafi snúist í hringi og séð að Árni
hafi haldið á hníf sem hann hafi
stungið sig í höfuðið með. Í fram-
haldi hafi byrjað að spýtast blóð úr
höfðinu á sér.“
Árni var yfirheyrður strax um
morguninn og neitaði hann alfarið
sök. Hann sagði rétt að hann hefði
mælt sér mót við vinkonu sína
fyrir utan Leifasjoppu. Árni sagði
meint fórnarlamb hafa ráðist á
sig með hníf. Þeir hafi lent í átök-
um og þegar hann reyndi að koma
í veg fyrir að maðurinn myndi
stinga hann hefði hnífurinn farið
í höfuð mannsins þar sem maður-
inn hélt á honum sjálfur.
„Hreinn réttarskandall“
Hjalti segir að málið sé nýtt Guð-
mundar- og Geirfinnsmál. „Þetta
er hreinn réttarskandall. Meinta
fórnarlambið kom með hnífinn
á vettvang, það er vitni að því að
hann kom með hnífinn og réðst á
Árna. Aðalvitnið, vinkona hans, er
í fullkominni fíkniefnaneyslu og
gjörsamlega út úr kortinu þegar
lögreglan kemur þarna. Hún er
búin að leiðrétta framburð sinn.
Það er vitni í málinu sem sér
meinta fórnarlambið með hnífinn,
labba í burtu og fela hann.“
Hjalti segir að ekki sé allt sem
sýnist í málinu og gagnrýnir hann
rannsókn lögreglu og þá sérstak-
lega að blóðslettur hafi ekki verið
skoðaðar. „Það er ekkert blóð, það
eru sex blóðdropar á vettvangi.
Lögreglan vill ekki gera DNA-
rannsókn, þannig að þetta er bara
nýtt Geirfinnsmál. Það eina sem
Árni gerði var að verjast lífshættu-
legri líkamsárás. Þetta er slagæðar-
rof og þá ætti nú að blæða þokka-
lega úr honum. Meint fórnar lamb
segir að blóðið hafi spýst út um allt
þegar Árni stakk hann. Það eru sex
blóðdropar, ég hef séð myndirnar
af öllu blóðinu sem er þarna,“ segir
Hjalti.
Hjalti Úrsus segir
son sinn saklausan
af morðtilraun
n Leiddur fyrir dómara á sundskýlu n Segir son sinn hafa verið að verja sig
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
„Ég vil sjá Árna við
réttarhöldin taka
hnífinn og stinga honum
af alefli í trédrumb og sjá
hvort að hann stoppi á
einhverjum millimetrum.
Hjalti Úrsus Árnason „Þetta er
hreinn réttarskandall." Mynd Sigtryggur Ari