Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2017, Síða 16
16 sport Helgarblað 23. júní 2017
Afrískir leikmenn
líklegri til að deyja
innan vallar
n Knattspyrnumenn frá Afríku falla reglulega frá í leik n Erfitt að útskýra af hverju
Þ
ví miður gerist það reglu-
lega að knattspyrnufólk
lætur lífið innan vallar og
oftar en ekki er það vegna
þess að hjartað gefur sig. Erfitt er
að átta sig á því hvers vegna þetta
gerist enda atvinnumenn í íþrótt-
um skoðaðir í bak og fyrir reglu-
lega. Hjarta þeirra er skoðað og
þeir sem deyja eru yfirleitt taldir
vera með hjarta sem á að vera í
góðu lagi. Þá vekur það líka mikla
furðu að 75 prósent þeirra at-
vinnumanna í knattspyrnu sem
deyja á knattspyrnuvelli vegna
hjartavandamála eru frá Afríku.
Þetta kemur fram í rannsókn sem
gerð var í Nígeríu þar sem málið
var skoðað frá árinu 1990. Skýr-
ingin á þessu hefur þó ekki fund-
ist.
Áfall þegar Tiote
lést á dögunum
Knattspyrnumaðurinn Cheick
Tiote lést á dögunum þegar hann
lék með Beijing Enterprises í Kína.
Tiote gekk í raðir félagsins í upp-
hafi árs frá Newcastle á Englandi.
Hjá Newcastle hafði þess aldrei
orðið vart, í fjölda rannsókna, að
Tiote glímdi við einhver vandamál
tengd hjartanu. Tiote fór til Kína
þar sem hann fékk afar vel borgað
og í læknisskoðunum þar í landi
fundu menn ekkert að honum
tengt hjartanu. Tiote lék þann 3.
júní í 4-2 sigri á Baoding og tveim-
ur dögum síðar á æfingu féll þessi
þrítugi leikmaður frá Fílabeins-
ströndinni frá. Um er að ræða
knattspyrnumann í frábæru formi
sem var á besta aldri, og menn
finna engar skýringar á því hvernig
þetta gat gerst.
Svartir sex sinnum líklegri til
þess að deyja innan vallar
Sanjay Sharma er sérfræðingur í
hjartamálum og hún ræddi mál-
ið við BBC. „Tölfræði sem hefur
verið tekin saman sannar að lík-
urnar á hjartaáfalli í íþróttum eru
1 á móti 48 þúsund. Þegar málið er
svo skoðað nánar kemur í ljós að
hjá svörtu íþróttafólki eru líkurnar
1 á móti 18 þúsund – þegar kemur
að svörtum karlmönnum,“ sagði
Sharma sem benti einnig á að
knattspyrnusambandið í Englandi
hefði skoðað unga leikmenn og
þar væru líkurnar 1 á móti 25
þúsund að ungir hvítir leikmenn
fengju hjartaáfall í leik en 1 á móti
4 þúsund hjá ungum svörtum leik-
mönnum. Svartir leikmenn eru
því sex sinnum líklegri til að deyja
innan vallar en hvítir leikmenn
þrátt fyrir að líkurnar séu litlar hjá
báðum.
Slæmt ástand á
rannsóknum í Afríku
Eins og fram hefur komið í grein-
inni er ekkert sem skýrir af hverju
fleiri leikmenn frá Afríku falli frá í
íþróttum frekar en til dæmis hvítir
íþróttamenn. Sharma segir hluta
af skýringunni geta verið að rann-
sóknir og þekking lækna í Afríku sé
minni og sérfræðiþjónusta í mál-
um af þessum toga oft lítil. Vanda-
málið sé mjög stórt og ekki sjái
fyrir endann á því í bráð, spurn-
ingin sé hvort hægt sé að koma í
veg fyrir þetta með frekari rann-
sóknum en eins og staðan sé í dag
geri leyndir hjartagallar og fleira
læknum erfitt fyrir.
Vísindunum fer fram
Þrátt fyrir að erfitt sé um vik í dag
að sjá hvort menn séu með falda
hjartagalla eða annað slíkt telja
læknar að vísindum þar að lút-
andi fleygi ört fram og að í framtíð-
inni verði hægt að koma í veg fyrir
svona áföll innan vallar. „Ef mað-
ur skoðar allar rannsóknir þá sér
maður að sumir koma eðlilega út
úr öllum prófum en eru samt sem
áður með hjartagalla, þetta kallast
fölsk niðurstaða. Það er ekki
þannig að próf séu framkvæmd
á rangan máta, þetta er eitthvað
sem kæmi fram í prófum sem við
höfum ekki í dag. Það er alltaf
framþróun í læknavísindum, sem
gætu hjálpað á næstu árum,“ sagði
dr. Ian Beasley sem var læknir hjá
landsliði Englands.
Sömu sögu að segja
af körfubolta
Sömu sögu er að segja af körfu-
boltamönnum í Bandaríkjunum
en í rannsókn sem var gerð þar
í landi á dögunum leiddi í ljós
að svartir körfuboltamenn eru
sjö sinnum líklegri til þess að fá
hjartaáfall innan vallar en hvít-
ir körfuboltamenn. Þrátt fyrir all-
ar þessar staðreyndir finna menn
ekki ástæður þessa. n
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is
Afríkumenn sem hafa
látist í leik eða á æfingu
Cheik Tiote (Fílabeinsströndin) - 5. júní 2017 Knattspyrnumaðurinn Cheick Tiote lést á dögunum þegar hann lék
með Beijing Enterprises í Kína. Hann hafði tveimur dögum áður spilað leik en mætti á æfingu þar sem hjartað gaf sig. Var þrítugur þegar
hann féll frá.
Patrick Ekeng (Kamerún) - 6. maí 2016 Landsliðsmaður Kamerún féll frá í leik í Rúmeníu á 70. mínútu í leik Dinamo
Búkarest og Viitorul. Hann var fluttur á sjúkrahús en varð ekki bjargað og var hann úrskurðaður látinn tveimur tímum eftir að hann féll
niður á vellinum.
David Oniya (Nígería) - 13. júní 2015 Oniya var að leika í Malasíu þegar hann féll niður eftir hjartaáfall og var úrskurð-
aður látinn klukkutíma eftir að hann komið var með hann á sjúkrahús.
Sekou Camara (Malí) - 27. júlí 2013 Fékk hjartaáfall þegar hann lék í Indónesíu með Madura United, hjartað gaf sig á
æfingu og farið var með hann á spítala en ekki tókst að bjarga honum.
Henry Chinonso Ihelewere (Nígería) - 5. ágúst 2012 Þessi 21 árs gamli leikmaður Delta Tulcea lést þegar
hann kom inn sem varamaður í æfingarleik, hann var fluttur á spítala en ekki tókst að bjarga honum.
Marc-Viven Foe (Kamerún) - 26. júní 2003 Einn sá frægasti sem dáið hefur eftir hjartaáfall innan vallar, hann var
enn með lífsmarki þegar komið var með hann á spítalann en ekki tókst að bjarga lífi hans. Atvikið átti sér stað í leik gegn Frakklandi í
Álfukeppni FIFA.
Bjargað
Fabrice Muamba, þá leikmaður Bolton, fékk
hjartastopp innan vallar árið 2012 en honum var
bjargað með naumindum. Hann varð að hætta
knattspyrnuiðkun í kjölfarið.