Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2017, Side 22
22 umræða
Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson
ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Sigurvin Ólafsson ritstjóri dv.is: Kristjón Kormákur Guðjónsson
aðstoðarritstjóri dv.is: Einar Þór Sigurðsson umbrot: DV ehf. Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru
hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
aðalnúmer: 512 7000
auglýsingar: 512 7050
ritstjórn: 512 7010
fréttaskot
512 70 70
Heimilisfang
Kringlan 4-12, 4. hæð
103 Reykjavík
Sandkorn
Helgarblað 23. júní 2017
Umburðarlynda þjóðin
S
amkvæmt samantekt stofn
unarinnar Social Progress
Imperative eru Íslendingar
umburðarlyndasta þjóð í
heimi. Umburðarlynt samfélag
er gott samfélag og því er þessi
niðurstaða staðfesting á því að
okkur hefur tekist að skapa fyrir
taks samfélag. Vitaskuld er þar
ekki allt fullkomið. Misrétti fyrir
finnst vissulega. Hagsmunaöfl
láta stöðugt á sér kræla. Grátkór
útgerðarinnar þagnar til dæm
is ekki og hagsmunaöfl í ferða
þjónustunni er farin að haga sér
á sama hátt. Of margir búa við fá
tækt og auður safnast á fáar hend
ur. Úr öllu þessu þarf að bæta og
gott væri ef ríkisstjórn landsins
myndi forgangsraða í þá átt. En
þökkum um leið fyrir þá gæfu að
búa í samfélagi sem virðir minni
hlutahópa og trúfrelsi. Í of mörg
um samfélögum er slíkt síður en
svo sjálfsagt.
Við verðum samt að halda
vöku okkar. Stundum er ansi stutt
í fordóma og ómannúðleg viðhorf.
Þegar umræða hófst um vopna
burð lögreglu heyrðist skrafað
manna á meðal um hættulega
einstaklinga sem væru á landinu
og það tal leiddi jafnvel út í um
ræður um að þetta hefðist nú upp
úr því að hleypa múslimum inn
í landið. Það er ástæða til að hafa
áhyggjur af skoðunum eins og
þessum. Um leið hlýtur það að
framkalla feginleika að hér hafi
ekki tekist að stofna stjórnmála
flokk sem stimplar múslima sem
höfuðóvini. Það væri aumt af um
burðarlyndustu þjóð í heimi að
veita slíkum stjórnmálaflokki
brautargengi.
Á hverju ári gleðst þjóðin með
samkynhneigðum á hinsegin dög
um. Það er leitun að óbeislaðra
fjöri en í Gleðigöngunni. Samt er
það svo að enn finnast einstak
lingar sem tala um samkynhneigð
sem einhvers konar óeðli og bók
stafstrúarmenn veifa Biblíunni
sem sannindamerki um það.
Reyndar er eitt það einkennileg
asta í sögu íslensku þjóðkirkjunn
ar tregðan til að veita samkyn
hneigðum sömu blessun og
öðrum. Nokkuð sem er í svimandi
mótsögn við kærleiksboðskap
Krists. Nú eru vonandi runnir upp
aðrir og betri tímar á þeim bæ.
Við skulum líka meta það
við þá ráðamenn þjóðarinn
ar sem markvisst tala máli um
burðarlyndis og víðsýni. Það ger
ir Guðni Th. Jóhannesson, forseti
Íslands, hvað eftir annað svo eftir
er tekið. Hið sama má segja um
borgar stjórann í Reykjavík, Dag
B. Eggertsson, og ekki má gleyma
forvera hans, Jóni Gnarr, sem
kom með óvenjumikla mannúð
lega nálgun inn í stjórnmálin og
breytti þeim um leið.
Umburðarlyndið er gæfa
okkar. Þar búum við sérlega
vel þegar kemur að ungu kyn
slóðinni sem hefur fersk og opin
viðhorf og virðist í eðli sínu al
þjóðasinnuð. Hún er líkleg til að
halda okkur á toppnum þegar
kemur að því að mæla umburðar
lyndi og víðsýni. n
Ofbeldi Benedikts
Benedikt Jóhannesson, fjármála
og efnahagsráðherra, vill taka
stóra peningaseðla, fyrst tíu þús
und króna seðla og síðan fimm
þúsund króna seðla, úr umferð.
Það vill ráðherrann gera til að
stemma stigu við skattsvikum.
Athygli vakti skömmu eftir síð
ustu þingkosn
ingar þegar
Pawel Bartoz-
sek, þingmaður
Viðreisnar, sagði
að skattar væru
ofbeldi, þar sem
þetta séu pen
ingar sem teknir
séu af fólki með valdi. Nú hefur
Benedikt sagt berum orðum að
hann sé að „segja skattsvikurum
stríð á hendur“. Pawel telur því
væntanlega að Benedikt sam
flokksmaður sinn hyggist nú
heyja stríð við fólk sem ekki hafi
annað til saka unnið en að reyna
að komast undan ofbeldi. Það
verður væntanlega til að létta
andrúmsloft á næsta þingflokks
fundi Viðreisnar.
Breytt gildismat?
Gunnar Smári Egilsson, fyrrver
andi ritstjóri og stærsti eigandi
Fréttatímans og núverandi sjálf
skipaður sósíalistaforingi, hefur
sett íbúðarhús sitt á sölu. Húsið
er verðlagt á 125 milljónir króna,
sem er nálægt því að vera 5/8
hlutar skulda Fréttatímans, að því
talið er. Í gær birtust síðan fréttir
af því að gjaldþrotameðferð væri
hafin yfir Morgundegi, útgáfu
félagi Fréttatímans. Miklar vær
ingar urðu innan Fréttatímans
í apríl síðastliðnum þegar ljóst
var að rekstur hans væri kominn
í þrot og meðal annars fékk hluti
starfsmanna ekki greidd laun sín.
Var Gunnar Smári gagnrýndur
harkalega fyrir vikið. Nú hljóta
að kvikna þær vangaveltur hvort
hann sé ekki nú að selja íbúð sína
til að geta gert upp sínar skuldir
tengdar útgáfunni. Eða finnst
sósíalistaforingjanum kannski
ekki við hæfi að búa í 125 millj
óna króna villu í Skerjafirðinum
og hyggst deila kjörum með al
múganum, flytja kannski í verka
mannabústaðina? Nema hvort
tveggja sé?
Stundum getur verið gott
að vera fangi flugvélanna
Víkingur Heiðar Ólafsson – DV
Ég var í ofbeldissambandi við fyrr-
um vinnustaðinn minn, Stígamót
Helga Baldvinsdóttir Bjargardóttir – dv.is
Við erum ekki jafn
heppnar og strákarnir
Guðbjörg Gunnarsdóttir landsliðskona. – DV
Leiðari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Myndin Framkvæmdir á „Strætó-reit“ Öflugar vinnuvélar hafa nú jafnað gamlan húsakost SVR við Borgartún við jörðu. Í deiliskipulagi er gert ráð fyrir að á svæðinu
verði allt að 300 íbúðir ásamt verslunum og þjónustu. mynd SiGtryGGur Ari
„Um leið hlýtur
það að framkalla
fegin leika að hér hafi ekki
tekist að stofna stjórn-
málaflokk sem stimplar
múslima sem höfuðóvini.